Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Strætisvagnar

Strætisvagnar

  • Opnunartímar: Ekið frá kl. 6.25 til 23.03 alla virka daga
  • Heimilisfang: Rangárvöllum, 600 Akureyri
  • Sími: 462 4929 (skrifstofa)
  • Fax: 462 4930
  • Netfang: svak@akureyri.is

Hlutverk Strætisvagna Akureyrar er að annast almenningssamgöngur á Akureyri með akstri vagna í samræmi við tímasett leiðakerfi. Ennfremur er rekin ferliþjónusta á vegum SVA fyrir fatlaða og aldraða einstaklinga sem ekki geta nýtt sér þjónustu SVA.

Ferliþjónustan hefur til þess sér útbúna bíla og er ekið frá kl. 7.30 til 23.00 alla virka daga. Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur sér um símsvörun fyrir ferliþjónustuna. Allar beiðnir um akstur eða breytingar á ferðum þurfa að tilkynnast daginn áður en akstur fer fram í síma 462 5959 fyrir kl. 15.30.

Starfsemi SVA er eins og fram kemur á undan fólgin í að reka strætisvagna til almenningsnota. Á vegum strætisvagnanna er rekið verkstæði til viðhalds vagnanna og til að þrífa þá að loknum vinnudegi eða á öðrum tímum ef ástæða er til.

Leiðakerfi SVA

Smellið HÉR til að skoða yfirlitskort.

Smellið HÉR til að skoða einstaka leiðir.

FARGJÖLD SVA

Ókeypis hefur verið í strætó á Akureyri frá og með janúar 2007.

Upplýsingar um leiðir vagnanna má nálgast í biðskýli þeirra við Ráðhústorg, sími: 462 4020.

Stefnumörkun um SVA

"Allir með strætó" greinargerð vinnuhóps framkvæmdaráðs, maí 2004.





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica