Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Maturinn2009

MATUR-INN 2009 í Íþróttahöllinni - 30.9.2009

Sýningin MATUR-INN verður haldin um næstu helgi, 3.-4. október, og er aðgangur ókeypis. Sýningin hefur verið haldin á tveggja ára fresti og fram að þessu verið í Verksmenntaskólanum á Akureyri en ljóst var eftir sýninguna árið 2007 að færa þyrfti viðburðinn í stærra hús, enda gestafjöldinn yfir 10 þúsund! Því verður sýningin nú á 800 fermetra svæði í Íþróttahöllinni á Akureyri. Lesa meira
 
Forvarnardagurinn2009

Forvarnardagurinn 2009 - 30.9.2009

Forvarnardagur 2009 er haldinn í öllum grunnskólum landsins í dag, miðvikudaginn 30. september. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Lesa meira
 

Aðalfundur hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis - 29.9.2009

Miðvikudaginn 30. september kl. 20 verður aðalfundur Hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis haldinn á sal Lundarskóla. Á dagskrá verða venuleg aðalfundarstörf sem og umræður um nágrannavörslu, stígagerð og skipulagsmál í hverfinu. Léttar veitingar í boði og geta má þess að í stjórn nefndarinnar eru laus sæti fyrir áhugasama aðila.

Lesa meira
 
Trearsins_Kjarnaskogi

Tré ársins er í Kjarnaskógi - 28.9.2009

Tré ársins 2009 er hengibjörk (Betula pendula) í Kjarnaskógi á Akureyri. Hengibjörk er fágæt trjátegund hérlendis og er tréð í Kjarnaskógi sérlega glæsilegur fulltrúi tegundarinnar.

Lesa meira
 
Utsvar_-_minni

Akureyri keppir annað kvöld - 25.9.2009

Lið Akureyrar í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, mætir liði Borgarbyggðar annað kvöld, laugardagskvöldið 26. september, í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Fyrir hönd Akureyringa keppa að þessu sinni þau Erlingur Sigurðarson, Hilda Jana Gísladóttir og Pálmi Óskarsson. Lesa meira
 
Framleidumhugmyndir

Framleiðum hugmyndir um land allt - 24.9.2009

Hugmyndasamkeppnin Framleiðum hugmyndir er annar áfangi verkefnis N1, Start09 sem hófst með hugmyndafundi í Borgarleikhúsinu í júní. Markmiðið er að hvetja fólk og fyrirtæki til nýrrar sóknar og uppbyggingar um allt land og leysa nýjar hugmyndir úr læðingi. Lesa meira
 
Biodagar_Glerarkirkju

Bíódagar í Glerárkirkju - 24.9.2009

Fjögur fræðslukvöld um kvikmyndir verða í Glerárkirkju næstu miðvikudagskvöld. Dagskráin hefst hvert kvöld kl. 19 í safnaðarsalnum. Fyrsta kvöldið verður 30. september. Þá mun sr. Árni Svanur Daníelson fjalla um hvernig trú og trúarstef birtast í kvikmyndum. Máli sínu til stuðnings verður hann með mikið af sýnidæmum. Lesa meira
 
AkureyriRokkar2009

Akureyri rokkar 2009 tókst vel - 24.9.2009

Tónlistarhátíðin Akureyri rokkar var haldin í Ungmenna-Húsinu um liðna helgi. Alls spreyttu sig hvorki fleiri né færri en 10 rokkhljómsveitir á föstudags- og laugardagskvöld. Stemningin var afar góð og gestir hátt í þrjú hundruð. Lesa meira
 
Samningar_thor_ka_2009_320

KEA styrkir KA og Þór - 24.9.2009

Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, hefur skrifað undir styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar (KA). Um er að ræða heildarsamninga sem taka til allra deilda félaganna og gilda þeir til eins árs. Lesa meira
 
Naustaborgir170809_2

Frumkvæði í útivistarmálum - 23.9.2009

Um síðustu helgi var þremur frumkvöðlum í útivistarmálum á Akureyri veitt viðurkenning fyrir starf sitt. Það var félagsskapurinn SAUMÓ sem veitti viðurkenningarnar en hann samanstendur af áhugamönnum um útivist og uppbyggilegar athafnir, eins og segir í fréttatilkynningu. Viðurkenningin sem veitt var kallast "Vegvísirinn" og hann hlutu: Lesa meira
 
naustaborgir_002

Ný leið að Naustaborgum - 22.9.2009

Í samræmi við gildandi skipulag hefur aðkoman að Naustaborgum nú verið færð frá Sómatúni yfir í Ljómatún og gerð ný bílastæði þar. Um síðustu helgi var skilti sem vísar á Naustaborgir fært frá horni Sómatúns yfir að Ljómatúni. Lesa meira
 
IngvarESigurdsson

Djúpið sýnt í Samkomuhúsinu - 22.9.2009

Einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla Jónasson verður sýndur í Samkomuhúsinu á fimmtudag og föstudag. Þar gefst áhorfendum kostur á að sjá einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Ingvar E. Sigurðsson, í mögnuðu verki. Einleikurinn var heimsfrumsýndur í Skotlandi í apríl sl. og fékk frábærar viðtökur og fjögurra stjörnu leikdóm í The Scotsman.

Lesa meira
 

Námskeið í Punktinum - 21.9.2009

Nú eru að hefjast alls kyns skemmtileg og gagnleg námskeið í Punktinum í Rósenborg, möguleikamiðstöð. Kennir þar ýmissa grasa, allt frá námskeiðum í fluguhnýtingum, vattarsaumi, þæfingu, leikfangasmíði og lopapeysuprjóni. Lesa meira
 
menningarhus

Samkeppni um lýsingu - 21.9.2009

Efnt hefur verið til samkeppni um lýsingu í forsal Menningarhússins Hofs. Markmið samkeppninnar er að laða fram lausnir á lýsingu sem sameinar í senn listræna útfærslu á rýminu og notagildi og áhersla er lögð á að hugmyndir og keppnistillögur undirstriki arkitektúr hússins og aðra umhverfisþætti.

Lesa meira
 
Rosenborg3

Samstarf Tónak og Rósenborgar - 18.9.2009

Veturinn 2009-2010 eru Tónlistarskólinn á Akureyri og Ungmennahús í Rósenborg, möguleikamiðstöð, í tilraunaverkefni með samstarf. Tónlistarskólinn fær kennsluaðstöðu í Rósenborg og getur pantað tónleikasal eða aðra aðstöðu sem í boði er þar. Í staðinn ætlar tónlistarskólinn að vera með fjölbreytta tónlistarviðburði í Ungmennahúsinu.

Lesa meira
 
Akureyri_agust2008

Nemar frá Austurríki - 17.9.2009

Í tíu leikskólum á Akureyri eru nú 33 leikskólakennaranemar frá Secondary Training College for Kindegarten Teachers in Mistelbach, Austurríki. Nemarnir eru komnir hingað með styrk frá Leonardo verkefninu.

Lesa meira
 
MA_001

Betra Þórunnarstræti - 16.9.2009

Nú er unnið að bættri aðkomu að bílaplani nemenda Menntaskólans á Akureyri og sameiginlegri heimavist MA og VMA. Búið er að helluleggja eyjur og koma fyrir beygjurein eða "vasa" á Þórunnarstræti, auk þess sem gatan hefur verið malbikuð (yfirbrædd) á stóru svæði. Lesa meira
 
Listigardinum09_Beate

List í garðinum - 15.9.2009

Á Akureyrarvöku var opnuð myndlistarsýning í Lystigarðinum undir yfirskriftinni "List í garðinum". Þar sýna níu listamenn verk sín og stendur sýningin út september. Fátt er indælla en að fá sér göngutúr um Lystigarðinn núna þegar haustlitirnir eru að koma fram og skoða um leið fjölbreytileg verk sem dreift hefur verið um svæðið. Lesa meira
 
LassiHeininen

Átakalítill risi í vanda? - 15.9.2009

Miðvikudaginn 16. september heldur Dr. Lassi Heininen fyrirlestur á Félagsvísindatorgi við Háskólann á Akureyri sem hann nefnir "Evrópusambandið – átakalítill risi í vanda?" Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu L 201 á Sólborg við Norðurslóð og hefst kl. 12.00.

Lesa meira
 
Andanefjur_170908_2

Andanefjurnar komnar aftur! - 11.9.2009

Tvær andanefjur sáust í Pollinum í morgun en flestir voru orðnir úrkula vonar um að þær kæmu aftur. Þessir fallegu hvalir glöddu bæjarbúa og gesti bæjarins síðasta sumar og mættu þá til leiks nokkru fyrr en nú, eða fljótlega upp úr verslunarmannahelgi. Lét Akureyrarstofa meðal annars búa til upplýsingaskilti um hvalategundina sem hanga enn uppi við Drottningarbrautina fólki til fróðleiks.
Lesa meira
 
HuniII

Skólakrakkar í Húna II - 11.9.2009

Nemendur í 6. bekk grunnskólanna á Akureyri fara á haustdögum í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Það eru Hollvinir Húna II sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Skóladeild Akureyrarbæjar með stuðningi frá Saga Capital. Lesa meira
 

Hverfishátíð við Glerárskóla - 10.9.2009

Laugardaginn 12. september verður haldin hverfishátíð við Glerárskóla í samstarfi hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis og Foreldrafélags Glerárskóla. Nemendur í Glerárskóla og hverfisbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að mæta og skemmta sér saman. Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri og hafa mér sér garðstóla og teppi. Lesa meira
 
Akureyri_juli09

Upplýsingamiðstöðin vinsæl - 8.9.2009

Á fundi stjórnar Akureyrarstofu 2. september sl. var farið yfir þjónustu upplýsingamiðstöðvarinnar í sumar, reksturinn það sem af er ári og stefnu til framtíðar. Mikil aukning varð á gestakomum í miðstöðina, í júlí komu að meðaltali 856 manns á dag í samanburði við 678 gesti í júlí 2008. Lesa meira
 
Amtsbókasafnið - nýbygging mars 2004

Alþjóðadagur læsis á Akureyri - 4.9.2009

Að frumkvæði Háskólans á Akureyri og Amtsbókasafnsins á Akureyri var ákveðið að taka nú í fyrsta sinn þátt í alþjóðadegi læsis 8. september til að leggja áherslu á mikilvægi læsis til gagns og gamans og þann auð sem þjóðin á í vel menntuðu fólki.

Lesa meira
 
evropskim

Evrópski menningarminjadagurinn - 3.9.2009

Evrópski menningarminjadagurinn 2009 verður haldinn sunnudaginn 6. september. Þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð. Af því tilefni verður boðið uppá forvitnilega dagskrá í Gamla bænum Laufási í Eyjafirði frá kl. 14–16. Lesa meira
 
500hundur_Bjarney_1

Greifi hjálpar Bjarneyju - 2.9.2009

Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, afhenti á föstudag leyfi fyrir 500. hundinum á Akureyri en þar er um að ræða sérþjálfaðan hund sem mun aðstoða fatlaða stúlku í bænum. Bjarney Guðrún Jónsdóttir er með arfgengan vöðvasjúkdóm og skerta hreyfigetu og þarf því mikla aðstoð við ýmsar daglegar athafnir. Lesa meira
 
LA2009_Lilja

96.000 gestir hjá LA í fyrra - 2.9.2009

Mikil eftirvænting ríkir hjá Leikfélagi Akureyrar þessa dagana, enda spennandi leikár framundan. Rúmlega 96.000 gestir sáu sýningar í leikhúsinu og upprunalegar uppfærslur LA í Reykjavík á síðasta ári sem er meira en helmingi fleiri gestir en árin á undan. Lesa meira
 
ThoroddurBjarnason

Síðastur út slökkvi ljósin? - 1.9.2009

Á morgun, miðvikudaginn 2. september, fjallar Þóroddur Bjarnason um áhrif kreppunnar á búferlaflutninga og mannfjöldaþróun á Íslandi í fyrirlestrarröðinni félagsvísindatorg við Háskólann á Akureyri. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.00 í stofu L 201 á Sólborg við Norðurslóð.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica