Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri ól mig upp. Bærinn við fjörðinn. Bærinn við miðju landsins. Ég held að fæðingarstaður manns sé alltaf miðja alheimsins. Þaðan horfir maður yfir sviðið; þaðan er viðmiðið. Það hvarflar ekki að mér að skera á þessi bönd. Það væri lífsháski.” – Sigmundur Ernir Rúnarsson

Tónlist - 14. febrúar 2010

14.02.2010 Tónlist Gamalt og nýtt á tónleikum SN í Akureyrarkirkju

Á þessum tónleikum teflir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands saman nýrri og gamalli tónlist. Á efnisskránni verður Fiðlukonsert eftir Hauk Tómasson þar sem Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari leikur einleik. Einnig verður flutt Sinfónía nr. 25 eftir W.A.Mozart. Við flutning sinfóníunnar fær SN til liðs við sig strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri. Eru þessir tónleikar samstarfsverkefni SN og TA. Lesa meira
 

14.02.2010 Tónlist Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og strengjasveit Tónak

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri: Tónleikar í Akureyrarkirkju sunnudaginn 14. febrúar kl. 16.00. Einleikari á fiðlu er Sigrún Eðvaldsdóttir og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica