Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri ól mig upp. Bærinn við fjörðinn. Bærinn við miðju landsins. Ég held að fæðingarstaður manns sé alltaf miðja alheimsins. Þaðan horfir maður yfir sviðið; þaðan er viðmiðið. Það hvarflar ekki að mér að skera á þessi bönd. Það væri lífsháski.” – Sigmundur Ernir Rúnarsson

Myndlist - 16. janúar 2010

09.01.2010 - 05.02.2010 Myndlist og söfn Anna Gunnarsdóttir: Chakra

Anna Gunnarsdóttir heldur sýninguna “Chakra“ á Café Karólínu. Chakra er úr Sanskrít og þýðir hringur eða hringrás og táknar orkustöðvar líkamans. Verkin eru sjö og eru þau unnin út frá litum og formum orkustöðvanna. Þau eru vafin með þráðum og formuð eftir alda gamalli tækni og sum þeirra lýsa í myrkri. Lesa meira
 

09.01.2010 - 24.01.2010 Myndlist og söfn DaLÍ Gallery: Margrét Buhl og Jana María

Tvær sýningar opna í DaLí Gallery laugardaginn 9. janúar 2010 kl.14-17. Það eru fyrstu sýningar ársins í DaLí Gallery, og eru þar á ferð listakonurnar Margrét Buhl og Jana María Guðmundsdóttir. Lesa meira
 

16.01.2010 - 06.02.2010 Myndlist og söfn Sjálfsmyndir

Súpan sýnir afrakstur samstarfs síns við unga sem aldna allt frá nyrstu ströndum til nafla alheimsins á fjórum farandsýningum og þar á meðal í Box-inu, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri. Lesa meira
 

16.01.2010 - 17.01.2010 Myndlist og söfn Þórgnýr Dýrfjörð: Þreifandi

Laugardaginn 16. janúar kl. 14.00 opnar Þórgnýr Dýrfjörð áhugaljósmyndari sýninguna Þreifandi í Populus Tremula. Þar sýnir hann ljósmyndir teknar á síðustu tveimur árum og eru viðfangsefnin af ýmsum toga; portrett, bæjarmyndir og landslag. Sýningin er einnig opin sunnudaginn 17. janúar kl. 14-17. Lesa meira
 

16.01.2010 - 07.03.2010 Myndlist og söfn Joris Rademaker í Listasafninu

Yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Lesa meira
 

16.01.2010 - 07.02.2010 Myndlist og söfn Kristinn G. Jóhannsson í Jónas Viðar Gallery

Laugardaginn 16. janúar kl. 15.00 opnar Kristinn G. Jóhannsson málverkasýninguna "Vetrarbrekkur" í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu á Akureyri. Kristinn G. Jóhannsson (1936) nam myndlist á Akureyri, í Reykjavík og í Edinburgh College of Art, Skotlandi. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica