Ýmislegt
| 14 feb.. 2010 | 15 feb.. 2010 »
Bókmenntamessa í Akureyrarkirkju
Sunnudagurinn 14. febrúar kl. 11
Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur á Miklabæ í Skagafirði:
Brasilíufararnir eftir Jóhann Magnús Bjarnason.
Bókmenntamessur eru nýjung í kirkjulegu starfi og á sunnudag verður fyrsta messan af þessu tagi hér á landi haldin í Akureyrarkirkju. Í bókmenntamessum velur presturinn bók sem hann styðst við í prédikun. Ritningarlestrar eru valdir með hliðsjón af bókinni og lesnir eru stuttir kaflar úr henni í messunni. Bænir tengjast efni bókarinnar, sálmar og tónlistin einnig. Fyrirmyndin er frá Þýskalandi. Leikarar frá Leikfélagi Akureyrar lesa úr bókunum í messunum. Bækurnar eru fáanlegar á Amtsbókasafninu.


