Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson
Í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Spítalaveg og Steinatröð á Akureyri. Af því tilefni boðar skipulagsdeild til opins íbúafundar þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsal í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9. Allir velkomnir.
Lesa meira
Íslandsmót Skákfélaga verður haldið í Brekkuskóla á Akureyri á föstudag og laugardag og er mótið haldið norðan heiða í tilefni af 90 ára afmæli Skákfélags Akureyrar sem var fyrir skömmu. Um er að ræða sveitakeppni og er teflt í fjórum deildum. Í fyrstu deild tefla 8 sveitir og fer hver viðureign fram á 8 borðum.
Lesa meira
Á morgun, föstudaginn 20. mars, rennur út umsóknarfrestur til að sækja um starfslaun listamanna á Akureyri. Það er stjórn Akureyrarstofu sem auglýsir eftir umsóknunum en starfslaunin eru fyrir tímabilið 1. júní 2009 til 31. mai 2010.
Lesa meira