Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Glerartorg1

Opnunarhátíð Valhalla Bank - 31.3.2009

Undirbúningur að stofnun Valhalla Bank gengur vonum framar. Bankinn verður opnaður 2. apríl og í tilefni þess verður blásið til opnunarveislu þrisvar sinnum. Fyrsta hátíðin verður þann 2. apríl, næsta 3. apríl og sú síðasta 11. apríl. Ástæðan fyrir þessu er gríðarlegur áhugi á hátíðinni sem og vilji bankans til að tengjast fólkinu á starfsvæði bankans. Lesa meira
 
Grimsey_Kria_FridthjofurHel

Kynningarfundir vegna sameiningarmála - 30.3.2009

Samstarfsnefnd um sameiningu Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar leggur til að samhliða alþingiskosningum 25. apríl 2009 fari fram almenn atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna. Lesa meira
 
unak_solborg_mai06

Opið hús í HA á laugardag - 27.3.2009

Á morgun, laugardaginn 28. mars, verður opið hús í Háskólanum á Akureyri. Þá verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Lesa meira
 
Unak_Landsvirkjun2009

Landsvirkjun styður áfram við HA - 24.3.2009

Háskólinn á Akureyri og Landsvirkjun hafa undirritað samstarfssamning um rannsóknir. Samningurinn er framlenging á fyrri samningi sem var upprunalega gerður í apríl 2001 og framlengdur 2007. Markmið samningsins er að efla grunnrannsóknir á þeim fagsviðum er tengjast rannsóknum og nýtingu á orkulindum landsins og áhrifum hennar á samfélag og umhverfi. Lesa meira
 

Fjölsótt Akureyrarmessa í Reykjavík - 20.3.2009

Um síðustu helgi var haldin sérstök Akureyrarmessa í Bústaðakirkju í Reykjavík. Var hún afar vel sótt og mikil ánægja með framtakið. Prestur var séra Pálmi Matthíasson, Kristján Jóhannsson söng tvö lög með kór kirkjunnar og Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari MA, flutti stólræðu. Lesa meira
 

Íbúafundur um Spítalaveg og Steinatröð - 19.3.2009

Í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Spítalaveg og Steinatröð á Akureyri. Af því tilefni boðar skipulagsdeild til opins íbúafundar þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsal í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9. Allir velkomnir.

Lesa meira
 
Skák

400 tefla á Akureyri - 19.3.2009

Íslandsmót Skákfélaga verður haldið í Brekkuskóla á Akureyri á föstudag og laugardag og er mótið haldið norðan heiða í tilefni af 90 ára afmæli Skákfélags Akureyrar sem var fyrir skömmu. Um er að ræða sveitakeppni og er teflt í fjórum deildum. Í fyrstu deild tefla 8 sveitir og fer hver viðureign fram á 8 borðum.

Lesa meira
 
Minjasafn_aningarstadur

Skoðaðu sýninguna í för með sérfræðingi - 19.3.2009

Síðasta sýningarhelgi ljósmyndasýningarinnar „Þekkir þú...áningarstaðinn?" er 21.-22. mars. Af því tilefni verður sérfræðingur ljósmyndadeildar Minjasafnsins, Hörður Geirsson, á staðnum laugardaginn 21. mars frá kl. 14-16. Starfsfólk Minjasafnsins óskar eftir áframhaldandi aðstoð gesta við að bera kennsl á ferðalangana og áningarstaði en hvetur jafnframt gesti sem þegar hafa komið til að koma aftur. Lesa meira
 
Akureyri_jan09

Umsóknarfrestur um starfslaun listamanna - 19.3.2009

Á morgun, föstudaginn 20. mars, rennur út umsóknarfrestur til að sækja um starfslaun listamanna á Akureyri. Það er stjórn Akureyrarstofu sem auglýsir eftir umsóknunum en starfslaunin eru fyrir tímabilið 1. júní 2009 til 31. mai 2010.

Lesa meira
 
LandsmotUMFI2009_styrktarsamningar

Styrktarsamningar vegna Landsmóts UMFÍ - 18.3.2009

Í gær var skrifað undir styrktarsamninga við fimm fyrirtæki vegna Landsmóts UMFí sem haldið verður á Akureyri 9. - 12. júlí í sumar. Aðalstyrktaraðilar eru Alcoa Fjarðaál og KEA og einnig leggja Icelandair Group, Saga Capital og Landsbankinn mótshaldinu lið með myndarlegum hætti. Lesa meira
 
matjurtagardar_vikudagur

Biðlisti eftir matjurtargörðum - 18.3.2009

Bæjarbúar hafa sýnt mikinn áhuga á því að rækta "garðinn sinn" næsta sumar. Akureyrarbær auglýsti á dögunum matjurtagarða til leigu, þar sem bæjarbúar geta ræktað sitt eigið grænmeti. Ráðgert var að bjóða upp á 100 garða og var umsóknarfrestur til 20. mars. Nú er svo komið að allir garðarnir hafa gengið út og kominn biðlisti.
Lesa meira
 
StoraUpplestrar08_4

Stóra upplestrarkeppnin - 16.3.2009

Stóra upplestrarkeppnin fer fram í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri í dag og hefst klukkan 17. Þar keppa til úrslita krakkar úr grunnskólum Akureyrar. Stóra upplestrarkeppnin fyrir 7. bekk hófst veturinn 1996-1997 með þátttöku 223 barna í Hafnarfirði og á Álftanesi. Sex árum síðar voru börnin 4.579 úr 151 skóla hringinn í kringum landið.

Lesa meira
 
GOMS_DaliGalleri

Öll lífsins list á Akureyri - 14.3.2009

Fjölmargar listsýningar verða opnaðar í dag, laugardag, á Akureyri og ber þar hæst sýningin "Kenjóttar hvatir" á Listasafninu en af nógu öðru er líka að taka. Það er því tilvalið að leggja leið sína í miðbæinn til að sjá hvernig öll lífsins list birtist þar í ýmsum myndum. Lesa meira
 

Danskeppni í Kvosinni - 13.3.2009

Á morgun laugardag fer fram í Kvos Menntaskólans á Akureyri "freestyle" danskeppni þar sem keppt verður um PríMA-bikarinn og er þetta fyrsta freestyle keppnin sem haldin er utan höfuðborgarsvæðisins en þess má geta að í ár verður engin keppni sunnan heiða.

Lesa meira
 
slokkvilid-Raudavik

Gangið tryggilega frá gaskútum - 11.3.2009

Ekki er langt um liðið síðan Slökkvilið Akureyrar fór í útkall að brennandi húsi þar sem 25 gaskútar fundust innandyra. Hluta af kútunum hafði klárlega verið stolið þar sem þeir höfðu verið skornir lausir frá gasgrillum. Slökkviliðsstjórinn á Akureyri hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við áframhaldandi þjófnaði á gaskútum.

Lesa meira
 
Cosima_fugl_feb09

Fuglinn úr Heimskringlu? - 9.3.2009

Í byggðamerki Akureyrar er hvítur fugl á bláum grunni en fyrirmyndin að honum er sótt til Heimskringlu þar sem segir af fugli á Eyjafirði sem var svo stór að vængirnir náðu til fjallanna beggja vegna fjarðarins. Engu er líkara en Cosima Celine Zewe hafi náð mynd af þessum fugli þegar hún var á ferðinni með myndavélina sína í Vaðlaheiðinni fyrir skemmstu.

Lesa meira
 
LA_leiklistarskoli

Góð aðsókn í Leiklistarskóla LA - 6.3.2009

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar tók til starfa þriðjudaginn 3. mars. Mikil ásókn var í skólann og því var ákveðið að halda tvö námskeið í vor og hefst seinna námskeiðið í apríl. Þannig var hægt að mæta löngum biðlista sem myndaðist. Lesa meira
 
ThorarinnStefansson

Íslensk píanótónlist í Ketilhúsinu - 5.3.2009

Þórarinn Stefánsson píanóleikari flytur íslensk píanóverk á föstudagstónleikum Tónlistarfélags Akureyrar 6. mars. Á efnisskránni er Íslenskur dans eftir Hallgrím Helgason, kaflar úr Átján hugleiðingum um íslensk þjóðlög eftir Ríkharð Örn Pálsson, Íslensk rapsódía eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og fjórar þjóðlagaútsetningar eftir Karólínu Eiríksdóttur.

Lesa meira
 
MargretJons_Hvitirskuggar

Síðasta sýningarhelgi í Listasafninu - 5.3.2009

Sunnudaginn 8. mars kl. 15 lýkur sýningu á verkum leirlistakonunnar Margrétar Jónsdóttur í Listasafninu á Akureyri. Margrét (f. 1961) hefur unnið að listsköpun sinni á Akureyri síðan 1985, en hún lærði leirlist í Danmörku við Listiðnaðarskólann í Kolding frá 1980-1984. Lesa meira
 
Brekkuskoli

Hverfakaffi hverfisnefndanna í kvöld - 5.3.2009

Akureyringar eru hvattir til að mæta í sameiginlegt hverfakaffi sem hverfisnefndir bæjarins halda í Brekkuskóla fimmtudagskvöldið 5. mars kl. 20.00. Þar gefst kjörið tækifæri til að hittast og vinna saman að því að gera góðan bæ betri.

Lesa meira
 
Ak_stofa_skjamynd1

Straumurinn liggur norður - 4.3.2009

Íslendingar ferðast nú mun meira innanlands en áður hefur verið og virðist sem straumurinn liggi helst til Akureyrar. Mikill fjöldi gesta hefur verið í bænum síðustu helgar og í rauninni síðustu vikur. Aðsóknarmet hafa verið sett bæði í Hlíðarfjalli og Sundlaug Akureyrar og fullyrða má að fólksstraumurinn til bæjarins sé óvenju mikill miðað við árstíma. Lesa meira
 
Torir-Johannsson

Kontrabassakonsert og Góði dátinn Svejk - 4.3.2009

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 8. mars kl. 16.00. Á tónleikunum verður frumfluttur Konsert fyrir kontrabassa og kammersveit eftir Óliver Kentish. Einleikari á kontrabassa er Þórir Jóhannsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Á þessum tónleikum er hljómsveitin eingöngu skipuð blásara- og slagverksleikurum.

Lesa meira
 
AnnaRichards

Starfslaun listamanna á Akureyri - 2.3.2009

Stjórn Akureyrarstofu hefur auglýst eftir umsóknum um starfslaun listamanna fyrir tímabilið 1. júní 2009 til 31. maí 2010. Starfslaunum verður úthlutað til tveggja listamanna og hlýtur hvor um sig sex mánaða laun.

Lesa meira
 
Hraun_Oxnadal

Trjásafn á Hrauni í Öxnadal - 2.3.2009

Menningarfélagið Hraun í Öxnadal ehf og Skógrækt ríkisins hafa gert með sér samstarfssamning um að koma upp trjásafni (arboretum) í afgirtum garði umhverfis íbúðarhúsið að Hrauni. Í trjásafninu verða gróðursett eintök af öllum íslensku trjám og runnum sem þar geta þrifist. Lesa meira
 
Leikfelag_Horgdaela

Leikfélag Hörgdæla sýnir - 2.3.2009

Leikfélag Hörgdæla vinnur nú hörðum höndum að uppsetningu farsans Stundum og stundum ekki eftir þá kumpána Arnold og Bach. 15 leikarar taka þátt í uppsetningunni auk fjölda annarra sem koma að tæknimálum, hönnum og smíði sviðsmyndar, búningahönnun, förðun o.fl. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica