Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri ól mig upp. Bærinn við fjörðinn. Bærinn við miðju landsins. Ég held að fæðingarstaður manns sé alltaf miðja alheimsins. Þaðan horfir maður yfir sviðið; þaðan er viðmiðið. Það hvarflar ekki að mér að skera á þessi bönd. Það væri lífsháski.” – Sigmundur Ernir Rúnarsson

Viðburðir - 05. desember 2009

04.02.0410 Tónlist Karl og Mennirnir á Græna hattinum

Fimmtudagskvöldið 4. febrúar: Karl og Mennirnir. Tónleikar kl. 21.00. Lesa meira
 

04.10.2009 - 06.12.2009 Myndlist og söfn Aðalheiður Eysteins í Kunstraum Wohnraum

Sýningin er svipmynd af fjölskyldu, sláturgerð og vangaveltur um líðandi stund. Fyrir rúmu ári lagði Aðalheiður af stað með verkefni sem nefnist "Réttardagur 50 sýninga röð". Settar verða upp 50 ólíkar sýningar víða um heim, á tímabilinu júní 2008 til júní 2013. Lesa meira
 

24.10.2009 - 19.12.2009 Myndlist og söfn Barnadraumar á Minjasafninu

Draumasetrið Skuggsjá hefur starfað á Akureyri frá árinu 2003 og safnar og rannsakar drauma Íslendinga fyrr og nú. Spjaldasýning Draumasetursins Skuggsjár á draumum barna í Eyþingi. Til sýnis eru líka bækur og kvikmyndir, sem koma inn á svefn og drauma barna. Sýningin er byggð á barnadrauma-könnun Skuggsjár, sem fram fór á árunum 2007 til 2009 á Akureyri, í Grímsey og á Þórshöfn á Langanesi. Lesa meira
 

24.10.2009 - 13.12.2009 Myndlist og söfn Evudætur í Listasafninu

Evudætur: Tóta, Tobba og Hrafnhildur. Hér eru á ferðinni þær stöllur Þórunn Elísabet Sveinsdóttir (Tóta), Þorbjörg Halldórsdóttir (Tobba) og Hrafnhildur Arnardóttir. Þessar vinkonur unnu allar um skeið hjá Fríðu frænku þar sem gamlir hlutir ganga í endurnýjum lífdaga og andi hins liðna svífur yfir vötnum. Þær eiga einnig sameiginlegt að vinna með fundna hluti og alls konar lífræn og ólífræn efni og aðferðir. Lesa meira
 

28.11.2009 - 06.12.2009 Myndlist og söfn Bráðum – áminning um möguleika gleymskunnar

Sýningin "Bráðum – áminning um möguleika gleymskunnar" er haldin í GalleríBOX á Akureyri. Opið er föstudaga til sunnudaga frá kl. 14-17. Sýningin fjallar í stuttu máli sagt um bækur, rithöfunda, skáld, prentsmiðjur og útgáfustarfsemi í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Lesa meira
 

04.12.2009 - 05.12.2009 Tónlist Baggalútur á Græna hattinum

"Jól og blíða". Aðventutónleikar kl. 22.00. Húsið opnað kl. 21.00. Lesa meira
 

05.12.2009 - 06.12.2009 Ýmislegt Bautamót í Skautahöllinni

Helgina 5.-6. desember 2009 verður haldið Bautamót í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta mót er fyrsti hluti Íslandsmóts hjá 4 flokki í íshokkí. Tæplega 70 hokkíspilarar á aldrinum 12-13 ára í 6 liðum frá Skautafélagi Akureyrar, Birninum og Skautafélagi Reykjavíkur keppa og er þetta yngsti hópurinn sem tekur þátt í Íslandsmóti í íshokkí. Lesa meira
 

05.12.2009 Ýmislegt Jólamarkaður í Rósenborg

Jólamarkaður og kynning í Rósenborg möguleikamiðstöð Skólastíg 2 kl. 13-17 laugardaginn 5. desember. Fallegt handverk, lifandi tónlist og ýmislegt góðgæti til sölu. Unglingar úr félagsmiðstöðvunum selja veitingar til styrktar Rauða krossinum. Ath, tökum ekki greiðslukort. Velkomin í Rósenborg. Lesa meira
 

05.12.2009 - 08.01.2010 Myndlist og söfn Sveinka á Café Karólínu

Sveinka (Sveinbjörg Ásgeirsdóttir) heldur sýninguna “Á meðan ég svaf“ á Café Karólínu. Sýningin samanstendur af draumkenndum fígúratífum vatnslita-blek myndum sem málaðar eru á ríspappír sem spilar sitt hlutverk með litunum. Sýningin er opin á opnunartímum kaffihússins. Lesa meira
 

05.12.2009 Ýmislegt Stuttmyndahátíðin Stulli

Stuttmyndahátíðin Stulli hefst í Borgarbíói á Akureyri kl. 16.00. Myndirnar sem taka þátt í keppninni eru eftir ungmenni á aldrinum 14-25 ára. Það er ókeypis inn og u.þ.b. 15 myndir verða sýndar. Sjá nánar á www.stulli.is og á www.husid.net. Lesa meira
 

05.12.2009 Tónlist Tónleikar Rytmísku deildarinnar í Rósenborg

Tónleikar Rytmísku deildarinnar í Rósenborg, laugardaginn 5. desember kl. 14.00 og 16.00. Blandaðir tónleikar með ólikum hljómsveitum. Djús og kökur milli tónleika. Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica