Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Koltrefjar2

Koltrefjaverksmiðja á Akureyri - 28.1.2010

Undirritaður hefur verið rammasamningur milli Strokks Energy e.hf. og Akureyrarbæjar um að komið verði á fót koltrefjaverksmiðju á Akureyri. Koltrefjar eru notaðar sem styrkingarefni í iðnframleiðslu og leysa af hólmi ýmis þekkt smíðaefni svo sem ál, timbur og stál, sérstaklega í iðngreinum þar sem léttleiki og styrkur eru höfð að leiðarljósi.

Lesa meira
 
Hlíðarfjall - útsýni úr stólalyftu

Nægur snjór í Hlíðarfjalli - 28.1.2010

Aðsókn í Hlíðarfjall hefur verið mjög góð það sem af er vetri og nú hafa 23.500 gestir komið á skíðasvæðið miðað við 13.500 á sama tíma í fyrra og helmingi fleiri vetrarkort hafa verið seld. Þrátt fyrir að kröftug lægð með um 10 stiga hita hafi gengið yfir Norðurland í byrjun vikunnar, er skíðafærið í Hlíðarfjalli með betra móti og nægur snjór í öllum brekkum. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica