Svifryksmengun innan markanna árið 2011

Svifryksmengun innan markanna árið 2011 Svifryksmengun innan markanna árið 2011 Loftmengun um áramót vegna flugelda getur orðið talsverð eins og íbúum

Flýtilyklar

Svifryksmengun innan markanna árið 2011

Yfirlit yfir svifryk árið 2011
Yfirlit yfir svifryk árið 2011

Svifryksmengun innan markanna árið 2011

Loftmengun um áramót vegna flugelda getur orðið talsverð eins og íbúum Akureyrar varð ljóst um s.l. áramót, en þá var hæg norðanátt og þykkt reykjarský lagðist yfir bæinn og sást það t.d. greinilega á myndbandi sem tekið var austur í Vaðlaheiði og sýnt var á N4 nýlega (upptaka frá vefmyndavél Mílu ehf, slóðin er ;  http://www.youtube.com/watch?v=by7QzL3JX98

Svokallað 10 mín gildi sýndi mælingu nálægt 1.303 PM10 fljótlega eftir áramótin og féll svo og var komið niður í um 50 PM10 um kl. 02:00 (sjá hér)

Meðalgildið, en það er sú mælieining sem farið er eftir þegar metin eru hvort mörk loftgæða séu heilsuspillandi, var hinsvegar rétt yfir mörkunum (sem eru 50 PM10) eða um 76 PM10.

Annars fer svifryk á árinu 2011 fimm sólarhringa yfir mörkin, en það er um mánaðarmótin apríl / maí, í júní, í september og tvisvar í nóvember (sjá hér). Athygli vekur að í júní þá eru það væntanlega á Bíladögum (18 og 19. júní) sem mengunin verður tæplega 136 PM10, sem jafnframt er hæsta meðalgildi ársins.

Hinsvegar er ánægjulegt að sjá að þeim dögum þar sem að loftmengun er yfir mörkum, hefur fækkað frá fyrri árum. Þess ber þó að gæta að mælirinn er ekki að mæla á um tveimur og hálfum mánuði í byrjun ársins.

Bláa mælilínan er færanlegur mælir sem að var staðsettur við Leikskólann Flúðir í upphafi ársins og voru niðurstöður hans í takti við mælinn við Tryggvabraut. Þessi mælir var síðan lánaður á Suðurlandið og mældi þar áhrif gosösku eins og glöggt má sjá í júní- og júlímánuði (sjá hér).

 


Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:55
+2.8°SSA 1 m/s

Hausmyndir

  • Framkvæmdadeild - hausmynd

    Framkvæmdadeild

    Á framkvæmdadeild er dagleg stjórnun framkvæmda bæjarins. Undir það fellur hönnun og mælingar, gerð og viðhald gatna og gangstétta, fráveita, sorphirða, garðar og opin svæði, og Staðardagskrá 21.

 

Þú breytir fætinum í stillingum