Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Jolatred09_13

Opnunartímar um jól og áramót - 30.12.2009

Akureyrarstofa hefur í samstarfi við Upplýsingamiðstöð ferðamála unnið yfirlit um opnunartíma veitingahúsa og gististaða, verslana og ýmissa þjónustufyrirtækja á Akureyri um jól og áramót. Þar er um að ræða gagnlegan lista sem nýtist jafnt gestum bæjarins sem heimamönnum, en reikna má með að eitthvað verði um erlenda ferðamenn í bænum yfir hátíðarnar. Listinn er birtur á heimasíðunni www.visitakureyri.is. Lesa meira
 
Akureyri28des09_6

Fallegur dagur - 28.12.2009

Mikið frost var á Akureyri í morgun og mældist 12 gráður á hádegi. Himinninn var heiður og birtan bleik og blá þegar örla tók á geislum sólar úr austri. Meðfylgjandi myndir tók Ragnar Hólm Ragnarsson hjá Akureyrarstofu á ferð sinni um bæinn í morgun. Lesa meira
 
Akureyri26des09

Afrek í íþróttum - 28.12.2009

Árleg úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþróttahöllinni þriðjudaginn 29. desember nk. kl. 16.15. Þar verða einnig afhent viðurkenningarskjöl íþróttaráðs Akureyrar til hvers félags fyrir sig en árangur akureyrskra íþróttamanna var góður á árinu.

Lesa meira
 
Ak_frostnott_feb2005

Jólatónleikar Hymnodiu - 21.12.2009

Kammerkórinn Hymnodia flytur þekkta og ljúfa jólatónlist á tónleikum í Akureyrarkirkju í kvöld, mánudagskvöldið 21. desember, kl. 20.00. Þetta er kjörið tækifæri til að njóta augnabliksins á aðventunni og slaka á í kirkjunni undir ljúfum og alkunnum jólalögum.

Lesa meira
 
Akureyrarkirkja_18des09

Kóraslóð í miðbænum - 18.12.2009

Það verður hátíðlegt stemning í miðbæ Akureyrar á morgun, laugardag, þegar félagar úr Kirkjukór Akureyrarkirkju, Kirkjukór Glerárkirkju, Karlakór Akureyrar-Geysi, Kvennakór Akureyrar og Kvennakórnum Emblu, mynda kóraslóð frá klukkan 14.30-17 víðsvegar um miðbæinn þar sem hver kór syngur í um hálftíma. Lesa meira
 
logo_big_right

Samherji styrkir samfélagsverkefni - 17.12.2009

Föstudaginn 11. desember bauð Samherji hf. til móttöku í Flugsafni Íslands og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna að fjárhæð 60 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru veittir til íþrótta- og æskulýðsfélaga á Akureyri og Dalvík.

Lesa meira
 
Gluggi

Jólasöngvaka til styrktar Mæðrastyrksnefnd - 17.12.2009

Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd á Akureyri laugardaginn 19. desember kl 14. Ljúfir tónar þekktra jólasöngva munu óma í Minjasafnskirkjunni þegar þau Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson syngja jólin inn og hlýja áheyrendum um hjartarætur með ómþýðum söng sínum. Lesa meira
 
HeimirBrit_des09

Alþýðubandalagið gefur tvær milljónir - 16.12.2009

Alþýðubandalagsfélagið á Akureyri hefur afhent Öldrunarheimilum Akureyrar tvær milljónir króna að gjöf til minningar um Lárus Björnsson (1893-1985) og Sigurð Kristjánsson (1909-1998) sem báðir áttu sitt ævikvöld á Öldrunarheimilinu Hlíð.

Lesa meira
 
hjalparstarf_des09

Styrkur til Hjálparstarfs kirkjunnar - 15.12.2009

Hjálparstarf kirkjunnar hlaut í morgun styrk frá KEA og sparisjóðum á Norðurlandi en í framhaldi af útgáfu KEA kortsins á sínum tíma hófst samstarf á milli KEA og sparisjóðanna á félagssvæði KEA. Sparisjóðirnir hófu útgáfu á KEA debet- og kreditkortum til félagsmanna og nú hafa aðilar samstarfsins ákveðið að styrkja gott málefni á svæðinu.

Lesa meira
 
Sigurhaedir_GisliSigurgeirs

Sögustund á Sigurhæðum - 11.12.2009

Á sunnudaginn kl. 16.00 verður sögustund á Sigurhæðum. Þar verður fjallað um tvo ólíka menn sem báðir tengjast Akureyri. Fyrst fjallar Ásgeir Jónsson um George Schrader, sem birtist skyndilega á Akureyri árið 1912 og gaf út bókina "Heilræði fyrir unga men". Hann byggði líka stórhýsi á þess tíma mælikvarða, "Caroline-Rest", og gaf Akureyringum. Lesa meira
 
Akureyri_6des05_3

Ný lögreglusamþykkt - 11.12.2009

Ný lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað tók gildi í dag, föstudaginn 11. desember. Í samþykktinni eru nokkur nýmæli sem vert er að gefa gaum. Helst eru það ákvæði um ónæði og næturró, skyldur veitingahúsaeigenda og skyldur verktaka sem vekja athygli.

Lesa meira
 
Kompas_des09

Lýðræði og mannréttindi í leik og starfi - 11.12.2009

Á miðvikudag undirritaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, viljayfirlýsingu um samstarf mennta- og menningarmálaráðuneytis við Háskólann á Akureyri, Akureyrarbæ, Rauða kross Íslands og Ungmennafélag Íslands um að efla lýðræði og mannréttindi í skólum og í félags- og æskulýðsstarfi.

Lesa meira
 

Aðgerðaráætlun gegn ofbeldi kynnt - 10.12.2009

Akureyrarbær stefnir að því að verða fyrsta sveitarfélagið hér á landi sem samþykkir aðgerðaráætlun gegn ofbeldi. Drög að áætluninni voru kynnt í bæjarstjórn í gær, og verður hún væntanlega samþykkt í upphafi næsta árs.

Lesa meira
 
UMFImynd_8des09

Þakkir fyrir gott landsmót UMFÍ - 9.12.2009

Fulltrúar Landsmótsnefndar UMFÍ afhentu í gær bæjarstjórn Akureyrar loftmynd af mótssvæðinu á Akureyri með þökk fyrir vel heppnað mót síðasta sumar. Landsmótið var hundrað ára afmælismót og var það stærsta í sögu Landsmóta UMFÍ. Keppendur á mótinu voru á þriðja þúsund og ætla má að gestir hafi verið á milli 10 og 15 þúsund. Lesa meira
 
Listasafnid_Evudaetur

Evudætur kveðja - 9.12.2009

Sunnudaginn 13. desember lýkur sýningunni Evudætur í Listasafninu á Akureyri en sýningin hefur staðið frá 24. október síðastliðnum. Evudætur er samsýning þriggja listakvenna, Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur, Þorbjargar Halldórsdóttur og Hrafnhildar Arnardóttur. Lesa meira
 
ShopAkureyri_Stefna

ShopAkureyri.is - 9.12.2009

Í dag verður opnuð á vefslóðinni www.shopakureyri.is ný heimasíða sem er sameiginleg upplýsingaveita verslana á Akureyri. Markmiðið er að safna saman á einn stað upplýsingum um verslanir á Akureyri, s.s. staðsetningu, opnunartíma, vörur og þjónustu. Lesa meira
 
Akureyri_6des05_10

Bólusetning gegn svínaflensu - 9.12.2009

Heilsugæslustöðin á Akureyri hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna bólusetningar gegn svínaflensu. Dregist hefur að ný sending af bóluefni bærist HAK og ekki verður tekið við nýjum tímapöntunum í bólusetningu gegn svínaflensu fyrr en eftir miðjan janúar. Tilkynningin frá HAK er svohljóðandi:

Lesa meira
 
16dagar

Hátíðardagskrá 10. desember - 9.12.2009

Í tilefni af lokadegi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og degi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna verður flutt hátíðardagskrá kl. 16.15 í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri fimmtudaginn 10. desember.

Lesa meira
 
Baejarstjorn8des09

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir 2010 - 8.12.2009

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2010 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, þriðjudaginn 8. desember. Áætlunin gerir ráð fyrir hallalausum rekstri samstæðunnar þrátt fyrir minni tekjur að raunvirði og aukin útgjöld á vissum sviðum. Lesa meira
 
jolatrehoddu

Jólatréskógur á Minjasafninu - 7.12.2009

Jólatréskógur hefur sprottið upp í akureyskri stemningu í grunnsýningu Minjasafnins: Akureyri – bærinn við Pollinn. Íslendingar byrjuðu að skreyta heimili sín með jólatrjám á seinni hluta 19. aldar. Jólatré hafa í gegnum tíðina verið útfærð á margan hátt en yfirleitt var leitast við að hafa heimagerðu trén sem líkust grenitrjám. Lesa meira
 
SagaAkureyrar4bindi_09

Vor Akureyri - 7.12.2009

Út er komið 5. bindi Sögu Akureyrar og ber þetta eilítið tvíræða heiti „Vor Akureyri" – fengið að láni hjá ljóðskáldinu Kristjáni frá Djúpalæk. Sagan hefst daginn er Bretar hertóku bæinn, 17. maí 1940, og lýkur í allsherjarfagnaði 29. ágúst 1962 – á eitt hundrað ára afmæli Akureyrar.

Lesa meira
 
Grenndargralid09_2

Grenndargralið 2009 fundið - 7.12.2009

Þriðjudaginn 1. desember lauk Leitinni að grenndargralinu 2009 í Giljaskóla með formlegum hætti. Leitin hófst mánudaginn 31. ágúst sl. og stóð því yfir í rúmar 10 vikur. Alls hófu 36 nemendur leik, 24 úr Giljaskóla og 12 úr Síðuskóla. Sextán stúlkur kláruðu allar þrautirnar 10 og eru tólf af þeim nemendur í Giljaskóla. Lesa meira
 
Sigurhaedir_GisliSigurgeirs

Líflegt á Sigurhæðum - 4.12.2009

Það hefur heldur betur lifnað yfir Sigurhæðum síðustu vikurnar eftir að Gísli Sigurgeirsson settist í húsbóndastólinn. Þar lifa nú ljós í gluggum og einhver dagskrá er í hverri viku. Á sunnudaginn kemur verður boðið upp á sagnamennsku, upplestur og söng á Sigurhæðum í dagskrá sem stendur frá kl. 15-18. Lesa meira
 
Kvak_29nov09

Mæðrastyrksnefnd fékk 350.000 kr. - 3.12.2009

Kvennakór Akureyrar stóð fyrir sínum árlegu tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar þann 29. nóvember sl. Þetta var í 7. sinn sem kórinn heldur slíka tónleika og tókust þeir afar vel. Venjan er að kórinn fái góða gesti til liðs við sig og í þetta sinn voru það Kvennakórinn Salka á Dalvík og Skólakór Hrafnagilsskóla.

Lesa meira
 
Islandsklukkan09_1

Þorsteinn hringdi Íslandsklukkunni - 2.12.2009

Íslandsklukkunni við Háskólann á Akureyri var hringt níunda sinni í gær, á fullveldisdegi Íslendinga, og það gerði að þessu sinni Þorsteinn Gunnarsson, fyrrverandi rektor HA, í tögru tunglskini og talsverðu frosti. Áður hafði Stefán B. Sigurðsson, rektor, flutt ávarp og kór Glerárkirkju söng við athöfnina nokkur lög. Lesa meira
 
Krulla_skytturnar

Skytturnar sigruðu á Gimli Cup - 2.12.2009

Í gærkvöld lauk þriðja krullumóti vetrarins hjá Krulludeild Skautafélags Akureyrar. Mótið heitir Gimli Cup og er þar keppt um veglegan bikar sem gefinn var af Vestur-Íslendingunum Alma og Ray Sigurdsson í Gimli í Manitóba í tilefni af opnun Skautahallarinnar árið 2000. Fyrst var keppt um bikarinn 2001 og er mótið nú því það níunda í röðinni. Lesa meira
 
HakarlaJorundur1des09_web3

Hús Hákarla Jörundar afhent Akureyrarbæ - 1.12.2009

Í dag, þriðjudaginn 1. desember, var Hús Hákarla Jörundar í Hrísey afhent Fasteignum Akureyrarbæjar til eignar og umsjónar við formlega athöfn í eyjunni. Einnig var undirritaður samningur á milli Akureyrarstofu og Ferðamálafélags Hríseyjar um rekstur hússins og þróun og uppbyggingu ferðamála í eyjunni.

Lesa meira
 
Akureyri11nov09_2

Norrænt samstarf á krepputímum - 1.12.2009

Miðvikudaginn 2. desember verður haldið í Ketilhúsinu á Akureyri málþing um norrænt samstarf á krepputímum undir yfirskriftinni Er grasið grænna hinum megin? Málþingið stendur yfir frá kl. 16-18. Markmið með málþinginu er að skapa tækifæri til umræðu um stöðu fólks varðandi búsetuskilyrði á krepputímum. Hverjar eru aðstæður ungs fólks? Lesa meira
 
Rosenborg3

Góðgerðavika félagsmiðstöðvanna - 1.12.2009

Góðgerðavika félagsmiðstöðvanna á Akureyri hófst í gær og stendur til 5. desember. Í þessari viku láta fulltrúar félagsmiðstöðvanna gott af sér leiða á marga vegu, t.d safna ungmennin matvælum fyrir Mæðrastyrksnefndina, fötum fyrir Rauða krossinn og syngja fyrir vistmenn á Dvalarheimilinu Hlíð.

Lesa meira
 
jol_2006_1

Jólamarkaðir í bænum - 1.12.2009

Á aðventunni er gaman að fara um bæinn, kíkja í búðir og skoða um leið alls kyns varning sem er á boðstólum á jólamörkuðum vítt og breitt. Aðventuævintýrið er í fullum blóma og þar kennir ýmissa grasa. Markaðir eru áberandi í dagskránni um næstu helgi en hana má skoða hér. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica