Hamragerði 10
Eigendur: Gunnlaugur Frímannsson og Guðlaug Halla Ísaksdóttir
Stór, afar snyrtilegur og vel hirtur eldri garður sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga. Mikið úrval af skrautplöntum og þess má geta að eigendur framleiða öll sín sumarblóm í allstóru gróðurhúsi á suðurlóð. Rammgerðir skjólveggir við hellulagða verönd með fjölbreyttum gróðri í kring. Rifsberjarunnar í norðausturhluta og mikið af sumarblómum áberandi við aðalinngang hússins og í kerum sunnan við hús og víðar. Í heildina mjög stílhrein og vel hirt lóð.
Stekkjatún 12
Eigendur: Angantýr Arnar Árnason og Björk Elva Brjánsdóttir
Stór og mikil verönd sunnan við hús, blanda af steypu og timbri. Mikið af fjölbreyttum gróðri fyrir utan og innan skjólveggina. Mikið af blómum í kerjum á veröndinni og klifurplöntur og runnar klæða veggi. Snyrtilegt garðhýsi á lóðamörkum. Reitir með matjurtum fyrir austan húsið. Framlóðin snyrtileg með burknum og runnum í upphækkuðum beðum við inngang. Í heildina mjög glæsileg parhúsalóð.
Holtagata 11
Eigendur: Óli Austfjörð og Elsa Heiðdís Hólmgeirsdóttir
Mjög fallegur garður sem fellur vel að húsinu. Hæðarmunur á lóðinni tekinn af með samblandi af timburkerum og náttúrugrjóti. Í kerum er blanda af sígrænum og lauffellandi runnum. Sunnan við húsið er fallegur garðskáli og þar í framhaldi falleg lítil verönd og lítið garðhýsi. Tré og runnar á lóðinni hafa verið endurnýjuð að mestu leyti en þó standa eftir nokkur eldri tré sem en undir þau hefur verið plantað skrautrunnum af ýmsum tegundum. Í heildina mjög vel hirt og smekkleg lóð.
Þingvallastræti 23 Icelandair Hotels
Eigendur: Þingvangur ehf
Mjög snyrtileg og hreinleg aðkoma með smástétt og gróðri við aðalinngang. Beð og bílastæði austan við hús mjög snyrtileg. Grasflatir fínar og gömlu aspirnar njóta sín á austur lóðinni. Mikill halli á suður og vesturlóð tekin af með hleðslum og fláum úr náttúrugrjóti. Í fláa er plantað skrautrunnum af ýmsu tagi. Stór hellulögð verönd er vestan við húsið með flottum bekkjum, borðum og kerum úr timbri. Í heildina er allur frágangur til fyrirmyndar.
Mýratún 2
Eigendur: Óli Bjarni Ólason
Mjög snyrtilegur og vel frágenginn nýr garður, vel afmarkaður af skjólveggjum á alla kanta.
Hellulögð bílastæði og verönd fyrir sunnan, vestan og norðan við hús. Hluti sólpalls úr timbri sem afmarkað er með bogsveigðum línum. Beðin öll vel afmörkuð með kantstein og allmikill hæðarmunur tekinn af suður og vesturlóð með fallegum steinhleðslum. Í beðum eru aðallega lágvaxnir skrautrunnar. Lítil tjörn og garðlýsing auka enn á stemminguna. Í heildina mjög stílhrein og vel hirt lóð.

