Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Hrisey_ljodilaug

Ljóð í laug - 29.10.2009

Undanfarna daga hafa nemendur í Grunnskólanum í Hrísey unnið að verkefninu "Ljóð í laug". Verkefnið fólst í því að nemendur ortu og myndskreyttu ljóð sem tengjast hafinu á einhvern hátt. Ljóðin voru síðan plöstuð og þau afhent starfsmanni Íþróttamiðstöðvarinnar í Hrísey við hátíðlega athöfn í skólasundi.

Lesa meira
 
Krulla_Garpar09

Garpar bikarmeistarar í krullu 2009 - 29.10.2009

Í gærkvöldi lauk Bikarmóti Krulludeildar Skautafélags Akureyrar með úrslitaleik. Þar áttust við tvö lið úr röðum Krulludeildarinnar, Garpar og Fífurnar, en alls tóku átta lið þátt í mótinu. Lesa meira
 
SagaGaggans_MagnusBaldvinBernhard

Gagginn og Heimkoman á Sigurhæðum - 29.10.2009

Í dag, fimmtudag, er opið hús frá kl. 14-16 á Sigurhæðum til að fagna bók sem hefur að geyma sögu Gagnfræðaskólans á Akureyri. Þar verða ritnefndarmennirnir Bernharð Haraldsson, Magnús Aðalbjörnsson og Baldvin Bjarnason til staðar, til skrafs um verkið og gamlar “prakkarasögur” úr Gagganum.

Lesa meira
 
Grimsey27okt09_4

Góður dagur í Grímsey - 28.10.2009

Það var nokkuð gestkvæmt í Grímsey í gær þegar þangað komu í blíðskaparveðri læknir frá Akureyri, þrír fulltúar frá Akureyrarbæ, hafnarstjóri sveitarfélagsins, starfsmaður Siglingamálastofnunar og fréttafólk frá Sjónvarpinu. Fyrir voru í eyjunni tveir starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar. Fulltrúi Akureyrarstofu rölti um eyjuna og tók myndir af því sem fyrir augu bar á meðan aðrir sátu fundi eða sinntu öðrum störfum sínum.

Lesa meira
 
UlfhildurDags_augamanray(2)

Hetjur, skrímsli og skattborgarar - 27.10.2009

Föstudaginn 30. október nk. kl. 14.50 flytur Úlfhildur Dagsdóttir fyrirlesturinn "Hetjur, skrímsli og skattborgarar - lesið í myndmál hversdagsins" í stofu M01 í Vermenntaskólanum. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Í fyrirlestrinum, sem er fyrst og fremst í myndrænu formi, verður fjallað um myndmál og myndlæsi og notast við dæmi úr íkea-bæklingum, auglýsingum og myndasögum, auk annars sem til fellur.

Lesa meira
 
Barnadraumar

Draumar barna á Minjasafninu - 23.10.2009

Nú þegar skammdegið færist yfir er ekki úr vegi að láta sig dreyma og ekki verra að ganga í barndóm. Börn ættu því að taka með sér fullorðna og líta inn á Minjasafnið á Akureyri nk. laugardag, fyrsta vetrardag. Þá verður opnuð sýningin Barnadraumar á Minjasafni en hún byggist á rannsóknum dr. Bjargar Bjarnadóttur sálfræðings hjá Draumasetrinu Skuggsjá. Lesa meira
 
Sigurhaedir_GisliSigurgeirs

Lifnar yfir Sigurhæðum - 23.10.2009

Um árabil stóð Erlingur Sigurðarson fyrir margvíslegri menningarstarfsemi á Sigurhæðum, í húsi Matthíasar Jochumssonar, en síðustu ár hafa þar sjaldan sést ljós í glugga. Undanfarna daga hefur orðið breyting þar á því hafin er tilraun til að "gæða húsið nýju lífi" og hefur Gísli Sigurgeirsson tekið að sér að vera þar "húsbóndi" í vetur. Lesa meira
 
Listasafnid_Evudaetur

Opnun í Listasafninu - 22.10.2009

Laugardaginn 24. október kl. 15 verður sýningin Evudætur opnuð í Listasafninu á Akureyri en þar eru á ferðinni þær stöllur Þórunn Elísabet Sveinsdóttir (Tóta), Þorbjörg Halldórsdóttir (Tobba) og Hrafnhildur Arnardóttir. Þessar vinkonur unnu allar um skeið hjá Fríðu frænku þar sem gamlir hlutir ganga í endurnýjum lífdaga og andi hins liðna svífur yfir vötnum. Þær eiga einnig sameiginlegt að vinna með fundna hluti og alls konar lífræn og ólífræn efni og aðferðir. Lesa meira
 
BA_2009_champ

Akstursíþróttamaður ársins - 21.10.2009

Ragnar S. Ragnarsson var á Októberfesti Bílaklúbbs Akureyrar um síðustu helgi kjörinn "Akstursíþróttamaður Bílaklúbbs Akureyrar 2009". Ragnar varð Íslandsmeistari í MC flokki að loknu yfirstandandi tímabili og það í þriðja skiptið í röð. Ragnar hefur einnig sett fimm Íslandsmet frá 2003 og á núgildandi met sem er 12.20 sek. á 113 mílum. Lesa meira
 
jafnretti

Hádegisverðarfundur um jafnréttismál - 21.10.2009

Kvennafrídagurinn er laugardaginn 24. október og af því tilefni bjóða Akureyrarbær og Jafnréttisstofa til hádegisverðarfundar föstudaginn 23. október á Hótel KEA frá kl. 12.00-13.30. Fjallað verður um jafnréttismál á Akureyri og jafnréttisfræðslu í leik- og grunnskólum. Lesa meira
 
Islensk_samtimahonnun09

Íslensk samtímahönnun í Ketilhúsinu - 21.10.2009

Sýningin Íslensk hönnun 2009 - Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr verður opnuð laugardaginn 24. október kl. 14 í Ketilhúsinu á Akureyri. Sýningin endurspeglar íslenska samtímahönnun í þeim greinum sem hafa einna mest áhrif á mótun manngerðs umhverfis. Henni er ætlað að vera spegill þess sem telja má gæði í íslenskri hönnun undanfarin ár og er liður í markvissri kynningu og markaðssetningu á íslenskri hönnun innanlands sem utan. Lesa meira
 

Vestnorden 2010 á Akureyri - 19.10.2009

Fimmtudaginn 15.október var tilkynnt að ferðakaupstefnan Vestnorden verður haldin á Akureyri árið 2010 en hún er samstarfsverkefni Grænlands, Færeyja og Íslands og haldin árlega, til skiptis á Íslandi og Danmerku (áður Færeyjum og Grænlandi). Síðast var kaupstefnan haldin á Akureyri árið 2002 og orðið löngu tímabært að hún komi hingað aftur.

Lesa meira
 
LA_Saganafdatanum

Sagan af dátanum í Samkomuhúsinu - 16.10.2009

Laugardaginn 17. október kl. 16.00 mun Leikfélag Akureyrar í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sýna í Samkomuhúsinu á Akureyri leikhúsverkið Sagan af dátanum eftir Igor Stravinsky. Verkið er samið fyrir litla hljómsveit, þrjá leikara og dansara. Sagan segir frá hermanninum Jósef sem er á leið heim í frí. Lesa meira
 
Giljask_ssbyggir

Styttist í opnun íþróttamiðstöðvar - 16.10.2009

Tilboð í að ljúka framkvæmdum við íþróttamiðstöðina við Giljaskóla voru opnuð í byrjun október. Tilboð bárust frá 12 aðilum og voru þau öll undir kostnaðaráætlun hönnuða. Verkið felur í sér fullnaðarfrágang á byggingunni, innan sem utan, og frágang á lóð.

Lesa meira
 
Laufas2005a

Haustverkin í Laufási - 16.10.2009

Hefur þú séð hvernig kindahausar eru sviðnir? Hefur þú fylgst með alvöru sláturgerð? Hefur þú smakkað heimagerða kæfu, slátur, kartöflurúgbrauð eða fjallagrasamjólk? Ef ekki þá er tilvalið að leggja leið sína í Gamla bæinn í Laufási laugardaginn 17. október milli kl. 13.30 og 16 til þess upplifa gamla tíð með öllum skynfærum. Lesa meira
 
listasumar_logo_svhv

Listasumar 2010 á Akureyri - 15.10.2009

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í Listasumri 2010 á Akureyri og er umsóknarfrestur til 15. desember 2009. Þetta verður í 18. sinn sem Listasumar er haldið en það hefur verið ómissandi þáttur í menningar- og listalífsflóru Akureyrar og ávallt sett líflegan og hátíðlegan svip á bæjarlífið.

Lesa meira
 
Bangsi2

Áttu sniðugan bangsa? - 15.10.2009

Senn líður að Alþjóðlega bangsadeginum á Amtsbókasafninu en undanfarin ár hefur hann verið haldinn hátíðlegur á safninu í heila viku. Að þessu sinni verður efnt til sérstakrar bangsasýningar og eru bæjarbúar hvattir til að lána safninu bangsa sem þeir hugsanlega eiga og bera með sér sérstök þjóðareinkenni.

Lesa meira
 
Listasafnid_Urvalid

Síðasta sýningarvika í Listasafninu - 15.10.2009

Sunnudaginn 18. október lýkur sýningunni „Úrvalið: íslenskar ljósmyndir 1866–2009" í Listasafninu á Akureyri. Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari hefur valið verk eftir þrettán kollega sína á sýninguna, og skrifar jafnframt um þá, sem og rökin fyrir vali sínu, í texta sem birtist í vandaðri sýningarskrá. Lesa meira
 
Nagrannavarsla

Nágrannavarsla á Akureyri - 15.10.2009

Kynningarfundur um nágrannavörslu á Akureyri verður haldinn í Brekkuskóla í kvöld, fimmtudaginn 15. október, kl. 20.00 en átakinu var ýtt úr vör hér í bæ undir lok ágústmánaðar þegar íbúar Beykilundar tóku höndum saman um nágrannavörslu í sinni götu.

Lesa meira
 
Akureyri_agust09

Nýjustu fréttir af svínainflúensu á Akureyri - 14.10.2009

Svínainflúensan hefur stungið sér niður á Akureyri og má sjá verulega aukningu í inflúensutilfellum. Að mati sóttvarnarlæknis má öruggt telja að þeir sem eru með hita og almenn flensueinkenni séu með svínainflúensu. Ekki er ástæða til að að taka sýni því til staðfestingar nú þegar lítið annað kemur til greina.

Lesa meira
 
Hetjurnar-logo

Hetjurnar tíu ára - 13.10.2009

Hetjurnar, félag langveikra barna á Norðurlandi, fagna tíu ára afmæli sínu þann 13. október. Félagsmenn ætla að koma saman í sal Glerárkirkju á afmælisdaginn og gera sér glaðan dag.

Lesa meira
 

Fjármögnun til menningarstarfs - 12.10.2009

Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra. Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki? Föstudaginn 16. október kl. 13-16 verður haldin sérstök kynning á Norræna menningarsjóðnum í Ketilhúsinu á Akureyri.

Lesa meira
 
akureyrarakademian_1

Hátíð í gamla Húsmæðraskólanum - 12.10.2009

Hinn 13. október 1945 var húsnæði Húsmæðraskólans á Brekkunni á Akureyri vígt. Síðan þá hefur ýmis starfsemi farið fram í húsinu og í dag á AkureyrarAkademían þar skjól en húsið sjálft er í eigu Akureyrarbæjar og ríkisins. Þriðjudaginn 13. október ætlar AkureyrarAkademían, af þessu tilefni, að bjóða til samkvæmis í gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti 99 og hefst gleðskapurinn kl. 16.

Lesa meira
 
Víðilundur

Haustmarkaður í Víðilundi - 8.10.2009

Haustmarkaður verður haldinn í þjónustu-og félagsmiðstöðinni Víðilundi 22 föstudaginn 9. október frá kl. 10-16. Á markaðinum verður meðal annars til sölu alls kyns heimagerður varningur á góðu verði. Auk þess verða seldar kaffiveitingar í sal Víðilundar frá kl. 13.30-15.30. Lesa meira
 
Domulegirdekurdagar

Dömulegir dekurdagar um helgina - 7.10.2009

Dömulegir dekurdagar verða haldnir á Akureyri öðru sinni helgina 9. - 11. október. Þetta er helgi þar sem vinkonur, systur, mæðgur, frænkur og vinnufélagar njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman.

Lesa meira
 
oddeyri2-x

Breytingar á niðurgreiðslum - 7.10.2009

Hinn 30. september sl. kom skólanefnd Akureyrarbæjar saman til fundar og var eftirfarandi bókun um breytingar á niðurgreiðslum vegna daggæslu í heimahúsum samþykkt.
Lesa meira
 
LA_Lilja

Lilja frumsýnd á föstudag hjá LA - 7.10.2009

Föstudaginn 9. október frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritið Lilja eftir Jón Gunnar Þórðarson en verkið er lauslega byggt á kvikmynd Lukas Moodyssons, Lilya 4 ever, sem segir frá sönnum atburðum. Lesa meira
 
Akureyri_agust09_2

Afkoman betri en ráð var fyrir gert - 7.10.2009

Frumvarp að endurskoðaðri fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2009 var lagt fram í bæjarstjórn í gær. Þrátt fyrir þrengingar í efnahagslífi þjóðarinnar má greina ýmis jákvæð teikn í áætluninni, svo sem auknar útsvarstekjur og bætta afkomu miðað við það sem áður hafði verið gert ráð fyrir.

Lesa meira
 
Maturinn2009

12-14 þúsund gestir á MATUR-INN - 6.10.2009

Sýningin MATUR-INN fór fram í fjórða sinn um helgina. Sýningin var haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri og var fjölsótt. Aðgangur var ókeypis og mikilll straumur gesta báða sýningardagana. Áætlað er að 12-14 þúsund gestir hafi komið á sýninguna en hún var haldin af félaginu Mat úr Eyjafirði í góðu samstarfi við Matarkistuna Skagafjörð og Þingeyska matarbúrið. Lesa meira
 
Rosenborg3

Stuttmyndanámskeið - 6.10.2009

Ungmenna-Húsið og félagsmiðstöðvar í hverfum Akureyrar, ásamt félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum í Fjallabyggð, Dalvík, Norðurþingi, Langanesbyggð og Þingeyjarsveit bjóða nú alhliða námskeið í stuttmyndagerð á tveimur dögum. Farið verður yfir handritsgerð, kvikmyndatöku, leikstjórn og klippingu. Kennslan er í höndum Kristjáns Kristjánssonar sem gerði m.a. Venna Páer þættina.

Lesa meira
 
sinfo

Vetrardagskrá sinfóníunnar - 2.10.2009

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er um þessar mundir að hefja sitt 17. starfsár. Frá stofnun hljómsveitarinnar hefur mikið áunnist, tónleikum fjölgað og starfsemin aukist til muna. Miklar breytingar eru framundan hjá SN því þetta verður síðasta árið fyrir flutning hljómsveitarinnar í Menningarhúsið HOF. Efnisskrá vetrarins verður fjölbreytt. Lesa meira
 
Alexandra_Chernishova

Rachmaninov í Ketilhúsinu - 1.10.2009

Fyrstu Föstudagsfreistingar Tónlistarfélagsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili verða í Ketilhúsinu, föstudaginn 2. október kl. 12.15. Þar munu Alexandra Chernyshova sópran og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja sönglög eftir Sergei Rachmaninov.

Lesa meira
 
Ak_sept2505_1

Auglýsing um styrki - 1.10.2009

Félagsmálaráð og samfélags- og mannréttindaráð úthluta tvisvar á ári styrkjum til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverkum þeirra. Styrkir samfélags- og mannréttindaráðs ná til forvarnamála, jafnréttismála og æskulýðs- og tómstundamála. Félagsmálaráð stýrir fölbreyttri velferðarþjónustu á vegum Akureyrarbæjar. Styrkir eru m.a. veittir til félagasamtaka og einstaklinga sem starfa á sviði félags- og heilbrigðismála. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica