Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Matís eflir starf sitt á Akureyri

19.3.2007

Matís á Akureyri (Matvælarannsóknir Íslands) hefur tekið í notkun myndgreinibúnað sem mun stórefla rannsóknir fyrirtækisins á svæðinu. Þegar hefur verið fjölgað um hálft stöðugildi og stefnt er að því að fjölga um nokkur stöðugildi til viðbótar með frekari eflingu rannsókna.

MatisMyndgreinibúnaðurinn gefur möguleika á að rannsaka smásæja byggingu matvæla og tölfræðilegri úrvinnslu gagna. Búnaðurinn gerir Matís því mögulegt að efla rannsóknar- og þróunarstarf í þágu fyrirtækja í matvælaiðnaði. Má þar nefna rannsóknir á gæðum og eiginleikum matvæla og nýtingu þeirra, svo sem lambakjöts, mjólkurafurða og fisks. Búnaðurinn mun einnig nýtast við rannsóknir á ónæmiskerfi lúðu- og þorsklirfa á fyrstu og viðkvæmustu stigum eldisins. Þá verður hægt að efla enn frekar rannsóknir á eldisfiski og öðrum eldistegundum, svo sem áhrifum fóðurs á eiginleika afurða.

„Matís hefur lagt mikla áherslu á að styrkja rannsóknarstarf sitt á Akureyri og myndgreinibúnaðurinn er einn liður í því. Við sjáum fram á að fjölga um 2-3 stöðugildi ef okkur tekst að fullnýta búnaðinn í samvinnu við framleiðendur og fyrirtæki í matvælaiðnaði. Þá kemur búnaðurinn einnig til með að nýtast háskóla- og vísindasamfélaginu á Akureyri sem er í mikilli sókn,“ segir Rannveig Björnsdóttir deildarstjóri hjá Matís.

Starfsmenn hjá Matís á Akureyri eru fimm en fyrirtækið sinnir matvælarannsóknum í samstarfi við Háskólann á Akureyri, aðrar stofnanir og fyrirtæki á Norðurlandi. Auk þess eru fjórir nemendur á vegum Matís í meistaraverkefnum á Akureyri.

Matís tók til starfa um síðustu áramót en þar sameinast starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Matvælarannsókna Keldnaholti (MATRA), Rannsóknastofu Umhverfisstofnunar, líftæknifyrirtækisins Prokaria og Iceprotein.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica