Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Gardaverdlaun2009

Fegurstu garðarnir - 31.8.2009

Við setningu Akureyrarvöku síðastliðið föstudagskvöld voru meðal annars veittar viðurkenningar fyrir fegurstu garðana á Akureyri og einnig fyrir fallegasta matjurtargarðinn. Lesa meira
 
Akvak09_haldarakjoll

Gaman á Akureyrarvöku - 31.8.2009

Akureyrarvöku var um helgina og var þátttaka bæjarbúa og gesta góð þrátt fyrir að veðurguðirnir hefðu mátt vera örlátari á góða veðrið. Sem dæmi var Draugaslóð Minjasafnsins og Leikfélags Akureyrar virkilega vel sótt, fullt var út úr dyrum á tónleikum í Fjósinu við Galtalæk, í Minjasafnskirkjunni og á akureyskum tónum Ingu Eydal.  Lesa meira
 
akureyrarvaka_2006._2

Akureyrarvaka hefst í kvöld - 28.8.2009

Akureyrarvaka verður sett kl. 20 í kvöld í Lystigarðinum. Skapast hefur sú hefð að hefja Akureyrarvöku með þeim hætti að garðurinn er upplýstur og ýmsar uppákomur dreifðar um garðinn. Myndlistarsýning verður opnuð, boðið upp á upplestur og tónlist, ásamt með fleiru sem kemur vafalítið á óvart.

Lesa meira
 
Akureyri_nagrannavarsla_agust09

Nágrannavarsla á Akureyri - 28.8.2009

Átaki um nágrannavörslu var ýtt úr vör á Akureyri í gær. Það voru íbúar Beykilundar sem riðu á vaðið undir forystu Sævars Helgasonar, eins af íbúum götunnar. Að loknum stuttum kynningarfundi var fest upp skilti á horni Beykilundar sem sýnir að virk nágrannavarsla er í götunni. Átakið er unnið í samvinnu Akureyrarbæjar og Sjóvár.

Lesa meira
 
null

Annasamt á Amtsbókasafninu - 27.8.2009

Nýliðinn júlímánuður var annasamur á Amtsbókasafninu. Aldrei hafa gestir verið fleiri í einum mánuði eða 13.247 sem þýðir að gestir voru að meðaltali 576 á dag. Þetta er aukning um 11% miðað við sama mánuð í fyrra.

Lesa meira
 
Listasafnid_Urvalid

Íslenskar ljósmyndir 1866-2009 - 26.8.2009

Á Akureyrarvöku laugardaginn 29. ágúst kl. 15 verður sýningin „Úrvalið: íslenskar ljósmyndir 1866–2009" opnuð í Listasafninu á Akureyri. Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari hefur valið verk eftir þrettán kollega sína á sýninguna, og skrifar jafnframt um þá, sem og rökin fyrir vali sínu, í texta sem birtist í vandaðri sýningarskrá. Er þetta í fyrsta sinn sem tilraun er gerð til þess að gefa markvisst yfirlit á einni sýningu yfir sögu skapandi ljósmyndunar hér á landi, frá upphafi til dagsins í dag.

Lesa meira
 
Grila

Draugaslóð í Innbæ Akureyrar - 25.8.2009

Skerandi skelfileg óp, drungaleg tónlist og verur af öðrum heimi er meðal annars það sem gestir og gangandi munu heyra og sjá í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, næstkomandi föstudagskvöld, 28. ágúst, kl. 22.30-23.59 í Draugaslóð Minjasafnsins á Akureyri og Leikfélags Akureyrar.

Lesa meira
 
Molta_agust09_raesing

Tímamótaskref í umhverfismálum - 24.8.2009

Föstudaginn 21. ágúst tók jarðgerðarstöð Moltu ehf. í Eyjafirði formlega til starfa en stöðinni er ætlað að taka á móti lífrænum úrgangi af Eyjafjarðarsvæðinu og úr Þingeyjarsýslu. Stöðin er staðsett á Þveráreyrum í Eyjafjarðarsveit og er hún í meirihlutaeigu sveitarfélaganna í Eyjafirði, auk matvælafyrirtækja á svæðinu og fleiri aðila. Lesa meira
 
Draugaganga

Akureyrarvaka undirbúin - 21.8.2009

Undirbúningur fyrir Akureyrarvöku sem fram fer venju samkvæmt 28. og 29. ágúst stendur nú sem hæst. Þar munu m.a. brjóstahöld koma umtalsvert við sögu. Lesa meira
 
lystigardur

Ábendingar um fallega garða - 20.8.2009

Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Lesa meira
 
Þemadagar í Glerárskóla 7. og 8. nóvember 2007

Skólabyrjun í grunnskólum - 19.8.2009

Mánudaginn 24. ágúst hefja 2.586 nemendur vetrarstarfið í grunnskólum Akureyrarbæjar og fjölgar nemendum eilítið á milli skólaára. Þar af eru 264 nemendur í 1. bekk að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Lesa meira
 
Naustatjorn_Vikudagur

Naustatjörn opnar deild í Naustaskóla - 19.8.2009

Leikskólinn Naustatjörn opnaði fimmtu deildina sína í gær, á sex ára afmælisdegi leikskólans. Þetta er deild sem er aðeins með elstu börnum skólans, fæddum 2004, og hún er staðsett í Naustaskóla. Lesa meira
 
Kreppumalarar

Síðasta sýningarhelgi - 19.8.2009

Sunnudaginn 23. ágúst lýkur sýningunni „Kreppumálararnir" í Listasafninu á Akureyri en þar er dregin upp mynd af lífi og listum þjóðarinnar á fjórða áratug síðustu aldar. Lesa meira
 
Kjarnaskogur170809_1

Átaksverkefni í Kjarnaskógi - 17.8.2009

Í sumar hafa fjórir starfsmenn unnið að ýmsum verkefnum á útivistarsvæðinu í Kjarnaskógi á vegum Skógræktarfélags Eyfirðinga í átaksverkefni Vinnumálastofnunar með stuðningi Akureyrarbæjar. Meðal annars hefur verið unnið að gerð göngustíga, gerð útikennslustofu fyrir grunnskólana og grisjun skógarins. Lesa meira
 
Akureyrarvollur_agust09

Lenging Akureyrarflugvallar - 14.8.2009

Í dag, föstudaginn 14. ágúst kl. 13.30, var lengd flugbraut á Akureyrarflugvelli formlega tekin í notkun. Jafnframt hefur ýmiss aðflugsbúnaður verið endurnýjaður og endurbættur sem eykur öryggi í aðflugi að flugvellinum og stuðlar að enn betri nýtingu á honum.

Lesa meira
 
Sparnadur09

Hugmyndir um sparnað - 13.8.2009

Snemma í vor var auglýst eftir hugmyndum starfsmanna hjá Akureyrarbæ um lækkun kostnaðar í rekstri sveitarfélagsins. Tekið var fram að hugmyndirnar mættu ná til allra rekstrarþátta í starfseminni hvort sem um væri að ræða laun eða önnur rekstrargjöld. Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, veitti í dag verðlaun fyrir bestu innsendu hugmyndirnar.

Lesa meira
 
IreneGook1

Irene Gook 100 ára - 11.8.2009

Irene Gook fagnar í dag 100 ára afmæli sínu en hún fæddist í Lundúnum 11. ágúst 1909. Foreldrar hennar voru Arthur og Florence Gook. Irene fluttist aðeins sex mánaða til Íslands þar sem faðir hennar starfaði sem kristniboði.

Lesa meira
 
Handverkshatid2009_3

Metaðsókn á Handverkshátíð - 10.8.2009

Metaðsókn er á Handverkshátíðina á Hrafnagili og á þriðja degi af fjórum voru gestir orðnir rúmlega 15.000. Bros á hverju andliti í 20 stiga hita og sól skapaði frábæra stemningu á hátíðarsvæðinu um helgina. Hátíðin verður opin í dag,  mánudag, frá kl. 12 til 19.

Lesa meira
 
CrownPrincess_7agust09_1

Mannmargt í bænum - 7.8.2009

Mikill mannfjöldi hefur verið á Akureyri í dag og skýrist það meðal annars af komu þriggja skemmtiferðaskipa til bæjarins. Við bryggju hafa legið skemmtiferðaskipin Albatros, Kristina Regina og Crown Princess sem er stærsta skemmtiferðaskipið sem hingað kemur í sumar, 116.000 brúttólestir með 3.242 farþega. Lesa meira
 
Hænsnalappaskinn

Handverkshátíðin 2009 - 7.8.2009

Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla verður sett í dag, föstudaginn 7. ágúst, í 17.sinn við hátíðlega athöfn. Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra mun setja hátíðina formlega.

Lesa meira
 
snjosledi

Átt þú sleðann? - 6.8.2009

Þessi skrautlegi snjósleði fannst á dögunum við Óseyri 19 og hefur víst legið þar um nokkra hríð. Hugsanlegt er að honum hafi verið stolið og komið þarna fyrir eða að réttur eigandi hafi hreinlega týnt honum. Lesa meira
 
Hrisey_ur_lofti

Byggðakvóti til úthlutunar - 4.8.2009

Um helgina birti Fiskistofa auglýsingu vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2008/2009 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 557, 25. júní 2009.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica