Sorphirða

  Löng hefð hefur verið meðal íbúa sveitarfélagsins í flokkun endurvinnsluefna. Til margra ára hafa verið starfræktir sex grenndarvellir til að taka á

Flýtilyklar

Sorphirða

 

Löng hefð hefur verið meðal íbúa sveitarfélagsins í flokkun endurvinnsluefna. Til margra ára hafa verið starfræktir sex grenndarvellir til að taka á móti fernum og dagblöðum og á síðustu árum hefur bæst við möguleiki á flokkun á plasti, minni málmhlutum og glerkrukkum  á gámasvæðinu við Réttarhvamm.

Í septembermánuði  árið 2010 samþykkti bæjarstjórn Akureyrar að stíga stórt skref í sorpmálum sveitarfélagsins. Ákveðið var að auka flokkun úrgangs með það að markmiði að lágmarka urðun hans og auka endurvinnslu.

Til þess að gera þetta kleift var tekið  upp svokallað tveggja íláta kerfi þar sem 35 lítra sérsmíðuðu íláti fyrir lífrænan heimilisúrgang er komið fyrir í hefðbundinni 240 lítra sorptunnu sem ætluð er fyrir almennan úrgang til urðunar. Lífræna eldhússorpið fer til moltugerðar í nýrri verksmiðju Moltu ehf að Þverá en almennt sorp fer til urðunar í Stekkjarvík við Blönduós.

Grenndarvöllum verður fjölgað í hverfunum og umhverfi þeirra og aðgengi bætt, auk þess sem ílátum fyrir endurvinnsluefni eins og bylgjupappa, sléttan pappa, plast, minni málmhluti, glerílát, rafhlöður og kertaafganga verður einnig komið fyrir og þannig stuðlað betur að því að hámarka verðmæti þessa úrgangs.

Í lok ársins 2010 var samið við Gámaþjónustu Norðurlands um sorphirðu og fyrir liggur að gengið verði til samninga við fyrirtækið um móttöku og flutning á sorpi til urðunar í Stekkjarvík norðan við Blönduós. Gámaþjónusta Norðurlands tekur einnig að sér að hirða sorp frá stofnunum Akureyrarkaupstaðar og farga lífræna sorpinu á Þverá í Eyjafirði, flokka endurvinnanlegt sorp og urða afganginn í Stekkjarvík.

Bæklingur um úrgangsmál og endurvinnslu á Akureyri

Fræðslumyndband um söfnun á lífrænum úrgangi má finna hér.

Flokkun endurvinnsluefna á grenndarstöð

Forsenda endurnýtingar og endurvinnslu úrgangs er vönduð flokkun. Úrgangur sem er vandlega flokkaður er hráefni í nýjar vörur en ef hann er blandaður er hann óendurnýtanlegur og því aðeins hægt að urða hann.

Leiðbeiningar um flokkun endurvinnsluefna á grenndarstöðvum má nálgast hér.

  Flokkun úrgangs.

Grenndarstöðvar eru hugsaðar til móttöku á flokkuðum endurvinnsluúrgangi og eru staðsettar víða á Akureyri (sjá kort af staðsetningu hér). 

Mynd af staðsetningu grendarstöðva á Akureyri

Gámar á stöðvunum eiga að hafa merki  sem sýnir hvaða úrgangsflokka má setja í hvern gám.

Endurvinnsluefnin er einnig hægt að flokka með því að setja þau í "endurvinnslutunnuna" frá Gámaþjónustunni hf. eða í "grænu tunnuna" frá Íslenska Gámafélaginu ehf.

Stöðuna á verkefninu, þ.e. á dreifingu og fræðslu, má finna á nýjum vef Gámaþjónustu Norðurlands

Samþykkt um sorphirðu í Akureyrarkaupstað.

Sorphirðudagatal fyrir árið 2012.

 

Gámasvæði Akureyrar við Réttarhvamm. Rekstaraðili: Gámaþjónusta Norðurlands. Sími: 4140200 

Opið á sumrin (16. maí til 15. ágúst):

Mánudaga til föstudaga kl. 13.00- 20.00.

Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00.

Yfir vetrartímann (16. ágúst til 15. maí):

Mánudaga til föstudaga kl. 13.00 - 18.00.

Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00.

 

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:57
+2.8°SSA 1 m/s

Hausmyndir

  • Framkvæmdadeild - hausmynd

    Framkvæmdadeild

    Á framkvæmdadeild er dagleg stjórnun framkvæmda bæjarins. Undir það fellur hönnun og mælingar, gerð og viðhald gatna og gangstétta, fráveita, sorphirða, garðar og opin svæði, og Staðardagskrá 21.

 

Þú breytir fætinum í stillingum