Ýmislegt
| 8 feb.. 2010 | 9 feb.. 2010 »
Málþing: Hvað er kreppa?
Mánudaginn 8. febrúar kl. 15.00 boðar AkureyrarAkademían til spennandi málþings í gamla Húsmæðraskólanum undir yfirskriftinni "Hvað er kreppa?" Málþingið er haldið í samstarfi við Sagnfræðingafélag Íslands og eru erindi á þinginu hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins frá liðnu hausti.
Fundarstjóri verður Kristín Ástgeirsdóttir.
- Eins og venjulega er aðgangur ókeypis og allir velkomnir -
Dagskráin verður eftirfarandi:
15:00 Húsið opnar
15:15 Kristín Ástgeirsdóttir - Þingið sett
15:20 Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur - Er einhver að hlusta? Um ótta og eymd hugvísindanna
16:00 Sigrún Davíðsdóttir, blaðamaður - Kreppan og kunningjaþjóðfélagið
16:40 Hlé
17:00 Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur - Er íslenskt fullveldi í kreppu?
17:40 Umræður
18:00 Þingslit


