Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Hlidarfjall270209TM_1

Gáfu Hlíðarfjalli 50 hjálma - 27.2.2009

Mjög góðar aðstæður til skíðaiðkunar hafa verið í Hlíðarfjalli undanfarnar vikur og núna hefur verið opið þar í rétt innan við 100 daga í vetur. Fjölmenni var í Fjallinu í dag í ágætu veðri og meðal gesta var Pétur Ringsted, svæðisstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar á Norðurlandi, sem afhenti forstöðumanni Hlíðarfjalls 50 skíðahjálma að gjöf frá fyrirtækinu. Lesa meira
 
Ak_stofa_skjamynd1

Vetrarfrí á Akureyri - 26.2.2009

Vetrarfrí eru hafin í grunnskólum á Akureyri og í Reykjavík. Gera má ráð fyrir að fjöldi fólks leggi leið sína norður til Akureyrar þessa dagana til að njóta lífsins með fjölskyldunni, enda mikið úrval viðburða og fjölbreytt afþreying í boði. Á vefsíðunni www.visitakureyri.is hefur verið safnað saman upplýsingum um helstu viðburði til glöggvunar fyrir heimamenn og gesti bæjarins. Lesa meira
 
Oskudagur09_2

Gestkvæmt í Ráðhúsi - 25.2.2009

Það hefur verið gestkvæmt í Ráðhúsi Akureyrarbæjar í dag þegar krakkar í skrautlegum öskudagsbúningum hafa lagt þangað leið sína til að syngja fyrir nammi. Sungið hefur verið á öllum hæðum og alls kyns lög, allt frá ættjarðarlögum til nýjustu dægurlagaslagara. Lesa meira
 
Minjasafn_aningarstadur

Þekkir þú áningarstaðinn og fólkið? - 25.2.2009

Það er ekki ofsögum sagt að ósk Minjasafnsins um aðstoð frá almenningi til að bera kennsl á áningarstaði og þá sem þar áðu hafi verið tekið með eindæmum vel. Hátt í 200 gestir, bæjarbúar og áhugasamir ferðalangar á leið um vetrarríkið Akureyri, hafa lagt hönd á plóginn og borist hafa upplýsingar um mjög margar myndir. Lesa meira
 
SN_Lundarskoli_feb09_1

Skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands - 24.2.2009

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur nú í febrúarmánuði haldið tónleika í grunnskólum bæjarins. Á efnisskránni er tónverkið Lykillinn eftir Tryggva M. Baldvinsson við sögu eftir Sveinbjörn I Baldvinsson. Sögumaður er Hannes Örn Blandon og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.

Lesa meira
 
Oskudagur06_7

Öskudagurinn á Akureyri - 24.2.2009

Að venju verður mikið um að vera á öskudaginn á Akureyri. Þann dag hefjast vetrarfrí í grunnskólum bæjarins og einnig má búast við að mikill fjöldi gesta verði í bænum því á sama tíma hefjast vetrarfrí í fjölmörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu. Lesa meira
 
Midbaer_deiliskipulag_210209_3

Mikill áhugi á nýjum miðbæ - 23.2.2009

Ríflega 150 manns sóttu kynningu á tillögum að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæinn á Akureyri sem haldin var á Amtsbókasafninu á laugardag. Þar gerðu bæjarstjóri, hönnuður frá Graeme Massie Architects og skipulagsstjóri grein fyrir skipulagshugmyndunum og svöruðu fyrirspurnum.

Lesa meira
 
Brekkuskoli

Örugg netnotkun barna - 23.2.2009

Foreldrum, forráðamönnum og öðrum áhugasömum er boðið á fyrirlestur um örugga netnotkun barna og unglinga sem haldinn verður í dag, mánudaginn 23. febrúar, kl. 18 á sal Brekkuskóla á Akureyri. Lesa meira
 
Midbaer_Hafnarstraeti_feb09

Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæinn - 21.2.2009

Akureyrarbær og Graeme Massie Architects hafa á síðustu misserum unnið markvisst að því að móta verðlaunahugmyndir úr hugmyndasamkeppni Akureyrar í öndvegi. Nú liggur fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi og er óskað eftir viðbrögðum íbúa og atvinnurekenda við þeim. Markmiðið er að miðbærinn verði öflugur vettvangur mannlífs, menningar og atvinnutækifæra.

Lesa meira
 
Polyhudun_eflingarsamn

Eflingarsamingur við Pólýhúðun - 20.2.2009

Sigþór Heimisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Pólýhúðun á Akureyri, og Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, undirrituðu í gær eflingarsamning til atvinnuuppbyggingar hjá þessu nýja og ört vaxandi fyrirtæki. Pólýhúðun býður umhverfisvæna og hagkvæma leið til lökkunar á málmhlutum með svokallaðri pólýhúðun eða innbrenndri duftlökkun. Lesa meira
 
Tango

Tangóhelgi á Akureyri - 20.2.2009

Tangóklúbbur Norðurlands stendur fyrir sérstakri tangóhelgi á Akureyri um helgina. Hið frábæra tangópar Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya koma norður í þriðja sinn og dansa sig inn í konudaginn með Norðlendingum. Sporin verða rifjuð upp með reyndum dönsurum og byrjendum kennt frá grunni.

Lesa meira
 
Tonlistarskoli

Dagur tónlistarinnar á Akureyri - 19.2.2009

Laugardaginn 21. febrúar verður "Dagur tónlistarskólanna" haldinn hátíðlegur. Þá verður opið hús í Tónlistarskólanum á Akureyri að Hvannavöllum 14 frá kl. 10-14. Tónleikar verða á heila tímanum og opnar tónsmiðjur á hálfa tímanum þar sem almenningi gefst kostur á að taka þátt sér til ánægju og að kostnaðarlausu. Lesa meira
 
LA_Fularamoti

Þær eru lentar á Akureyri! - 18.2.2009

Edda Björgvinsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir og Björk Jakobsdóttir eru "Fúlar á móti" í nýju skítfyndnu uppistandi í útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi Akureyrar föstudaginn 20. febrúar. Þetta er í fyrsta skipti sem þessar vinsælustu uppistandsleikkonur þjóðarinnar stíga saman á stokk og einnig í fyrsta skipti sem þær leika hjá Leikfélagi Akureyrar. Lesa meira
 
Vetrarhatid_feb09_4

Akureyri á Vetrarhátíð - 17.2.2009

Sérstakir gestir á Vetrarhátíð í Reykjavík um síðustu helgi voru fulltrúar úr ferðaþjónustu á Akureyri og af Norðurlandi öllu. Þeir höfðu aðsetur í Höfuðborgarstofu þar sem kynntar voru dásemdir Norðurlands, gestir og gangandi fengu að bragða á norðlenskum matvælum og boðið var upp á ýmsar óvæntar uppákomur.

Lesa meira
 
Saunn_Torsteinsdottir_DaLi_Galleri

Menningarbærinn um helgina - 13.2.2009

Það verður án efa forvitnilegt að skoða sýninguna Þekkir þú...áningastaðinn? sem opnar á morgun klukkan 14 í Minjasafninu á Akureyri. Sýningin samanstendur af 80 óþekktum myndum úr safni Minjasafnsins. Lesa meira
 
utsvar

Akureyringar keppa í Útsvari - 13.2.2009

Lið Akureyrar mætir liði Fljótsdalshéraðs í átta liða úrslitum spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, klukkan 20.15 í kvöld í Sjónvarpinu. Fyrir hönd Akureyrar keppa eins og áður Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Finnur Friðriksson og Pálmi Óskarsson. Lesa meira
 
unak_solborg_mai06

Sex sóttu um starf rektors - 12.2.2009

Staða rektors við Háskólann á Akureyri var auglýst þann 9. janúar 2008 og rann umsóknarfrestur út þann 10. febrúar sl. Alls bárust sex umsóknir um starfið, umsækjendur eru í stafrófsröð:

Lesa meira
 

Sumarstörf hjá Akureyrarbæ - 11.2.2009

Umsóknartímabil sumarstarfa hjá Akureyrarbæ hófst í dag, 11. febrúar, og stendur til 18. mars nk. Fjölbreytt störf eru í boði og eru umsækjendur hvattir til þess að kynna sér framboðið á heimasíðu bæjarins.

Lesa meira
 
Skak_GylfiThorhalls_SBJ

Skákfélag Akureyrar 90 ára - 10.2.2009

Skákfélag Akureyrar fagnaði í dag 90 ára afmæli sínu en félagið var stofnað 10. febrúar 1919. Ýmislegt var gert til hátíðarbrigða vegna þessara tímamóta. Klukkan 17.00 var opið hús í skákmiðstöð félagsins í suðurenda Íþróttahallarinnar þar sem meðal annars var undirritaður samningur við Akureyrarbæ um skákþjálfun barna og unglinga undir heitinu „Æskan að tafli“.

Lesa meira
 
RES_setning_BjornGunnarsson

RES Orkuskólinn settur - 9.2.2009

RES Orkuskólinn á Akureyri (RES – the School for Renewable Energy Science) var settur á laugardag í annað sinn. Á komandi námsári munu yfir fjörtíu nemendur frá fjórtán löndum hefja meistaranám í vistvænni orkunýtingu við skólann. Um er að ræða eins árs meistaranám í endurnýjanlegum orkufræðum og vistvænni orkunýtingu í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Lesa meira
 
Akureyri_7feb07_9

Álagningu fasteignagjalda lokið - 9.2.2009

Álagningu fasteignagjalda á Akureyri er lokið og hafa álagningarseðlar verið póstlagðir. Þrátt fyrir ríflega 15% meðalverðbólgu á milli ára, hefur verið reynt að sporna gegn hækkun fasteignagjalda og nemur hún vel innan við helmingi af almennum verðhækkunum í þjóðfélaginu. Lesa meira
 
Brekkuskoli

Farsæld til framtíðar - 6.2.2009

Samtökin Landsbyggðin lifi hafa, í samvinnu við stofnanir og félagasamtök úr ýmsum greinum atvinnulífsins, skipulagt fundi á landsbyggðinni undir kjörorðunum Farsæld til framtíðar! Fyrsti fundurinn verður á Akureyri laugardaginn 7. febrúar 2009 kl. 12.30-15.00 í Brekkuskóla við Laugargötu.

Lesa meira
 
Ketilhus_ArnaVals

Landráð af gáleysi? - 6.2.2009

Landráð er alvarlegasti glæpur sem hægt er að fremja. Eru útrásarvíkingarnir Quislingar Íslands – af gáleysi? Er hægt að koma lögum yfir þá? Er hægt að kæra fyrir landráð af gáleysi? Hvaða möguleikar eru til lögsókna fyrir almenning, fyrir þjóðina? Þessum og fleiri spurningum verður velt upp á borgarafundi í Ketilhúsinu nk. sunnudag kl. 15.00.

Lesa meira
 
Sumardfyrsti06_1

Opið hús í leikskólum - 4.2.2009

Dagur leikskólans var haldinn í fyrsta skipti 6. febrúar á síðasta ári en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Ákveðið var að halda upp á daginn ár hvert og í fyrra gaf menntamálaráðuneytið út bæklinginn “Dagur leikskólans” í samvinnu við samstarfsaðila. Lesa meira
 
Akureyri_17nov05

Styrkir úr Menningarsjóði - 4.2.2009

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar og er umsóknarfrestur til 13. febrúar. Það er stjórn Akureyrarstofu sem úthlutar úr sjóðnum í febrúar og september ár hvert en hlutverk hans er að styrkja listastarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri með fjárframlögum. Lesa meira
 
Hjorleifur-Jonsson

Slagverk í Ketilhúsinu - 3.2.2009

Næstu Föstudagsfreistingar í Ketilhúsinu eru spennandi fyrir allt tónlistaráhugafólk, hvaða tónlistarstefnu sem það telur sig tilheyra. Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari flytur verk fyrir ýmis slagverkshljóðfæri. Lesa meira
 
Samlist_Facebook

Samlist leitar að húsnæði - 2.2.2009

Skráning er komin á fullt skrið í verkefnið Samlist á Akureyri en þar er um að ræða grasrótarstarf listamanna í bænum með nýjar leiðir að markmiði. Verkefnið er unnið í samvinnu við Akureyrarstofu og Vinnumálastofnun.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica