Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

HA_rektor

Lyklaskipti í Háskólanum á Akureyri - 30.6.2009

Þriðjudaginn 30. júní framkvæmdi Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi rektor HA sitt síðasta embættisverk þegar hann hengdi upp minningarskjöld um Þorbjörgu Finnbogadóttur. Lesa meira
 

Nýsköpun á Akureyri - 30.6.2009

Eftir efnahagshrunið sl. haust, fór hópur fólks, sem gengur undir nafninu "Bylting Fíflanna" að hittast á Akureyri. Var það gert til þess að mótmæla ástandinu en einnig til þess að leita lausna í grasrótinni. Lesa meira
 
skapandi_sumarstarf_2

Skapandi sumarstörf - 29.6.2009

Tveir hópar skapandi sumarstarfa eru starfræktir í sumar, en starfið gengur út að það að hleypa nýju lífi í bæinn. Lesa meira
 

Arctic Open - 26.6.2009

Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur verið haldið frá árinu 1986 og hafa á fjórða þúsund innlendir og erlendir gestir látið drauminn rætast og tekið þátt í mótinu. Lesa meira
 
islandsklukka

Góð staða Háskólans á Akureyri - 26.6.2009

Vegna frétta um slæma rekstrarstöðu margra ríkisstofnana í fréttum fjölmiðla í gær þ. 25. júní óskar Háskólinn á Akureyri að koma eftirfarandi á framfæri. Lesa meira
 
gluggar_1

Hótel Akureyri tekur á sig nýja mynd - 25.6.2009

Hafnarstræti 98 sem í daglegu tali er nefnt Gamla Hótel Akureyri tekur á sig nýja og skemmtilega mynd í dag en þá verða gluggar hússins myndskreyttir með gömlum Akureyrarmyndum. Lesa meira
 
Idnadarsafn

Afadagar á Iðnaðarsafninu - 25.6.2009

Á Iðnaðarsafninu hefur það alltaf verið sérstakt ánægjuefni að taka á móti eldra fólki og flestir hafa lifað þá tíma þegar að safnkostur Iðnaðarsafnsins var hluti af daglegu lífi og störfum. Lesa meira
 

Heitir fimmtudagar - 24.6.2009

Heitir fimmtudagar á Akureyri eiga orðið fastan sess sem vettvangur góðs jazz á Listasumri og eru þeir samofnir nær tveggja mánaða listahátíð. Lesa meira
 
Jonsmessukrakkar

Jónsmessuleikur í Kjarnaskógi - 23.6.2009

Hinn árlegi Jónsmessuleikur verður haldinn í Kjarnaskógi í kvöld og hefur hópur ungmenna, undir leiðsögn starfsmanna Gilfélagsins og Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili, staðið að undirbúningi í allan dag. Lesa meira
 
Aflskonur_19.06.09

Aflskonur fá styrk - 23.6.2009

Á kvennadaginn, 19. júní sl. fékk Aflið - samtök gegn heimilis- og kynferðisofbeldi, afhentan peningastyrk frá formanni Ladies Circle klúbbs númer 1. Lesa meira
 
Mannaudsstefna_HJT

Ný mannauðsstefna - 19.6.2009

Í febrúar 2009 voru drög að nýrri mannauðsstefnu hjá Akureyrarbæ kynnt og óskað var eftir athugasemdum frá starfsfólki. Margar góðar ábendingar bárust og nýtti starfshópurinn margar þeirra við lokafrágang vinnunnar. Þann 17. mars sl. var ný mannauðsstefna Akureyrarbæjar samþykkt í bæjarstjórn.

Lesa meira
 
Grimsey_Loftmynd_Fridthjofu

Viðburðarík helgi - 19.6.2009

Í dag, föstudaginn 19. júní, verður Listasumar á Akureyri sett í Ketilhúsinu í 17. skipti og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið jafn glæsileg. Sendiherra Noregs opnar sýningu á verkum norsk/íslenska málarans Kaare Espolin Johnson og á 2. hæð Ketilhússins opnar Héraðsskjalasafnið sýningu um íslensk ættartengsl Espolin. Lesa meira
 
17juni09_1

17. júní á Akureyri - 18.6.2009

Mikil og góð þátttaka var í 17. júní hátíðarhöldunum á Akureyri. Spáð hafði verið grenjandi rigningu en það var eins og veðurguðirnir hefðu gefið ofurlítil grið rétt á meðan á helstu dagskrárliðum stóð en þegar liðið var á dagskrána á Ráðhústorgi byrjaði aftur að rigna. Lesa meira
 
Kvennasoguganga

Kvennasöguganga um Innbæinn - 18.6.2009

Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þó fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895. Í ár eru liðin 94 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins verður í ár boðið upp á Kvennasögugöngu um innbæinn á Akureyri. Lesa meira
 
Gladar_i_bragdi__a_17._juni

17. júní á Akureyri - 16.6.2009

Hátíðarhöldin 17. júní á Akureyri sem eru í umsjón Skátafélagsins Klakks eru fjölbreytt þetta árið líkt og venjulega. Áður en hefðbundin dagskrá hefst í Lystigarðinum mun Lúðrasveit Akureyrar fara um bæinn milli klukkan 10 og 12 með viðkomu m.a. á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Dvalaheimilinu Hlíð.

Lesa meira

 
Öll lífsins gæði - barn

Sæktu í sjóði - 15.6.2009

Norræna upplýsingaskrifstofan vekur athygli á því að nú er hægt á auðveldan hátt að kynna sér norræna tvíhliða sjóði eða „bilaterale fonde" á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins.

Lesa meira

 
Haskolasjodur2009

Úthlutun úr Háskólasjóði - 15.6.2009

Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhentu á laugardag 7,6 milljónir króna úr Háskólasjóði KEA. Athöfnin fór fram á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð. Lesa meira
 
GraenfaniNaustatj_juni09_2

Grænfánahátíð - 12.6.2009

Í gær var blásið til Grænfánahátíðar í leikskólanum Naustatjörn og á Pálmholti. Tilefni var að skólarnir fengu Grænfánann afhentan öðru sinni en Grænfánann fá þeir leikskólar sem hafa aukið umhverfismennt og styrkt umhverfisstefnu sína með því að stíga skrefin sjö í umhverfismálum. Lesa meira
 
Nonnahus

Gengið í fótspor Nonna - 12.6.2009

Hefur þú séð Nonnasteininn? Hefur þú gengið í fótspor hins ástsæla barnabókarithöfundar Jóns Sveinssonar, Nonna? Ef svo er ekki þá er tilvalið fyrir alla fjölskylduna að gera sér glaðan dag sunnudaginn 14. júní kl. 14.00 og ganga í fylgd kunnugra um Nonnaslóð. Lesa meira
 
SkolahljomsveitAusturbaejar

Skólahljómsveit Austurbæjar á Akureyri - 12.6.2009

Skólahljómsveit Austurbæjar fer í vorferð um Norðurland land 13.–18. júní og heldur tónleika í Brekkuskóla á Akureyri sunnudaginn 14. júní kl. 20.00. Á mánudag verður hljómsveitin í Mývatnssveit en kemur aftur í bæinn á þriðjudag og mun þá leika víðsvegar um bæinn. Lesa meira
 
Midbaer_Hafnarstraeti_feb09

Athugasemdir við nýjan miðbæ - 11.6.2009

Akureyrarbær hélt kynningu á fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu af miðbæ Akureyrar frá 21. febrúar til 10. mars 2009. Staða verkefnisins var sú að meginlínur höfðu verið lagðar í deiliskipulaginu, en það var hins vegar enn í mótun. Markmið kynningar var að fá viðhorf bæjarbúa við þeim hugmyndum sem fyrir lágu og viðbrögð og nýjar hugmyndir innan þeirra meginlína sem lagðar höfðu verið.

Lesa meira
 
Naustaskoli_HG

Hverfishátíð Naustahverfis - 10.6.2009

Hverfishátíð Naustahverfis verður haldin á morgun, fimmtudaginn 11. júní, frá kl. 17-19 í Naustaborgum ofan Sómatúns. Íbúar hverfisins grilla saman og boðið verður upp á margs konar skemmtun fyrir unga sem aldna. Farið verður í leiki og ýmsar þrautir leystar, hestar og folald verða á staðnum og allir geta fengið andlitsmálun. Lesa meira
 
Arsskyrsla2008_forsida

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2008 - 10.6.2009

Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2008 kom út í lok síðasta mánaðar og geta áhugasamir nálgast eintak af henni í þjónustuanddyri Ráðhússins þar sem skýrslan liggur frammi. Að venju er í skýrslunni fjallað í stuttu máli um starfsemi allra deilda og stofnana bæjarins en myndskreytingar eru af starfsfólki bæjarins með þemanu "brostu með hjartanu". Lesa meira
 
Hermann_xS

Bæjarstjóraskipti í dag - 9.6.2009

Hermann Jón Tómasson tekur við af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur sem bæjarstjóri á Akureyri á fundi bæjarstjórnar í dag. Eru bæjarstjóraskiptin samkvæmt málefnasamningi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokk sem gerður var eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar. Þar segir að bæjarstjóri fyrstu þrjú árin verði frá Sjálfstæðisflokknum en síðasta árið frá Samfylkingunni. Lesa meira
 
DSC00423

Vinnuskólinn á Akureyri hefst mánudaginn - 5.6.2009

Yfir 400 ungmenni hefja á mánudaginn 8. júní störf hjá vinnuskólanum á Akureyri. Ungmennin munu vinna hörðum höndum við að fegra bæinn okkar í sumar líkt og síðustu ár. Lesa meira
 
Blomaker2

Fyrsta skemmtiferðaskipið - 4.6.2009

Mjög gott veður hefur verið á Akureyri síðustu vikuna eða svo. Bærinn er nú óðum að skrýðast sínum sumarklæðum og á laugardag kemur fyrsta skemmtiferðaskipið til bæjarins, Spirit of Adventure. Í sumar eru væntanleg hingað 60 skip en þau voru 55 í fyrra. Lesa meira
 
Kapprodur_RunarThor

Sjómannadeginum fagnað - 4.6.2009

Sjómannadeginum 7. júní verður fagnað á Akureyri með dagskrá sem stendur yfir bæði laugardag og sunnudag. Herlegheitin hefjast á laugardagsmorgun þegar boðið verður upp á ókeypis kajakferðir á vegum Nökkva, félags siglingarmanna á Akureyri, og verða ferðirnar farnar frá Höepfnersbryggju. Lesa meira
 
Modettukor_Hallgrimskirkju

Ókeypis tónlistarveisla - 3.6.2009

Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar flytur á morgun, fimmtudag, nýtt tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis til heiðurs Dalai Lama í boði AIM Festival. Tónleikarnir eru jafnframt lokatónleikar AIM Festival þetta árið.

Lesa meira
 

Góð afkoma LSA - 3.6.2009

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar var haldinn miðvikudaginn 27. maí sl. Á fundinum var lagður fram ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2008. Nafnávöxtun sjóðsins var 15,7% á árinu 2008 en hrein raunávöxtun neikvæð um 0,56%. Fram kom í máli Kára Arnórs Kárasonar framkvæmdastjóra Stapa lífeyrissjóðs, en Stapi sér um rekstur LSA, að afkoma ársins sé góð í ljósi þeirra hörmunga sem dundu yfir fjármálamarkaðinn á liðnu ári. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica