Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

hjolreidastigur_kjarna2

Ný fjallahjólabraut í Kjarnaskógi - 2.9.2010

Á laugardaginn kl. 10:00 verður ný fjallahjólabraut vígð í Kjarnaskógi. Vinna við lagningu brautarinnar hófst sumarið 2008 með lagningu 3. kílómetra langra brauta sem strax urðu mjög vinsælar. Í kjölfarið var ákveðið að ráðast í frekari framkvæmdir og nú verður opnuð sérhönnuð fjallahjólabraut þar sem hægt er að hjóla 12 kílómetra langan hring.

Lesa meira
 
Sumarmynd

Opinn íbúafundur um staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis - 1.9.2010

Skipulagsdeild f.h. Akureyrarbæjar býður til opins íbúafundar fimmtudaginn 2. september kl. 20:30 í Síðuskóla. Umræðuefni: Staðsetning nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri og mun Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri stýra fundinum.

Lesa meira
 
gongum_saman

“Göngum saman” - 1.9.2010

Hin árlega styrktarganga Krabbameinsfélagsins, “Göngum saman”, fer fram á sunnudaginn kl. 11:00 og er markmið göngunnar að styrkja íslenskar grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Samtökin veita árlega styrki til íslenskra rannsóknaraðila og í ár er stefnt að því að veita 5 milljóna króna styrk.

Lesa meira
 
Gasir-2006

Menningarminjadagur Evrópu á sunnudaginn - 1.9.2010

Haldið verður upp á Menningarminjadag Evrópu á sunnudaginn og er viðfangsefni dagsins að þessu sinni sjávar- og strandminjar. Af því tilefni mun Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra leiða gesti um hinn forna verslunarstað Gásir við Eyjafjörð kl. 14:00 á nk. sunnudag.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica