Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Íþróttamiðstöð Glerárskóla Höfðahlíð

Forstöðumaður: Samúel Jóhannsson

Vetur

Í Íþróttamiðstöð Glerárskóla fer fram grunnskólakennsla í íþróttum ásamt æfingum og keppnum íþróttafélaga.

Í Íþróttamiðstöðinni er bæði íþróttasalur og sundlaug, sem nýtt er af grunnskólum alla virka daga kl. 08.00-15.00. Þá er íþróttasalurinn leigður til félaga, t.a.m. fimleikafélagi Akureyrar, íþróttafélaginu Þór, Akur , Eik sem og til einstaklinga til kl. 22.00 alla virka daga og kl. 09.00 – 16.00 um helgar.

Glerárlaug
Glerárlaug er frábær innilaug sem hentar vel til sundkennslu barna og unglinga,auk allra annara kosta sem innilaugar hafa upp á að bjóða.

Á svæðinu eru einnig tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útiklefa.

Glerárlaug er nýtt eftir skólatíma af Sundfélaginu Óðinn, Gigtarfélaginu, fötluðum og eldri borgurum auk almennings.

Opnunartími Glerárlaugar;

Alla virka daga kl. 06.45-08.00 og 17.30-21.00
Laugard. og Sunnud. kl. 09.00-14.30

Um 125 þúsund gestir sóttu íþróttahúsið á árinu 2005 og um 60 þúsund gestir sóttu Glerárlaugina.

glerarlaug_krakkar





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica