Almennar upplýsingar

Fasteignir Akureyrarbæjar er þjónustustofnun sem hefur það að markmiði að uppfylla þarfir og væntingar viðskiptavina sinna og veita góða þjónustu við

Flýtilyklar

Almennar upplýsingar

Fasteignir Akureyrarbæjar er þjónustustofnun sem hefur það að markmiði að uppfylla þarfir og væntingar viðskiptavina sinna og veita góða þjónustu við notendur húsnæðis í eigu bæjarins. Fasteignir Akureyrarbæjar hafa það að markmiði:

  • að tryggja faglega hönnun, framkvæmd og viðhald bygginga í eigu Akureyrarbæjar.
  • að bæta viðhald húsnæðis í eigu bæjarins með kerfisbundnum hætti.
  • að ná fram hagkvæmari innkaupum á vöru og þjónustu.
  • að gæði og ending fasteigna sé sem best verður á kosið.
  • að framkvæmdir séu í samræmi við tíma-, fjárhags- og kostnaðaráætlanir.
  • að ná fram betri nýtingu á húsnæðinu.
  • að tryggja notendunum sem besta þjónustu.
  • að ná fram hagræðingu í rekstri fasteigna.
  • að koma upp skráningu á viðhaldi fasteigna.

Stofnanir eru leigjendur hjá félaginu og er gerður leigusamningur við hverja stofnun fyrir sig sem tók gildi um áramót 2001/2002. Fasteignir Akureyrarbæjar leggja áherslu á gott samstarf og þjónustu við viðskiptavini sína og hafa að leiðarljósi fagleg vinnubrögð við hönnun, framkvæmd og viðhald húsnæðis. Helstu flokkar fasteigna sem félagið hefur umsjón með eru:

  • Leikskólar
  • Grunnskólar
  • Íþróttahús
  • Sundlaugar
  • Menningar og listahús
  • Dvalarheimili
  • Sambýli
  • Þjónustumiðstöðvar
  • Skrifstofuhúsnæði
  • Slökkvistöð
  • Leiguíbúðir
  • Aðrar eignir
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:43
+2.8°SSA 1 m/s

Hausmynd

  • Fasteigir - hausmynd

    Fasteignir Akureyrarbæjar

    Fasteignir Akureyrarbæjar voru stofnaðar í mars 2001 og er eignarhalds- og rekstrarfélag í eigu Akureyrarbæjar. Félagið hefur sérstaka stjórn sem starfar í umboði bæjarstjórnar og hefur umsjón með öllum fasteignum í eigu bæjarins

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband