Gangið tryggilega frá gaskútum
Ekki er langt um liðið síðan Slökkvilið Akureyrar fór í útkall að brennandi húsi þar sem 25 gaskútar fundust innandyra. Hluta af kútunum hafði klárlega verið stolið þar sem þeir höfðu verið skornir lausir frá gasgrillum. Slökkviliðsstjórinn á Akureyri hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við áframhaldandi þjófnaði á gaskútum.
Á heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar segir:
Nú eru enn teikn á lofti um að verið sé að stela kútum í samskonar tilgangi og vil ég því biðla til þeirra sem eru með gaskúta úti við að ganga tryggilega frá þeim (læsa þeim við trygga pósta).
Ef þú, lesandi góður, verður vitni að því að verið sé að stela gaskútum í þínu nágrenni eða veist af stöðum þar sem einstaklingar eru að sniffa gas, vinsamlega hafðu strax samband við lögreglu. Það er afar brýnt að við sameinumst í að miðla upplýsingum um þessi mál til að reyna að tryggja betur öryggi hvers annars.
Þorbjörn Haraldsson,
slökkviliðsstjóri.

