Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri ól mig upp. Bærinn við fjörðinn. Bærinn við miðju landsins. Ég held að fæðingarstaður manns sé alltaf miðja alheimsins. Þaðan horfir maður yfir sviðið; þaðan er viðmiðið. Það hvarflar ekki að mér að skera á þessi bönd. Það væri lífsháski.” – Sigmundur Ernir Rúnarsson

Viðburðir

| 6 feb.. 2010 | 7 feb.. 2010 »

06.02.2010 - 01.03.2010 Myndlist og söfn

Minningar breytast í myndir og ljóð

Á Bókasafni Háskólans á Akureyri stendur yfir málverkasýning Brynhildar Kristinsdóttur. Sýningin er opin alla virka daga frá 8-18 og á laugardögum frá 12–15 og stendur til 1. mars. Allir eru velkomnir.

Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði smíðar. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist, átt í samstarfi við ýmsa listamenn og gert leikmynd fyrir dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Hún starfar nú sem safnakennari í Minjasafninu og sem smíðakennari í Oddeyrarskóla.

Með litum, línum og formum langar mig að segja frá en einnig að spyrja, leita og rannsaka. Listin kennir okkur að hugsa nýjar hugsanir, forma þær og gera þær sýnilegar. Þetta ferli frá því að maður fær ákveðna hugmynd að verki þangað til hugmyndin fær efnislegt form er í sjálfu sér áhugavert, að fylgja góðum hugmyndum út í samfélagið og skapa eitthvað sem heimurinn raunverulega þarfnast er svolítið magnað. Þessi sýning hún fjallar um ósýnilegt umhverfi og hughrif að fanga þau áður en þau hverfa úr minninu og setja  í form, myndir og ljóð stundum rauð eða blá.....
 



Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
febrúar 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            
 




Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica