Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Minjasafnid_allirkrakkar

Allir krakkar, allir krakkar... - 29.5.2009

Sólskinsdagar í lífi barna eru margir. Góðu stundirnar með uppáhaldsleikfangið í herberginu, í tómstundastarfi eða í skólanum eru mörgum enn hugleiknar. Á sýningu Minjasafnins "Allir krakkar, allir krakkar... líf og leikir barna" sem verður opnuð laugardaginn 30. maí kl. 14, gefst gestum safnins kostur á því að dusta rykið af gömlum minningum og deila upplifun æskuáranna með afkomendum sínum.

Lesa meira
 
Gilfelag_Namskeid

Ferðalag um framandi heima - 29.5.2009

Mánudaginn 8. júní hefst á vegum Gilfélagsins forvitnilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-12 ára og 13-16 ára. Uppskeruhátíð námskeiðsins verður á Jónsmessuhátíð í Kjarnaskógi. Aðalbækistöðin verður elsta hús Akureyrar, Laxdalshús, og þangað verður sóttur ýmis fróðleikur.

Lesa meira
 
Arngrimur-AIM-2008

AIM Festival að hefjast - 28.5.2009

Opnunarhátíð AIM Festival hefst með flugdansi loftlistamannsins Arngríms Jóhannssonar á morgun, föstudaginn 29. maí. Fólk er hvatt til að mæta á Höpfners bryggju kl. 17.30 og fylgjast með Arngrími fljúga við undirleik Flugvalsins eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Lagið verður einnig flutt í útsendingartíma Útvarpi Norðurlands á slaginu kl. 17.30.

Lesa meira
 
Bilaklubbur_skoflustunga_ma

Bílaklúbburinn 35 ára - 28.5.2009

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju ökugerði og fjölnota akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar sem fagnar nú 35 ára afmæli sínu en klúbburinn var stofnaður 27. maí 1974. Bílaklúbburinn hefur allt frá stofnun verið leiðandi afl í íslensku mótorsporti, haldið frá fyrsta ári veglega bílasýningu 17. júní ár hvert og síðast en ekki síst hefur félagið barist hart fyrir því að ná hraðakstri af götum bæjarins og inn á lokuð svæði.

Lesa meira
 
UNAK2

Háskólaráð um sameiningarhugmyndir - 28.5.2009

Háskólaráð Háskólans á Akureyri fjallaði á fundi sínum í gær um úttektir á háskóla- og vísindakerfinu sem unnar voru á vegum menntamálaráðuneytisins. Háskólaráð fagnar upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál og tekur undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum úttektum, sérstaklega hvað varðar aukna samvinnu milli háskóla. Ráðið er þó mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík og telur skorta fullnægjandi rökstuðning fyrir slíkum hugleiðingum. Lesa meira
 

Gönguvikur í Eyjafirði - 27.5.2009

Göngugarpar og annað útivistarfólk kemst í skipulagðar gönguferðir um Eyjafjörð í nánast allt sumar. Ferðafélag Akureyrar og fleiri aðilar í firðinum bjóða upp á alls kyns forvitnilegar ferðir með leiðsögn og hafa verið skipulagðar sérstakar gönguvikur á svæðinu.

Lesa meira
 
Buxnaskjonar_HugiHlynsson

Buxnaskjónar bestir - 26.5.2009

Upphitun fyrir AIM Festival tónlistarhátíðina hófst í síðustu viku með hljómsveitakeppninni "Besti byrjandinn". Keppnin gekk framar öllum vonum og tóku fimm ólíkar hljómsveitir þátt í henni.

Lesa meira
 
MagniAsgeirsson

Hárið í Tónræktinni - 22.5.2009

Tónlistarskólinn Tónræktin á Akureyri á 5 ára afmæli í vor. Af því tilefni setur söngdeild skólans á svið tónlist úr söngleiknum "Hárinu" eftir Gerome Ragni & James Rado. Hljóðfæranemendur ásamt kennurum skipa rokkhljómsveit sem sér um tónlistina í verkinu.

Lesa meira
 
Hakarla_Jorundur

Menning á sjálfbærum áfangastað - 22.5.2009

Á morgun, laugardaginn 23. maí, verður haldið málþing í Hrísey undir yfirskriftinni "Menning á sjálfbærum áfangastað". Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að skapa sjálfbært samfélag í Hrísey. Frá upphafi verkefnisins hefur verið hugað að því hvernig hægt sé að nýta verkefnið til atvinnusköpunar auk þess að koma á framfæri sérstöðu svæðisins/eyjarinnar. Hefur í því sambandi helst verið litið til ferðaþjónustu. Lesa meira
 
Tyft_Aim

TYFT á Græna hattinum - 20.5.2009

Hið virta jazztríó TYFT kemur fram á Græna Hattinum þann 21. maí (uppstigningadag). Tríóið TYFT hefur nýverið sent frá sér fjórða geisladisk sinn hjá Skirl Records í New York. Af því tilefni hafa þeir félagar verið á tónleikaferð um Evrópu undanfarnar tvær vikur.

Lesa meira
 
StefanBSigurdsson

Stefán B. Sigurðsson verður tilnefndur rektor - 20.5.2009

Staða rektors við Háskólann á Akureyri var auglýst laus til umsóknar þann 9. janúar 2009 og rann umsóknarfrestur út 10. febrúar sl. Menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs en ráðið hyggst tilnefna dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseta læknadeildar Háskóla Íslands.

Lesa meira
 
ElinRunBirgisdottir

Útskriftartónleikar - 20.5.2009

Fimmtudaginn 21. maí heldur Akureyringurinn Elín Rún Birgisdóttir útskriftartónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri. Tónleikarnir hefjast kl. 16.30, eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis. Lesa meira
 
Nordurland_konnun_ferdamala

Akureyri helsta aðdráttaraflið - 19.5.2009

Í nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Ferðamálastofu var að áeggjan Markaðsskrifstofu Norðurlands spurt hvað gerði Norðurland að spennandi áfangastað fyrir ferðafólk. Svörin voru margvísleg en langflestir nefndu Akureyri sem helsta aðdráttarafl landshlutans eða 39,4% á meðan Mývatnssveit var til að mynda nefnd af 21,9% aðspurðra. Lesa meira
 
Oddeyri1-x

Ævintýri ungs fólks í Ålesund - 18.5.2009

Fyrstu vikuna í ágúst verður haldið vinabæjamót í Ålesund í Noregi. Vinabæir Akureyrar á hinum Norðurlöndunum auk Ålesund eru Randers í Danmörku, Västerås í Svíþjóð, og Lahti í Finnlandi. Til mótsins er boðið ungu fólki á aldrinum 16-20 ára, 16 fulltrúum frá hverju landi.

Lesa meira
 
Listagil

Menningarveisla um helgina - 15.5.2009

Það verður mikil menningarhátíð á Akureyri um helgina þegar Listasafnið á Akureyri opnar yfirlitssýningu á verkum Huldu Hákon en sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á sama tíma opnar fjöldi annarra sýninga í galleríum bæjarins en þau leggja áherslu á opnanir sama dag og Listasafnið. Lesa meira
 

Opnun í Listasafninu - 14.5.2009

Laugardaginn 16. maí verður opnuð yfirlitssýning á verkum Huldu Hákon í Listasafninu á Akureyri og er sýningin hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Allt frá upphafi ferils síns hefur Hulda Hákon (f. 1956) haft auga fyrir því að varpa einkennilegum hetjuljóma á hversdagslífið. Lesa meira
 

Tónleikar strengjasveitarinnar - 14.5.2009

Strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri sem skipuð er lengra komnum nemendum strengjadeildar skólans heldur tónleika í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 14. maí kl. 20.00. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Lesa meira
 
Hverfishátíð í Lundarskóla

Vorhátið Lunda- og Gerðahverfis 2009 - 14.5.2009

Þriðja vorhátíð Lunda- og Gerðahverfis á Akureyri verður haldin laugardaginn 16. maí 2009. Hún hefst kl. 10.30 með hreinsunarátaki hverfisins undir kjörorðinu “Tökum til hendinni í grenndinni”. Fólk mætir við Lundarskóla og fær þar úthlutað svæði til hreinsunar svo og ruslapokum.

Lesa meira
 
Laufas2005unnin

Sumaropnun í Laufási - 13.5.2009

Gamli bærinn í Laufási opnar dyrnar upp á gátt föstudaginn 15. maí kl. 9 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót þetta mikla ferðasumar sem nú fer í hönd. Kaffihúsastemning mun ríkja í gamla Presthúsinu til kl. 22 þennan fyrsta dag sumarsins þar sem ilmur nýbakaðs bakkelsis úr héraði mun fylla vitin og tertur, brauð og drykkir gæla við bragðlauka gesta. Lesa meira
 
RikisstjornAk12mai09_2

Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar haldinn á Akureyri - 12.5.2009

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs kemur saman til fyrsta fundar í dag, þriðjudaginn 12. maí. Fundurinn verður haldinn á Akureyri og að sögn þeirra sem gerst þekkja til og lengst muna í þessum efnum, er það í fyrsta sinn sem almennur ríkisstjórnarfundur er haldinn utan Reykjavíkur. Fundir hafa áður verið haldnir á hátíðarstundum á Þingvöllum, en ekki annars staðar á landinu. Lesa meira
 
ThorKA2009_1

Bæjarstjóri þakkar kvennaliði Þórs/KA - 8.5.2009

Kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu er Lengjubikarmeistari kvenna árið 2009 eftir sigur á Stjörnunni 3-2 í Kórnum í Kópavogi í úrslitaleik sem fram fór um síðustu helgi. Af þessu tilefni bauð Sigrún Björk Jakobsdóttir stúlkunum til samsætis í Ráðhúsinu í dag þar sem hún fagnaði þessum glæsilega árangri með þeim og hvatti þær enn frekar til dáða. Lesa meira
 
Gongugata

Göngugatan lokuð fyrir bílaumferð - 8.5.2009

Vegna framkvæmda við malbikun aksturssvæðis í göngugötunni í Hafnarstræti verður gatan lokuð fyrir bílaumferð frá og með mánudeginum 11. maí til 15. maí. Beðist er velvirðingar á þeirri röskun sem af framkvæmdinni verður.

Lesa meira
 
KorAkkirkju2009

Lokatónleikar Kirkjulistaviku - 8.5.2009

Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju lýkur á sunnudag með hátíðartónleikum Kórs Akureyrarkirkju. Kórinn hefur fengið til liðs við sig kammersveit og þrjá af bestu barroksöngvurum Íslands, þau Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur, Braga Bergþórsson og Benedikt Ingólfsson. Lesa meira
 
Gedheilbrigdisradstefna

Akureyri fyrirmyndarsveitarfélag í þjónustu við geðsjúka - 8.5.2009

Landssamtökin Geðhjálp, í samstarfi við Norræna lýðheilsuháskólann í Gautaborg og Norræna Velferðarráðið, efndu til norrænnar ráðstefnu með alþjóðalegu ívafi á Akureyri á fimmtudag og föstudag. Í fyrsta sinn voru leiddir saman á einni geðheilbrigðisráðstefnu rannsakendur, þjónustuveitendur, notendur og aðstandendur.

Lesa meira
 
MyndAk_grafik09

Vorsýning Myndlistaskólans - 8.5.2009

Þrítugasta og fimmta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári. Lesa meira
 
Hlíð

Handverkssýning Öldrunarheimila Akureyrar - 8.5.2009

Handverkssýning Öldrunarheimila Akureyrar verður haldin í Hlíð sunnudaginn 10. maí kl. 14-17 og mánudaginn 11. maí kl. 13-16. Stærsti hluti sýningarinnar verður handverk sem unnið hefur verið á síðustu mánuðum.

Lesa meira
 
Listanlandamaera2009

Áfram heldur List án landamæra - 7.5.2009

Áfram heldur veisla í boði Listar án landamæra. Á laugardag klukkan 14 er komið að opnun á Amtsbókasafninu á sýningu nemenda í Fjölmennt en það er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki 20 ára og eldri. Sýningin ber yfirskriftina Norðurheimskautið og verða þar sýnd verk úr ýmis konar efnivið.

Lesa meira
 
Nyundirgong

Hörgárbraut lokuð við Skúta - 6.5.2009

Vegna vinnu við gerð nýrra undirganga undir Hörgárbraut við Skúta verður Hörgárbraut lokuð milli Hlíðarbrautar og Undirhlíðar frá 7. maí til 5. júní næstkomandi. Verklok eru áætluð 17. júlí 2009. Hjáleið verður um Hlíðarbraut-Krossanesbraut-Undirhlíð. Lesa meira
 
Midbaer_sumar2008

Viðbrögð við inflúensu - 6.5.2009

Á heimasíðu Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri hefur nú verið birtur ítarlegur pistill um inflúensuna A/H1N1 eða hina svokölluðu svínaflensu. Þar er að finna almennar upplýsingar um inflúensuna og veitt eru svör við ýmsum spurningum sem kunna að vakna meðal almennings. Lesa meira
 
unak_solborg_mai06

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði - 6.5.2009

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Akureyri 8.-9. maí. Meðal spurninga sem leitað verður svara við eru: Hverjar eru þjóðfélagsfræðilegar hliðar kreppunnar? Hvernig hefur íslenskt skattkerfi þróast? Hver eru áhrif kreppunnar á þjóðerniskennd Íslendinga? Í hvaða framkvæmdir er hagkvæmast fyrir ríkið að fara núna? Hverjar eru kynjamyndir nýfrjálshyggjunnar? Lesa meira
 
Hvoll_safnadagur09

Eyfirski safnadagurinn sló í gegn - 6.5.2009

Fleiri hundruð manns heimsóttu söfnin við Eyjafjörð á Eyfirska safnadeginum síðastliðinn laugardag. Aðsókn var umtalsvert betri nú en verið hefur en þetta er í þriðja sinn sem söfnin við Eyjafjörð, nítján talsins, sameinast um að halda safnadaginn.

Lesa meira
 
KarlGudm_Radhussyning2

Kalli25 í Ráðhúsinu - 5.5.2009

Í hádeginu í dag opnaði Karl Guðmundsson sýningu sína Kalli25 í bæjarstjórnarsal Ráðhússins á Akureyri. Verkin á sýningunni eru unnin með olíulitum á bókbandspappa. Karl Guðmundsson hefur lagt stund á myndlist frá unga aldri.

Lesa meira
 

Ný sjónarhorn – bestu leiðirnar - 5.5.2009

Landssamtökin Geðhjálp í samstarfi við Norræna lýðheilsuháskólann í Gautaborg og Norræna Velferðarráðið efna til norrænnar ráðstefnu með alþjóðalegu ívafi á Akureyri á fimmtudag og föstudag. Í fyrsta sinn eru leiddir saman á einni geðheilbrigðisráðstefnu rannsakendur, þjónustuveitendur, notendur og aðstandendur.

Lesa meira
 
1mai2007

Tökum vel á móti sumrinu - 3.5.2009

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með bros á vör. Akureyrarbær mun í ár ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum líkt og undanfarin ár en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 4.-11. maí. Lesa meira
 
1mai_8_2009

Fjölmenni í 1. maí göngu - 2.5.2009

Veðrið lék við Akureyringa og nærsveitunga föstudaginn 1. maí, sól og hitamælar sýndu tveggja stafa tölu, er fjölmennasta kröfuganga í áratugi var gengin á Akureyri í tilefni dagsins. Gengið var frá Alþýðuhúsinu í Sjallann við undirleik Big-bands og trommusveit Tónlistarskálans á Akureyri. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica