Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Bryndís Rún er Íþróttamaður Akureyrar 2009

13.1.2010

Kjöri íþróttamanns Akureyrar árið 2009 var lýst við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu í kvöld. Fyrir valinu varð Bryndís Rún Hansen sundkona í Óðni. Í öðru sæti var Rakel Hönnudóttir knattspyrnukona í Þór/KA og í þriðja sæti Oddur Grétarsson handknattleiksmaður í Akureyri handboltafélagi.

IA_Arid09

Frá vinstri: Rakel Hönnudóttir, Bryndís Rún Hansen og Oddur Grétarsson.

Við sama tækifæri var tilkynnt um styrktarsamninga og mánaðarlegar greiðslur úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrarbæjar vegna ársins 2010 til eftirtalinna félaga vegna íþróttafólks á þeirra vegum: Akureyri handboltafélag - Oddur Geirsson; Sundfélagið Óðinn - Elín Erla Káradóttir og Halldóra S. Halldórsdóttir: Skíðafélag Akureyrar - Róbert Ingi Tómasson, Andri Steindórsson og Brynjar L. Kristinsson.

Þess má geta að úthlutanir úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrarbæjar námu samtals 5.345.000 krónum árið 2009.

Ennfremur voru veittar heiðursviðurkenningar vegna starfa að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum sem hlutu Guðmundur Pétursson vegna starfa fyrir Skautafélag Akureyrar, Kolbrún Ingólfsdóttir vegna starfa fyrir Þroskahjálp og Skíðafélag Akureyrar, Viðar Garðarsson vegna starfa fyrir skíðaíþróttina á Akureyri og félagarnir Jóhann Aðalsteinsson og Siguróli M. Sigurðsson vegna starfa fyrir Knattspyrnufélag Akureyrar.

IA_Heidur09

Frá vinstri: Siguróli M. Sigurðsson, Jóhann Aðalsteinsson, Guðmundur Pétursson, Kolbrún Ingólfsdóttir og Viðar Garðarsson.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica