Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í byggingu og fullnaðarfrágang á húsi og lóð í Lystigarðinum á Akureyri. Húsið er um 180 m² og verönd við húsið um 150 m². Framkvæmdum við hús og lóð skal að fullu lokið eigi síðar en 11. maí 2012.
Um er að ræða bygging á kaffihúsi í Lystigarðinum á Akureyri, að Eyrarlandsvegi 30. Markmið framkvæmdanna er að mæta þörfum ferðamanna sem heimsækja garðinn og laða fleiri bæjarbúa að garðinum.
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 17. nóvember 2011 kl. 13:00 á Fasteignum Akureyrarbæjar Geislagötu 9, 4. Hæð og að honum loknum býðst verktökum að skoða aðstæður á verkstað í Lystigarðinum á Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent frá og með kl. 14.00 þann 11. nóvember 2011 hjá Fasteignum Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 4. hæð Akureyri.
Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl 13:00 í bæjarstjórnarsal Ráðhúss Akureyrarbæjar 4. hæð Geislagötu 9 Akureyri að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Tilboð skulu gilda í 4 vikur frá opnun þeirra. Fasteignir Akureyrarbæjar áskilja sér þann rétta að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.


