Útivistarsvæðið Kjarnaskógi
Sími 462 4047.
Forstöðumaður er Hallgrímur Indriðason, pósthólf 521.
Fjölbreytt útivistarsvæði með alhliða möguleikum til hollrar útivistar. Svæðið er í eigu Akureyrarbæjar en í umsjá Skógræktarfélags Eyfirðinga. Í Kjarnaskógi eru upplýstar trimmbrautir og göngustígar. Þegar snjóar er brautin troðin og sporuð fyrir skíðagöngufólk. Þar eru einnig ýmis líkamsræktartæki, svo og bekkir til hvíldar fyrir þá sem þess þurfa. Í Kjarnaskógi er 70 m² hús með snyrtingum, kaffi og áburðaraðstöðu fyrir skíðafólk. Einnig eru þar tveir blakvellir sem ætlaðir eru almenningi og ýmis leiktæki fyrir börn og fullorðna. Góð grillaðstaða er fyrir almenning og er mjög vinsælt hjá fjölskyldum og hópum að safnast saman í Kjarna, grilla og eiga saman góðar stundir við leiki og náttúruskoðun.


