Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

JorisRademaker

Matur og list á laugardag - 29.1.2010

Í tilefni af sýningu Jorisar Rademaker í Listasafninu á Akureyri verður efnt til viðburðarins Matur og list í safninu á laugardag, 30. janúar. Sigríður Bergvinsdóttir áhugakona um kartöflur og listamaðurinn Joris Rademaker munu þar leiða saman hesta sína og fjalla um kartöfluna út frá ýmsum sjónarhornum. Lesa meira
 
Koltrefjar2

Koltrefjaverksmiðja á Akureyri - 28.1.2010

Undirritaður hefur verið rammasamningur milli Strokks Energy e.hf. og Akureyrarbæjar um að komið verði á fót koltrefjaverksmiðju á Akureyri. Koltrefjar eru notaðar sem styrkingarefni í iðnframleiðslu og leysa af hólmi ýmis þekkt smíðaefni svo sem ál, timbur og stál, sérstaklega í iðngreinum þar sem léttleiki og styrkur eru höfð að leiðarljósi.

Lesa meira
 
Hlíðarfjall - útsýni úr stólalyftu

Nægur snjór í Hlíðarfjalli - 28.1.2010

Aðsókn í Hlíðarfjall hefur verið mjög góð það sem af er vetri og nú hafa 23.500 gestir komið á skíðasvæðið miðað við 13.500 á sama tíma í fyrra og helmingi fleiri vetrarkort hafa verið seld. Þrátt fyrir að kröftug lægð með um 10 stiga hita hafi gengið yfir Norðurland í byrjun vikunnar, er skíðafærið í Hlíðarfjalli með betra móti og nægur snjór í öllum brekkum. Lesa meira
 
Lionsbill_skammtimavistun_2

LIONS-bíllinn gefinn Skammtímavistun - 26.1.2010

Lionshreyfingin á Íslandi hefur ákveðið að færa Skammtímavistun Skólastíg 5 til eignar Renault Trafic bifreið með fastanúmerið ND 781 sem heimilið hefur haft til afnota undanfarin ár. Bifreiðin er sérútbúin fyrir 5 farþega og 2 hjólastóla að auki, þ.e.a.s. festingar fyrir 2 hjólastóla, ásamt hjólastóla-akstursbraut til að komast á einfaldan hátt inn í bifreiðina.

Lesa meira
 
chris-ofili

Ögrandi list og tilraunir til ritskoðunar - 26.1.2010

Þriðjudaginn 26. janúar klukkan 17.15 stendur Listasafnið á Akureyri fyrir fyrirlestri bandaríska fræðimannsins dr. Steven C. Dubin í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestrarins er "Myndir sem fanga: Ögrandi list og tilraunir til ritskoðunar ( e. "Arresting Images: Controversial Art and Attempts to Censor It") og fer hann fram á ensku. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Lesa meira
 
Vetrarithrottahatid2010

Vetraríþróttahátíð á Akureyri - 22.1.2010

Undirbúningur fyrir Vetraríþróttahátíð ÍSÍ 2010 stendur sem hæst en hátíðin fer fram á Akureyri þar sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands er staðsett. Hátíðin verður sett laugardaginn 6. febrúar í Skautahöllinni með glæsilegri sýningu þar sem fram koma m.a. hæfileikaríkir iðkendur í listhlaupi en Skautahöllin fagnar einmitt 10 ára afmæli sínu á þessu ári. Ólympíufararnir munu heiðra samkomuna og er það rétt áður en þeir halda utan til Vancouver í Kanada.

Lesa meira
 
DavidStefans2

Davíðskvöld í Ketilhúsinu - 20.1.2010

Fimmtudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 verður Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi minnst í Ketilhúsinu á Akureyri en skáldið fæddist þennan dag árið 1895. Ekki er því um stórafmæli að ræða heldur notalega kvöldstund þar sem boðið verður upp á lestur ljóða, tónlist og söng.

Lesa meira
 
vestmannaeyjar_heimaey_336717

Beint flug milli Akureyrar og Vestmannaeyja - 19.1.2010

Helgina 12.-14. febrúar nk. verður boðið upp á góðan kost fyrir Norðlendinga og kannski sérstaklega norðlenska kylfinga þegar verður í fyrsta sinn farið í beint áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Akureyrar, tvisvar sinnum fram og til baka.

Lesa meira
 
heilsugaesla2

Heilsugæslan á Græna hattinum - 18.1.2010

Kómedíuleikhúsið sýnir hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan á Græna hattinum á Akureyri miðvikudaginn 20. janúar og hefst sýningin kl. 20.30. Gamanleikurinn Heilsugæslan var frumsýndur í október á síðasta ári og hefur notið fádæma vinsælda, enda er hér um að ræða efni sem kemur okkur öllum við. Lesa meira
 
Utsvar_-_minni

Akureyri í Útsvari í kvöld - 15.1.2010

Lið Akureyrar mætir liði Hafnarfjarðar í 16 liða úrslitum í spurningakeppni sveitarfélaganna Útsvari í Sjónvarpinu í kvöld. Fyrir hönd Akureyringa keppa að þessu sinni þau Erlingur Sigurðarson, Hilda Jana Gísladóttir og Pálmi Óskarsson. Lið Hafnarfjarðar skipa Gísli Ásgeirsson, Steinn Jóhannsson og Erla Ruth Harðardóttir. Lesa meira
 
JorisRademaker

Jorisar Rademaker í Listasafninu - 15.1.2010

Laugardaginn 16. janúar klukkan 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker. Joris er fæddur í smábænum Eersel í Hollandi árið 1958 en hefur búið á Íslandi í hartnær tvo áratugi. Hann var útnefndur bæjarlistamaður Akureyrar árið 2006.
Lesa meira
 

Öll lífsins list í Gilinu á morgun - 15.1.2010

Það verður ljúf stemning í Listagilinu á Akureyri á morgun, laugardag, þegar fjölmargar listsýningar af ýmsum toga verða opnaðar, auk þeirra sýninga sem opnaðar voru í byrjun árs. Bæjarbúar og gestir rölta á milli staða og njóta lista og menningar.

Lesa meira
 
SvartfuglHvitspoi1

Mikado í bæjarstjórnarsalnum - 14.1.2010

Föstudaginn 15. janúar klukkan 12 á hádegi opnar listakonan Anna Gunnarsdóttir sýningu í Gallerí Ráðhús í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Akureyri. Sýninguna nefnir hún MIKADO. Verkin eru unnin út frá japanska spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik. Öll eru þau unnin með shibori tækni og indigo lituð.

Lesa meira
 
Listagil

Sálarheill á krepputímum - 14.1.2010

"Sálarheill þjóðarinnar á krepputímum" er yfirskrift opins borgarafundar sem haldinn verður í Deiglunni í kvöld, fimmtudagskvöldið 14. janúar. Framsögumenn verða Sigmundur Sigfússon, geðlæknir, Pétur Maack, sálfræðingur og Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir, náms- og starfsráðgjafi. Fundurinn hefst kl. 20. Pallborð að loknum erindum.

Lesa meira
 
IA_Arid09

Bryndís Rún er Íþróttamaður Akureyrar 2009 - 13.1.2010

Kjöri íþróttamanns Akureyrar árið 2009 var lýst við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu í kvöld. Fyrir valinu varð Bryndís Rún Hansen sundkona í Óðni. Í öðru sæti var Rakel Hönnudóttir knattspyrnukona í Þór/KA og í þriðja sæti Oddur Grétarsson handknattleiksmaður í Akureyri handboltafélagi. Lesa meira
 

Íþróttamaður Akureyrar - 11.1.2010

Íþróttamaður Akureyrar verður útnefndur við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu nk. miðvikudagskvöld, 13. janúar, kl. 19.30. Við þetta tækifæri mun Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri skrifa undir styrktarsamninga fyrir hönd Afreks- og styrktarsjóðs Akureyrar við ungt og efnilegt íþróttafólk í bænum og einnig mun íþróttaráð Akureyrar veita viðurkenningar til nokkurra einstaklinga sem hafa í gegnum tíðina lagt sín lóð á vogarskálarnar í þágu íþróttamála á Akureyri.

Lesa meira
 
Amtsbókasafnið - nýbygging mars 2004

Ævi í ull - 8.1.2010

Kristinn Arnþórsson, ullarfræðingur, flytur fyrirlestur um ull og ullarframleiðslu á öldinni sem leið á Amtsbókasafninu, laugardaginn 9. janúar klukkan 14.00. Um leið verður opnuð á Amtsbókasafninu sýning Iðnaðarsafnsins um ull og ullarframleiðslu á síðustu öld. Sýningin verður opin til 31. janúar.

Lesa meira
 
Bokmenntamessa1

Bókmenntamessur á Akureyri - 7.1.2010

Bókmenntamessur eru nýjung í kirkjulegu starfi og á sunnudag verður fyrsta messan af þessu tagi hér á landi haldin í Akureyrarkirkju. Í bókmenntamessum velur presturinn bók sem hann styðst við í prédikun. Ritningarlestrar eru valdir með hliðsjón af bókinni og lesnir eru stuttir kaflar úr henni í messunni. Bænir tengjast efni bókarinnar, sálmar og tónlistin einnig. Fyrirmyndin er frá Þýskalandi.

Lesa meira
 
Jolatre

Þarftu að losna við jólatréð? - 6.1.2010

Þrettándinn er í dag og hátíðarnar því að baki á morgun. Fólk sem vill losa sig við jólatré er hvatt til að setja þau við lóðamörk og starfsmenn framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar verða síðan á ferðinni 7. og 8. janúar og aftur 11. og 13. janúar til að fjarlægja þau. Lesa meira
 
Threttandagleidi2009

Þrettándagleði Þórs - 5.1.2010

Þrettánda gleði Þórs verður haldin miðvikudagskvöldið 6. janúar við Réttarhvamm í samstarfi við Bónus og Akureyrarstofu. Að venju er mikið um dýrðir á þrettándagleðinni: Álfakóngur og -drottning koma í heimsókn, jólasveinar, tröll og púkar og alls kyns kynjaverur heilsa upp á gesti. Þá eru venjan að bjóða upp á ýmis önnur skemmtiatriði og að sjálfsögðu verður kveikt í brennu.

Lesa meira
 
LA_39steps_3

Sprenghlægilegur spennugamanleikur - 4.1.2010

Föstudaginn 8. janúar frumsýnir Leikfélag Akureyrar breskan spennugamanleik, 39 þrep eða The 39 Steps, sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock eftir samnefndri skáldsögu John Buchan. Verkið hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem besta gamanleikritið árið 2007 og tvenn Tony verðlaun árið 2008. Sýningin hefur gengið fyrir fullu húsi á West End í þrjú ár.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica