Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

islandsklukka

Fullveldishátíð í Háskólanum á Akureyri - 30.11.2009

Þriðjudaginn 1. desember verður venju samkvæmt haldið upp á fullveldisdaginn í Háskólanum á Akureyri. Dagurinn hefur jafnan verið tileinkaður stúdentum, enda taka þeir virkan þátt í dagskránni. Að þessu sinni hefst dagskráin á málþingi um fullveldið og ber það yfirskriftina Fullveldi ríkis: jafnrétti, stjórnlög og framtíð.

Lesa meira
 
Jolatred09_8

Mannfjöldi á Ráðhústorgi - 28.11.2009

Fjölmenni var á Ráðhústorginu á Akureyri í dag þegar ljósin á jólatrénu frá vinabænum Randers í Danmörku voru tendruð. Um sex gráðu frost var í bænum og stöku snjókorn duttu af himnum ofan. Ljósin á trénu voru kveikt klukkan rúmlega þrjú og um svipað leyti lifnaði aftur á hjartanu í heiðinni.

Lesa meira
 
Skammtimavistun_Hringurinn4

Rausnarleg gjöf Hringsins - 27.11.2009

Nýverið fékk skammtímavistun fatlaðra á Akureyri að gjöf frá Barnaspítalasjóði Hringsins tvö sjúkrarúm og eina hvíldarkerru, samtals að andvirði um 3.9 milljónir króna. Um er að ræða sérhæfðan búnað sem ætlað er að bæta aðstöðu og aðbúnað þeirra fjölfötluðu barna sem nýta sér þjónustu skammtímavistunar.

Lesa meira
 
Sigurhaedir_VilborgDavids1

Auður djúpúðga á Sigurhæðum - 27.11.2009

Það sannaðist í gærkvöldi að Sigurhæðir eru lítið hús en með stóra sál, þegar Vilborg Davíðsdóttir fjallaði um landnámskonuna Auði djúpúðgu. Hver krókur í málstofu Sigurhæða var setinn og fyrirlestur Vilborgar var í senn bæði fræðandi og skemmtilegur.

Lesa meira
 
nóv 2006

Opnað í Hlíðarfjalli á morgun - 27.11.2009

Skíðavertíðin í Hlíðarfjalli hefst á morgun, laugardaginn 28. nóvember kl. 10.00. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að snjóframleiðslan hafi gengið vonum framar síðustu daga og að auki hafi borist drjúg aðstoð að ofan því snjóað hefur nokkuð hressilega í Fjallinu. Lesa meira
 
LA_Lykillinnadjolunum

Lykillinn að jólunum - 27.11.2009

Leikfélag Akureyrar frumsýnir í dag, föstudaginn 27. nóvember, leikritið "Lykilinn að jólunum" sem Snæbjörn Ragnarsson samdi sérstaklega fyrir LA. Leikstjóri er Kolbrún Björt Sigfúsdóttir. Hvernig komast jólasveinarnir yfir að gefa í alla þessa skó á einni nóttu? Mörg þúsund gluggar og aðeins einn sveinn til að laumast inn um þá alla, hvernig er það hægt? Lesa meira
 
Jolatre2004

Aðventuævintýri 2009 hefst á laugardag - 27.11.2009

Aðventuævintýri á Akureyri 2009 hefst á laugardaginn en þá verða tendruð ljósin á jólatrénu á Ráðhústorgi. Jólatréð er gjöf til Akureyringa frá vinabænum Randers í Danmörku og mun sendiherra Dana á Íslandi, Sören Haslund gefa bæjarbúum tréð. Dagskráin hefst klukkan 14.45 þegar Big Band Tónlistarskólans á Akureyrar spilar jólalög.

Lesa meira
 
Holmasol_Skogarskoli

Skógarskóli á Hólmasól - 26.11.2009

Í leikskólanum Hólmasól er unnið að útiverkefni sem kallast Skógarskólinn. Börnin í elsta árgangi dvelja einn dag í viku morgunlangt í Kjarnaskógi. Tveri hópar fara saman, einn stúlknahópur og einn drengjahópur ásamt kennurum. Börnin vinna ýmist í kynjaskiptum eða kynjablönduðum hópum.

Lesa meira
 
Handverkoghonnun

Jólahandverk og hönnun í Ketilhúsinu - 25.11.2009

Aðventuævintýri 2009 hefst á Akureyri um næstu helgi þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi. Ýmislegt verður um að vera fram að jólum og á laugardag verður til að mynda opnuð sölusýning á handverki, hönnun og listiðnaði í Ketilhúsinu sem "Hanverk og hönnun" hefur skipulagt í samvinnu við Menningarmiðstöðina í Listagili og Akureyrarstofu.

Lesa meira
 
IngaEydal

Tónleikahelgi á Græna hattinum - 25.11.2009

Græni hatturinn er löngu orðinn landsþekktur tónleikastaður. Þar ríkir einatt afar góð stemning og boðið er upp á tónleika með mörgum bestu tónlistamönnum landsins. Dagskráin um komandi helgi er að venju glæsileg: Á fimmtudagskvöld heldur Inga Eydal útgáfutónleika, á föstudagskvöld mætir Jón Ólafsson á sviðið og fær Stefán Hilmarsson í heimsókn og á laugardagskvöld er boðið upp á tónleika með hljómsveitinni Hjaltalín og fleirum. Lesa meira
 
Heilsugæslustöðin á Akureyri

Bóluefni á þrotum - 24.11.2009

Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri: Vegna seinkunar á afhendingu bóluefnis til landsins er Heilsugæslustöðin á Akureyri uppiskroppa með bóluefni í bili. Af þeim sökum neyðumst við til að fresta áætlaðri bólusetningu um viku frá og með fimmtudeginum 26. nóvember.

Lesa meira
 
Grimsey27okt09_8

Leikskóladeild í Grímsey - 23.11.2009

Skólanefnd Akureyrar samþykkti í síðustu viku tillögu um að stofnuð verði leikskóladeild við Grunnskólann í Grímsey. Deildin verður til að byrja með opin í fjóra tíma fjóra daga vikunnar og er reiknað með að starfstími hennar verði eins og í grunnskólanum. Samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðaráætlun rúmast reksturinn innan fjárhagsáætlunar skólans. Leikskóladeildin í Grímsey tekur til starfa 1. janúar 2010. Lesa meira
 
Tonak_Hjorleifur

Mynd um íslenskt tónlistaruppeldi - 21.11.2009

Föstudaginn 26. nóvember verður frumsýnd í kvikmyndahúsum víðsvegar um Þýskaland ný heimildarmynd um íslenska tónlist, tónlistarskóla og tónlistaruppeldi. Hið frábæra starf sem unnið er í skólum landsins hefur á undanförnum árum vakið töluverða athygli erlendis. Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.

Lesa meira
 
Holmasol_floskuskeyti2

Drasl, dýrgripir og flöskuskeyti - 19.11.2009

Í nýjasta tölublaði Skólaakurs, veftímarits skóladeildar Akureyrarbæjar, segir meðal annars frá því að nemendur og starfsfólk í Hríseyjarskóla hafi ákveðið að taka þátt í athafnavikunni sem nú stendur yfir og gera það undir kjörorðinu "Frá drasli að dýrgrip". Safnað hefur verði alls kyns rusli í skólanum og heima fyrir og verður unnið að því að búa til dýrgripi úr öllu saman.

Lesa meira
 
Aflid_logo

Lilja og Aflið - 19.11.2009

Leikfélag Akureyrar gefur Aflinu, samtökum gegn kynferðis og heimilisofbeldi allan ágóða af aðgangseyri á sýningunni Lilju í kvöld, fimmtudaginn 19. nóvember. Þetta er í annað sinn sem Leikfélagið gefur Aflinu fjármuni, enda annað árið í röð sem LA tekur til sýninga verk sem tengjast með beinum eða óbeinum hætti starfsvettvangi Aflsins.  Lesa meira
 
kvikmyndir

Stuttmyndahátíðin Stulli - 19.11.2009

Stuttmyndahátíðin Stulli verður haldin hátíðleg í þriðja sinn 5. desember næstkomandi. Það er Ungmenna-Húsið ásamt félagsmiðstöðvum Akureyrarbæjar, Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Langanesbyggðar sem standa að hátíðinni en þar gefst ungu fólki á aldrinum 14-25 ára kostur á að spreyta sig við gerð stuttmynda. Lesa meira
 
Brynhildur_Katrin

Gásir í nýrri spennusögu - 18.11.2009

Barnabókin Gásagátan eftir hinn vinsæla barnabókarithöfund Brynhildi Þórarinsdóttur er komin út. Af því tilefni var Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, afhent eintak af bókinni á degi íslenskrar tungu og fæðingardegi barnabókarithöfundarins Jóns Sveinssonar, Nonna. Lesa meira
 
Athafnavika09

Drifkraftur og athafnasemi í Ketilhúsinu - 18.11.2009

Alþjóðleg athafnavika er haldin á Íslandi 16.-22. nóvember í samstarfi fjölmargra aðila og verður á þeim tíma forvitnileg dagskrá haldin á Amtsbókasafninu, í Ketilhúsinu og Háskólanum á Akureyri. Í fréttatilkynningu um dagskrána segir: Lausn vandamála felst í athafnasemi. Með Alþjóðlegri athafnaviku á Íslandi geta allir lagt hönd á plóg við að færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins.

Lesa meira
 
NonnaAfmaeli09_8

Notalegt afmæliskaffi - 17.11.2009

Barnabókahöfundurinn séra Jón Sveinsson, Nonni, var fæddur 16. nóvember líkt og listaskáldið góða Jónas Hallgrímsson og var af því tilefni boðið til afmælisveislu í Nonnahúsi í Innbænum. Þar mættu um 50 manns og áttu notalega stund í gamla húsinu, hlýddu á Hauk Ingimarsson leika á harmonikku og stungu saman nefjum. Lesa meira
 
DagurIslenskrarTungu09_4

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar - 16.11.2009

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2009 voru afhent á hátíðardagskrá í Ketilhúsinu á Akureyri. Auk þess voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Þorsteini frá Hamri Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2009.

Lesa meira
 
LA_Lilja

Mansal á Íslandi – viðbrögð? - 16.11.2009

Leikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi um mansal í Ketilhúsinu á Akureyri þriðjudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Málþingið hefur hlotið yfirskriftina Mansal á Íslandi – viðbrögð? Tilgangurinn er meðal annars sá að inna yfirvöld eftir því hvernig brugðist verði við málum sem þessum, en stuðla að því við að almenningur fái leiðbeiningar um hvernig hægt sé að koma auga á hugsanlega brotaþola mansals og upplýsingar um rétt viðbrögð. Lesa meira
 
Nonni

Afmælisveisla í Nonnahúsi - 16.11.2009

Viltu koma í afmæli í Nonnahús? Í dag, mánudaginn 16. nóvember, eru liðin 152 ár frá fæðingu barnabókahöfundarins Jóns Stefáns Sveinssonar – Nonna. Af því tilefni verður afmælisveisla í Nonnahúsi milli kl. 17 og 19. Afmælisbarnið er fjarverandi en verk þess lifa góðu lífi. Lesa meira
 

Dagur íslenskrar tungu - 16.11.2009

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur í Ketilhúsinu á Akureyri á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir hátíðardagskrá frá kl. 16-17 og eru allir velkomnir.

Lesa meira
 
Jolakottur09_3

Jólakötturinn á Ráðhústorgi - 13.11.2009

Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi laugardaginn 28. nóvember og þá um leið verður afhjúpað listaverkið Jólakötturinn sem verður á torginu fram að jólum. Jólatréð er sem fyrr gjöf frá vinabænum Randers í Danmörku en Jólaköttinn smíðaði ungt fólk úr Fjölsmiðjunni undir leiðsögn Aðalheiðar Eysteinsdóttur og er hann í anda hinna þekktu tréskúlptúra hennar. Lesa meira
 
GrandPrincess2

Umferðaröryggisáætlun - 13.11.2009

Nýlega undirritaði Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri samning Akureyrarbæjar og Umferðarstofu þar sem Akureyrarbær skuldbindur sig til að gera sérstaka umferðaröryggisáætlun. Markmiðið er að auka öryggi allra vegfarenda og að fækka óhöppum og slysum í umferðinni. Lesa meira
 
Akureyri11nov09_6

Fagur dagur - 11.11.2009

Einstaklega fagurt veður hefur verið á Akureyri í dag, eins og svo marga undanfarna daga. Birtan í morgun var einstök þegar sólin skreið upp yfir brún Vaðlaheiðar og litbrigðin hreint ótrúleg. Meðfylgjandi myndir tala sínu máli. Lesa meira
 
mattiasJochumsson

Afmælisveisla á Sigurhæðum - 11.11.2009

Matthías Jochumsson, sem byggði Sigurhæðir og bjó þar til æviloka, var fæddur 11. nóvember árið 1935. Í dag eru því liðin 174 ár frá fæðingu hans. Þess verður minnst á Sigurhæðum. Þar verður opið hús frá 16.00-18.00. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti að gömlum íslenskum sið, en einnig verða stofutónleikar. Um 16.30 syngur eldri barnakór Akureyrarkirkju og nemendur úr Tónlistarskóla Akureyrar leika nokkur lög. Lesa meira
 
SN2009

Prokofieff, Wagner og Beethoven í Glerárkirkju - 10.11.2009

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða í Glerárkirkju sunnudaginn 15. nóvember kl. 16.00. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir S. Prokofieff, R. Wagner og L.van Beethoven. Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Lesa meira
 
Athafnavika09

Alþjóðleg athafnavika á Íslandi - 10.11.2009

Alþjóðleg athafnavika er haldin á Íslandi 16.-22. nóvember í samstarfi fjölmargra aðila og verður á þeim tíma forvitnileg dagskrá haldin á Amtsbókasafninu, í Ketilhúsinu og Háskólanumá Akureyri. Í fréttatilkynningu um dagskrána segir: Lausn vandamála felst í athafnasemi. Með Alþjóðlegri athafnaviku á Íslandi geta allir lagt hönd á plóg við að færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins.

Lesa meira
 
Sigurhaedir_GisliSigurgeirs

Námskeið um Sögu Akureyrar - 9.11.2009

Síðdegis í dag, mánudag, hefst námskeið um sögu Akureyrar, sem Jón Hjaltason stýrir. Námskeiðið verður haldið á Sigurhæðum og hefst klukkan 17:00. Jón hefur þegar sent frá sér fjögur bindi um sögu bæjarins og það fimmta er á leiðinni. Þetta verður fróðlegt námskeið hjá Jóni, sem að hluta til verður með gönguferð um söguslóðir. Lesa meira
 
GudmansMinde2_Viljayfirlys_nov09

Starfsemi í Gamla spítalanum - 6.11.2009

Senn hefst að nýju starfsemi í Gamla spítalanum, öðru nafni Gudmanns Minde, í Innbænum á Akureyri en húsið hefur allt verið gert upp með glæsilegum hætti. Stefnt er að því að í húsinu verði sýningar um sögu lækninga og hjúkrunar. Sýningarnar verða opnar almenningi yfir sumartímann og aðra tíma samkvæmt samkomulagi. Eigandi og ábyrgðaraðili hússins er Fasteignir Akureyrarbæjar og umsjón með rekstri og starfsemi fyrir hönd bæjarins er í höndum Akureyrarstofu. Lesa meira
 
Lifdisill_nov09_HJT

Lífdísill á strætó - 6.11.2009

Í gær var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf Orkeyjar ehf., Mannvits og Akureyrarbæjar um að einn af strætisvögnum bæjarins verði í tilraunaskyni knúinn af lífdísil sem Orkey framleiðir úr úrgangs steikningarolíu og annarri úrgangsfitu. Verksmiðja Orkeyjar á Akureyri mun taka til starfa í bænum um næstu áramót og lýsir Akureyrarbær yfir eindregnum stuðningi við verkefnið.

Lesa meira
 
NPP_2007_2013

Breytt samfélag - öldruðum fjölgar - 4.11.2009

Öldrunarheimili Akureyrar eru þátttakendur í Evrópusambandsverkefni um öldrunarmál. Markmið þess er að þróa leiðir til að bregðast við fyrirsjáanlegum auknum fjölda aldraðra, hlutfallslega minni fjárframlögum og væntanlegum erfiðleikum við að fá starfsfólk til starfa í öldrunarþjónustu í framtíðinni.

Lesa meira
 
KEA_MV_afhending09

Menningar- og viðurkenningasjóður KEA - 4.11.2009

Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon og framkvæmdstjóri KEA, Halldór Jóhannsson afhentu í gær styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta var í 76. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Listasafninu á Akureyri. Lesa meira
 
Aflid_logo

Tónleikar til styrktar Aflinu - 3.11.2009

Tónleikar til styrktar Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða haldnir í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20.00. Fram koma Karlakór Akureyrar-Geysir, Friðrik Ómar, Óskar Pétursson, Inga Eydal, Hundur í óskilum og Heimir Ingimarsson. Kynnir kvöldsins verður Bryndís Ásmundsdóttir leik- og söngkona.

Lesa meira
 
EinarKara29mars07

Námskeið í Sturlungu - 3.11.2009

Skáldið og sagnameistarinn, Einar Kárason, verður með námskeið um Sturlungu á Sigurhæðum um næstu helgi. Námskeiðið hefst með "upphitun" á föstudagskvöldið klukkan 20 en síðan hefst leikurinn fyrir alvöru klukkan 10 á laugardaginn og stendur fram eftir degi. Í hádeginu verður boðið upp á velling og slátur að gömlum íslenskum sið.

Lesa meira
 
Diddu,_Oskar_og_Johann_Fridgeir

Frá suðri til norðurs með sópran í eftirdragi - 2.11.2009

Sunnudaginn 8. nóvember kl. 17 bjóða Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Óskar Pétursson til söngskemmtunar í Akureyrarkirkju undir yfirskriftinni „Frá suðri til norðurs með sópran í eftirdragi!“. Efnisskráin er sú hin sama og var í Íslensku óperunni í september sl. þegar skemmt var fyrir troðfullu húsi. Jónas Þórir, píanóleikari, verður meðleikari söngvaranna á tónleikunum.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica