Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Akureyri_juli09

Starfslaun listamanna - 17.3.2010

Minnt er á að umsóknarfrestur um starfslaun listamanna á Akureyri rennur út föstudaginn 19. mars en auglýst var eftir umsóknum fyrir tímabilið 1. júní 2010 til 31. maí 2011. Starfslaunum verður úthlutað til eins listamanns og hlýtur viðkomandi sex mánaða laun.

Lesa meira
 
StoraUpplestrar08_1

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar - 17.3.2010

Grunnskólarnir á Akureyri taka nú þátt í Stóru upplestrarkeppninni í 10. sinn. Hefð hefur skapast um að halda lokahátíð keppninnar í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri og verður hún haldin þar í dag, miðvikudaginn 17. mars og hefst kl. 17.00.

Lesa meira
 
borgarafundur

Borgarafundur í Deiglunni - 17.3.2010

Borgarafundur verður haldinn í Deiglunni fimmtudagskvöldið 18. mars kl. 20.00 undir yfirskriftinni "Samheldnin í akureyrsku samfélagi". Þar verður leitast við að svara spurningum eins og þeim hvort samheldnin geti orðið samfélagi okkar til tjóns eða hvort við getum virkjað hana okkur til góðs á tímum þrenginga.

Lesa meira
 
TryggviOlafsson

Tryggvi Ólafsson á Akureyri - 16.3.2010

Listmálarinn og myndskáldið Tryggvi Ólafsson mun eiga samtal við nemendur listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) og aðra gesti í Ketilhúsinu föstudaginn 19. mars klukkan 14.50. Þessi viðburður er í tengslum við opnun á sýningu verka Tryggva í Listasafninu á Akureyri. Sýningin er unnin í samvinnu við Listasafn Tryggva Ólafssonar á Neskaupsstað.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica