Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri ól mig upp. Bærinn við fjörðinn. Bærinn við miðju landsins. Ég held að fæðingarstaður manns sé alltaf miðja alheimsins. Þaðan horfir maður yfir sviðið; þaðan er viðmiðið. Það hvarflar ekki að mér að skera á þessi bönd. Það væri lífsháski.” – Sigmundur Ernir Rúnarsson

Ýmislegt

| 12 feb.. 2010 | 13 feb.. 2010 »

12.02.2010 Ýmislegt

Þjónn í súpunni

Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn Friðrik V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp á 3ja rétta máltíð og "óhefðbundna þjónustu" á Friðrik V. Þjónar leika, leikarar þjóna, allir leika á gesti og gestirnir leika á als oddi. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA.

Nú eru nýir ”þjónar” með í för og forvitnilegt að vita hvernig þeir reynast! Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar tvær sýningar eru eins. Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var biðlisti eftir borðum. Það borgar sig því að vera snemma í því og panta borð í tíma.

Verð kr. 5.900. Innifalið er leiksýning og þriggja rétta kvöldverður með víni. Miða er hægt að panta á: fridrikv@fridrikv.is og í síma 461 5775. Þjónn í súpunni kl. 22.00 á Friðriki V.
 




Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica