Lystigarðurinn á Akureyri opnaði árið 1912 og var fyrsti almenningsgarðurinn sem opnaði á Íslandi. Í lögum Lystigarðsfélags Akureyrar frá 1. nóvember 1910 kemur fram að tilgangur félagsins sé að koma upp garði í Akureyrarbæ, bænum til prýði og almenningi til skemmtunar. Garðurinn sé skreyttur trjám og blómum og leikvellir og lystihús séu þar almenningi til afnota svo fljótt sem því verður við komið. Á árinu 2012 verður Lystigarðurinn á Akureyri 100 ára og þykir Akureyrarbæ því við hæfi að hugmyndir stofnenda garðsins um lystihús í garðinum verði að veruleika.
Rekstur kaffihússins var boðinn út á vordögum 2011 og voru 4 aðilar sem buðu í reksturinn. Samið var við 1912 Veitingar um leigu á húsnæðinu og rekstur kaffihússins. Í framhaldinu var arkitektahönnunin boðin út og var samið við Kollgátu ehf. arkitektastofu um hönnun hússins og Verkís sér um burðarþols- og lagnahönnun. Hönnunin er langt komin og hefur húsið tekið á sig lokamynd.
Áætlað er að bjóða út byggingu kaffihússins í byrjun nóvember nk. og eru verklok áætluð 15. maí 2012.


