Framkvæmdadeild

Á framkvæmdadeild er dagleg stjórnun framkvæmda bæjarins. Undir það fellur hönnun og mælingar, gerð og viðhald gatna og gangstétta, fráveita, sorphirða, garðar og opin svæði, og Staðardagskrá 21.

Fréttasafn

Mynd úr Hrísey

Gróðurkort fyrir Hrísey

1.12.2009

Gróðurkortlagning Hríseyjar 2007.

Að beiðni forstöðumanns umhverfismála var samið við Náttúrufræðistofnun Íslands um gerð gróðurkorts af Hrísey.

Markmið með gróðurkortlagningu var að fá yfirlit yfir gróðurfar í Hrísey árið 2007 með því að kortleggja gróðurfélög sem þar finnast og meta stærð þeirra. Sérstök áhersla var lögð á að kortleggja útbreiðslu alaskalúpínu og skógarkerfils og fá þannig skýra mynd af þróun og útbreiðslu þessara tegunda undanfarin ár en þær hafa breiðst hratt út í eyjunni á síðustu áratugum. Með sama áframhaldi má gera ráð fyrir að útbreiðsla þessara tegunda í Hrísey tvöfaldist á næstu árum. Því er nauðsynlegt að leita allra leiða til að hefta útbreiðsluna.

Gróðurkortið má sjá hér og skýrsluna í heild má sjá hérna.







Útlit síðu:

Haus_framkvdeild4

Þetta vefsvæði byggir á Eplica