Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson
Næstu vikurnar verður opið hús í Glerárkirkju fyrir fólk í atvinnuleit alla mánudaga og þar verða einnig veittar ýmsar gagnlegar upplýsingar um atvinnumál og fleira. Húsið verður opnað kl. 9.00 árdegis, kl. 9.30 hefst upplýsingamiðlun og frá 10.00-11.00 verður almennt kaffispjall þar sem boðið verður upp á brauð, álegg og kaffi. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Lesa meira
Frá og með 1. febrúar nk. verða breytingar á opnunartíma gámasvæðis við Réttarhvamm og urðunarstaðar á Glerárdal.
Lesa meira
Hópferðabílar Akureyrar ehf. bjóða nú sætaferðir upp í Hlíðarfjall og til baka, alla daga nema þriðjudaga og sunnudaga. Þetta er kærkomin nýjung sem margir munu eflaust nýta sér
Lesa meira
Í kvöld og annað kvöld býður Leikfélag Akureyrar upp á fyrstu gestasýningu ársins. Þar eru á ferðinni tveir af okkar reyndustu dönsurum, þær Ástrós Gunnarsdóttir og Lára Stefánsdóttir. Sýnt verður í Samkomuhúsinu föstudagskvöldið 23. janúar og laugardagskvöldið 24. janúar.
Lesa meira
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00. Einleikari á orgel er Eyþór Ingi Jónsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá tónleikanna er Orgelkonsert í a-moll op. 100 eftir Marco Enrico Bossi og Sinfónía nr. 4 eftir Ludvig van Beethoven.
Lesa meiraÁ fimmtudag verður haldinn opinn fundur í Brekkuskóla á Akureyri frá kl. 18.00 til 21.00 undir yfirskriftinni "Gleðilegt ár 2009". Ræddar verða spurningar á borð við þessar: Staðan er eins og hún er... hvað getum við gert? Hvernig hlúum við að því góða sem við eigum og hvernig sköpum við nýtt?
Dýrleif Bjarnadóttir píanókennari lauk störfum við Tónlistarskólann á Akureyri nú á dögunum en þá hafði hún starfað við skólann í 44 ár. Dýrleif hóf sjálf nám við Tónlistarskólann á Akureyri árið 1951 þá aðeins 8 ára gömul og gekk síðar til liðs við skólann sem kennari undir stjórn Jakobs Tryggvasonar.
Lesa meira
Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA er Íþróttamaður Akureyrar 2008. Önnur í kjörinu var Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona í Skíðafélagi Akureyrar og í þriðja sæti var Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni.
Lesa meira
Á föstudag frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritið Falið fylgi, nýtt verk eftir Bjarna Jónsson. Leikritið segir frá Ellen sem er að leggja af stað í kosningabaráttu sem frambjóðandi í prófkjöri. Hún ræður til sín tvo starfsmenn og fljótlega kemur í ljós að þeir eiga erfitt með að vinna í teymi. Þegar dularfullur maður tekur að gerast daglegur gestur á skrifstofunni reynir fyrir alvöru á forsvarsmenn framboðsins.
Lesa meira
Hinn landsþekkti klifrari og fjallaleiðsögumaður Jökull Bergmann hefur sagt kreppunni stríð á hendur og sett í loftið nýja heimasíðu fjallaleiðsögufyrirtækið. Þetta er nýjung í framboði á fjallaferðum á Íslandi þar sem mikil áhersla er lögð á t.d þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga.
Lesa meira