Fasteignir Akureyrarbæjar

Fasteignir Akureyrarbæjar voru stofnaðar í mars 2001 og er eignarhalds- og rekstrarfélag í eigu Akureyrarbæjar. Félagið hefur sérstaka stjórn sem starfar í umboði bæjarstjórnar og hefur umsjón með öllum fasteignum í eigu bæjarins.

Næstu útboð

Verkþættir við menningarhúsið á Akureyri

Febrúar 2007: Iðngreinaútboð.
Boðnir verða út sérstaklega verkþættir eftir iðngreinum s.s. trésmíði, múrverk, lagnir, loftræsting, raflagnir, málun og dúkalögn. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist í júní/júlí 2007 og verði lokið í september/október 2008.

Mars 2007: Lóðaframkvæmdir.
Gert er ráð fyrir að grófvinna vegna lóðar verði unnin á síðari hluta ársins 2007 og að lóðarframkvæmdum verði svo að fullu lokið í september 2008.

Maí 2007: Brúarframkvæmdir.
Brú sem tengir menningarhúsið við aðkomu frá bænum. Framkvæmdum við hana skal vera lokið í október/nóvember 2007.

Einnig verður leitað tilboða í ýmsa aðra þætti á fyrrihluta ársins 2007, s.s. sviðsbúnað, lyftur, lausan búnað o.fl. Hluta þessara þátta þarf að afhenda á árinu 2007 og aðra á árinu 2008.

Allt eru þetta áætlaðar tímasetningar og gerðar með fyrirvara um að verkið verði á áætlun.

 







Útlit síðu:

Fastak4

Þetta vefsvæði byggir á Eplica