Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í innanhúsfrágang í kennslu- og verkgreinaálmu í öðrum áfanga Naustaskóla við Hólmatún 2 á Akureyri samtals um 1.350 m².
Útboðið er auglýst á EES svæðinu.
Útboðsgögn verða tilbúin til afhendingar á rafrænu formi frá og með 28. nóvember 2011 í gegnum netfangið dora@akureyri.is.
Kynningarfundur vegna framkvæmdanna verður haldinn fimmtudaginn 1. desember 2011 kl. 13:00 í bæjarstjórnarsal Ráðhúss Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akureyri
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 20. desember kl 11:00 hjá Fasteignum Akureyrarbæjar Geislagötu 9 4. hæð 600 Akureyri að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verklok eru áætluð 1. ágúst 2012.
Fasteignir Akureyrarbæjar áskilja sér þann rétt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.


