Tónlist
| 14 feb.. 2010 | 15 feb.. 2010 »
Gamalt og nýtt á tónleikum SN í Akureyrarkirkju
Á þessum tónleikum teflir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands saman nýrri og gamalli tónlist. Á efnisskránni verður Fiðlukonsert eftir Hauk Tómasson þar sem Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari leikur einleik. Einnig verður flutt Sinfónía nr. 25 eftir W.A.Mozart. Við flutning sinfóníunnar fær SN til liðs við sig strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri. Eru þessir tónleikar samstarfsverkefni SN og TA.


