Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri ól mig upp. Bærinn við fjörðinn. Bærinn við miðju landsins. Ég held að fæðingarstaður manns sé alltaf miðja alheimsins. Þaðan horfir maður yfir sviðið; þaðan er viðmiðið. Það hvarflar ekki að mér að skera á þessi bönd. Það væri lífsháski.” – Sigmundur Ernir Rúnarsson

Myndlist

| 16 jan.. 2010 | 17 jan.. 2010 »

16.01.2010 - 07.03.2010 Myndlist og söfn

Joris Rademaker í Listasafninu

Yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan efnivið. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni.

Í tilefni af sýningunni hefur Listasafnið á Akureyri gefið út 90 blaðsíðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril og list Jorisar eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing og Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri.

Sýningin stendur til 7. mars 2010 og er opin alla daga nema mánudaga frá 12-17.
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica