Davíðskvöld í Ketilhúsinu
Fimmtudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 verður Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi minnst í Ketilhúsinu á Akureyri en skáldið fæddist þennan dag árið 1895. Ekki er því um stórafmæli að ræða heldur notalega kvöldstund þar sem boðið verður upp á lestur ljóða, tónlist og söng.
Fram koma Erlingur Sigurðarson, kvæðamaður, sem mun flytja nokkur ljóð Davíðs og segja frá tilurð þeirra. Karlakór Akureyrar - Geysir mun einnig flytja í söng nokkur af þekktustu ljóðum Davíðs, s.s. "Þú komst í hlaðið" og "Brennið þið vitar". Tvö ungmenni úr Menntaskólanum á Akureyri, þau Gísli Björgvin Gíslason og Gréta Ómarsdóttir, flytja kvæðin um "Nirfilinn" og "Hvað hefur breyst". Tríó skipað þeim Ásdísi Arnardóttur á selló, Petreu Óskarsdóttur á þverflautu og Þórarinn Stefánsson á píanó flytur ljúfa tónlist eftir Skúla Halldórsson og Maurice Ravel sem víst er að fagurkeranum Davíð hefði fallið vel í geð.

