Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Tonak_Molta_Eymundsson

Dagur tónlistarskólanna - 26.2.2010

Undanfarin ár hafa tónlistarskólar landsins haldið dag tónlistarskólanna síðasta laugardag í febrúar. Í ár er því laugardagurinn 27. febrúar tileinkaður þeim degi. Tilgangur með degi tónlistarskólanna er að vekja athygli almennings á því gróskumikla starfi sem fram fer í skólunum. Tónlistarskólinn á Akureyri mun í tilefni dagsins efna til tónleika í Ketilhúsinu og í Eymundson ásamt því að haldnar verða smiðjur og hljóðfærakynningar í skólanum.

Lesa meira
 
Akureyri_6des05_4

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu - 25.2.2010

Auglýsing um framlagningu kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010: Kjörskráin liggur frammi til sýnis í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar að Geislagötu 9, 1. hæð, á bæjarskrifstofunni í Hrísey og í Búðinni í Grímsey frá og með föstudeginum 26. febrúar 2010 til og með föstudeginum 5. mars 2010 á venjulegum opnunartíma.

Lesa meira
 
Kajak

Starfslaun listamanna - 25.2.2010

Stjórn Akureyrarstofu auglýsir eftir umsóknum listamanna um starfslaun fyrir tímabilið 1. júní 2010 til 31. maí 2011. Starfslaunum verður úthlutað til eins listamanns og hlýtur viðkomandi sex mánaða laun. Ætlast er til að að listamaðurinn helgi sig list sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á starfslaunatímanum og einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.

Lesa meira
 

Friðbjarnarhús til leigu - 23.2.2010

Ákveðið hefur verið að auglýsa Friðbjarnarhús laust til leigu en húsið stendur við Aðalstræti 46 á Akureyri og er talið hafa verið byggt árið 1856. Húsið er kennt við Friðbjörn Steinsson, bókbindara, bóksala og bæjarstjórnarmann til fjölda ára. Húsið var friðað samkvæmt þjóðminjalögum árið 1978 og hefur Húsafriðunarsjóður veitt viðurkenningar fyrir endurbætur og varðveislu þess.

Lesa meira
 
Hrafn_Hafnarstr

Nóg til af bóluefni - 22.2.2010

Þeir sem ekki hafa verið bólusettir gegn svínainflúensu eru hvattir til að láta gera það sem fyrst. Áformað er að ljúka við bólusetningar gegn svínainflúensu á næstu tveimur vikum. Allir eru hvattir til að láta bólusetja sig og panta tíma í síma 460 4600.

Lesa meira
 
Midbaer_square

Kynningarfundur um deiliskipulag miðbæjarins - 18.2.2010

Laugardaginn 20. febrúar verður haldinn í Brekkuskóla kynningarfundur á nýju deiliskipulagi fyrir austurhluta miðbæjar Akureyrar. Fundurinn verður frá kl. 13.30 til 15.00. Bæjaryfirvöld, skipulagshönnuðir frá Greame Massie Architects og aðrir ráðgjafar munu kynna skipulagstillögunina og svara fyrirspurnum.

Lesa meira
 
Vetrarithrottahatid2010

Vetraríþróttahátíðin - 18.2.2010

Mikið verður um að vera um komandi helgi í tengslum við Vetraríþróttarhátíð ÍSÍ 2010 á Akureyri. Á laugardag verður boðið upp á snjóhlaup UFA, ískrossæfingar og töltmót, auk þess sem sérstök dagskrá verður á Hömrum þar sem kenna mun ýmissa grasa í anda hátíðarinnar.

Lesa meira
 
Öskudagur 2008 2

Dagskráin á öskudaginn - 17.2.2010

Að venju verður mikið um að vera á Akureyri á öskudaginn og syngjandi krakkar í skrautlegum búningum á ferðinni um bæinn. Klukkan 10.30 verður kötturinn sleginn úr tunnunni á Ráðhústorgi og klukkan 13.30 á Glerártorgi. Hefð er fyrir því að börnin syngi fyrir nammi fram undir hádegi.

Lesa meira
 
Oskudagur

Allir hlæja á öskudaginn - 16.2.2010

Víða í grunnskólum landsins eru vetrarfrí einhverja næstu daga og af því tilefni verður opið í Minjasafninu á Akureyri alla þessa viku frá kl. 13-16. Opið er á laugardögum frá kl. 14.16. Í tilefni öskudagsins hefur verið sett upp örsýningin "Allir hlæja á öskudaginn" sem standa mun til 6. mars.

Lesa meira
 
LA_RockyHorror2010

Rocky Horror frumsýnt í haust - 15.2.2010

Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að fresta sýningum á söngleiknum Rocky Horror og frumsýnir verkið 3. september í hinu glæsilega Menningarhúsi Hofi. Ástæðurnar eru tvær: Annars vegar velgengni 39 þrepa sem gengur fyrir fullu húsi helgi eftir og helgi, og hins vegar of mikill kostnaður við að búa þessari mögnuðu sýningu viðeigandi umgjörð í öðru húsnæði.

Lesa meira
 
Holtakot4

Innritun leikskólabarna - 11.2.2010

Gert er ráð fyrir að fyrstu innritunarbréf fyrir leikskóla á Akureyri verði send til foreldra í byrjun aprílmánaðar. Í innritunarbréfi kemur fram hvar og hvenær barn getur hafið leikskólagöngu sína. Ekki er hægt að gefa nákvæmar upplýsingar um tímasetningu aðlögunar hvers barns fyrr en í innritunarbréfum.

Lesa meira
 
Strengjasveit001

Sinfónían ásamt strengjasveit - 11.2.2010

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Akureyrarkirkju ásamt strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri sunnudaginn 14. febrúar kl. 16.00. Einleikari á fiðlu er Sigrún Eðvaldsdóttir og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á þessum tónleikum er teflt saman nýrri og gamalli tónlist.

Lesa meira
 
Nýtt miðbæjarskipulag

Deiliskipulag austurhluta miðbæjarins - 11.2.2010

Birtar hafa verið auglýsingar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta miðbæjar Akureyrar sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. febrúar sl. Skipulagssvæðið afmarkast að sunnan af Kaupvangsstræti, að norðan af Strandgötu, að vestan af Hafnarstræti og að austan af ströndinni og lóð Hofs.

Lesa meira
 
Hlid_19.juni2007_6

Sumarstörf hjá Akureyrarbæ - 10.2.2010

Opnað verður fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Akureyrarbæ á morgun, fimmtudaginn 11. febrúar. Að venju eru ýmis og margvísleg störf í boði, svo sem á sambýlum, í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, við akstur, skrifstofustörf og fleira. Fyrstu auglýsingarnar vegna sumarstarfa 2010 eru komnar á heimasíðuna og er að finna HÉR.

Lesa meira
 
Glerarskoli_8_nov_2007_temadagar

Kynningarfundur um skólaval - 10.2.2010

Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 20.00 verður haldinn á sal Lundarskóla kynningarfundur um skólaval fyrir foreldra grunnskólabarna. Formaður skólanefndar, Elín Margrét Hallgrímsdóttir, flytur ávarp í upphafi fundarins og síðan koma fulltrúar grunnskólanna og kynna sína skóla. Í farmhaldi af þessu gefst foreldrum kostur á að heimsækja skólana og kynnast starfinu í þeim. Foreldrar barna sem fædd eru árið  2004 eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Lesa meira
 
Molta2

Endurfjármögnun jarðgerðarstöðvar Moltu - 10.2.2010

Endurfjármögnun byggingar jarðgerðarstöðvar Moltu e.hf. í Eyjafirði er nú lokið með samstilltu átaki eigenda fyrirtækisins annars vegnar og Íslandsbanka og hins finnska seljanda vélbúnaðarins hins vegar. Sveitarfélögin í Eyjafirði eru meirihlutaeigendur í Moltu og auk fulltrúa þeirra sitja nú í stjórn fyrirtækisins fulltrúar Norðlenska, Tækifæris og Preseco, sem er framleiðandi og seljandi vélbúnaðarins.

Lesa meira
 
Menningarhus_2

Menningarhúsið á IMEX-sýningunni - 9.2.2010

Menningarhúsið HOF á Akureyri verður sérstakur boðsgestur (vann hið svokallaða Wild Card) á IMEX sýningunni sem er ein stærsta ráðstefnusýning heims. Þar koma saman nokkur þúsund ráðstefnuhaldarar og fulltrúar ráðstefnuhúsa, og þeir sem skipuleggja ráðstefnur og hvataferðir víðsvegar um heiminn. Ljóst er að hér verður um einstakt tækifæri fyrir ferðaþjónustu á svæðinu til að kynna sig og koma um leið Menningarhúsinu HOFI á kortið í alþjóðlegu samhengi.

Lesa meira
 

Hvað er kreppa? - 5.2.2010

Mánudaginn 8. febrúar kl. 15.00 boðar AkureyrarAkademían til málþings í gamla Húsmæðraskólanum undir yfirskriftinni "Hvað er kreppa?" Málþingið er haldið í samstarfi við Sagnfræðingafélag Íslands og eru erindi á þinginu hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins frá liðnu hausti. Lesa meira
 
haenaeinar

Hæna í Akureyrarkirkju - 3.2.2010

Hæfileikakeppnin HÆNA fór fram í Akureyrarkirkju laugardagskvöldið 30. janúar. Þar sýndi fjöldi ungs fólks hæfileika sína fyrir framan rúmlega 200 áhorfendur. Keppt var í þremur flokkum, söng og tónlist, dans og líkamstjáningu og opnum flokki.

Lesa meira
 
Nordurljos2feb10_6

Blikandi norðljósa traf - 3.2.2010

Norðurljósin hafa glatt Akureyringa af og til síðustu vikurnar og þau dönsuðu yfir bænum um tíma seint í gærkvöldi. Mikilli norðurljósavirkni er spáð um komandi helgi en því miður er útlit fyrir að þá verði að mestu skýjað og því líkast til erfitt að njóta dýrðarinnar. Hægt er að skoða spá um norðurljósavirkni HÉR. Lesa meira
 
LonelyPlanet_feb2010

Lonely Planet mælir með Akureyri - 2.2.2010

febrúarblaði ferðatímarits Lonely Planet er Akureyri í fjórða sæti á lista yfir sex staði sem þeir sem hafa ferðast til alþekktra áfangastaða á borð við París, Róm og Madríd ættu að heimsækja. Augljóst er að hér er um mikla og góða auglýsingu að ræða fyrir bæinn. Í umfjöllun blaðsins segir meðal annars að Akureyri hafi vinninginn umfram höfuðborgina Reykjavík þegar þessir staðir eru bornir saman "eftir útliti" (fegurð).

Lesa meira
 
Akureyri28des09_3

Hvað er þetta ESB? - 2.2.2010

Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitthvert umdeildasta mál síðari tíma. En hvað er þetta ESB? Hver er saga þess? Hvernig er það byggt upp? Hvert er eðli Evrópusamvinnunar? Hvaða áhrif hefur Evrópusambandið á líf, störf og viðskipti Íslendinga nú þegar - og hvað breytist ef ákveðið verður að ganga í sambandið? Um hvað snýst samvinna þessara 27 aðildarríkja þar sem býr hálfur milljarður manna og talar 89 tungumál? Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica