Við áramót
Bæjarstjórn Akureyrar og bæjarstjórinn, Sigrún Björk Jakobsdóttir, óska Akureyringum og landsmönnum öllum gleðilegs árs. Sigrún Björk sendir bæjarbúum kærar kveðjur á þessum tímamótum:
„Árið 2009 færir okkur ný tækifæri. Það verður ár breytinga, ekki bara fyrir okkur Íslendinga heldur allan heiminn. Við verðum að einsetja okkur að grípa tækifærin og nýta sköpunarkraftinn til góðra verka. Það er undir okkur komið hvernig framtíðin verður.
Því heiti ég á ykkur, góðir Akureyringar, að við snúum bökum saman, jafnt einstaklingar, félög sem fyrirtæki, með bæjarstjórn í fararbroddi. Ég heiti á ykkur til samstöðu og samstarfs, eljusamra athafna, að við horfum öll hugrökk fram á veginn.
„Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?“ Þessa spurði Jónas Hallgrímsson í kvæðinu Ísland í fyrsta árgangi Fjölnis árið 1835 og lyfti íslenskri ættjarðarást í áður óþekktar hæðir.Við skulum vinna þannig, að við getum þennan dag að ári liðnu svarað: „Já, við höfum gengið til góðs götuna fram eftir veg.“
Þetta skal vera áramótaheit okkar á fyrsta degi ársins 2009.
Ég óska ykkur farsældar á nýju ári og megi gæfan vaka yfir bænum okkar og íbúum hans.
Gleðilegt ár!"

