Dagur tónlistarinnar á Akureyri
Laugardaginn 21. febrúar verður "Dagur tónlistarskólanna" haldinn hátíðlegur. Þá verður opið hús í Tónlistarskólanum á Akureyri að Hvannavöllum 14 frá kl. 10-14. Tónleikar verða á heila tímanum og opnar tónsmiðjur á hálfa tímanum þar sem almenningi gefst kostur á að taka þátt sér til ánægju og að kostnaðarlausu.
Sem dæmi verður boðið upp á smiðju fyrir leikskólabörnin, öskudagsliðin eru boðin velkomin til að fá tilsögn í söng og lagavali (endilega að mæta í búningum), trommuhringur og Guitar Hero, svo eitthvað sé nefnt. Einnig verður hægt að kynna sér námið og hljóðfæri á staðnum. Kaffisala verður á vegum foreldrafélaganna.
Þar fyrir utan verða tónleikar í safnaðarheimili Akureyrarkirkju kl. 14, í Eymundsson Hafnarstræti kl. 15 og stórir gítartónleikar í Brekkuskóla kl. 16 en þar koma fram m.a. 200 gítarnemendur af Eyjafjarðasvæðinu og spila allir saman eitt lag, sem er einstakur viðburður.
Föstudaginn 20. febrúar verður kynning á tónsmiðjunum í Eymundsson frá kl. 15-17 og á Glerártorgi frá 16-18.
Sjá nánari dagskrá á www.tonak.is.

