Hólmfríður Andersdóttir

Bókavörður hoffa@akmennt.is Áhugamál: Bækur, bækur, bækur, lestur, lestur, ljóðabækur, ævisögur, ferðabækur, skáldsögur, fræðibækur, ættfræði,

Flýtilyklar

Hólmfríður Andersdóttir

Bókavörður

hoffa@akmennt.is

Áhugamál:
Bækur, bækur, bækur, lestur, lestur, ljóðabækur, ævisögur, ferðabækur, skáldsögur, fræðibækur, ættfræði, uppskriftabækur, ljóðabækur, skáldsögur, barnabækur, ferðabækur, bækur, lestur, lestur og bækur


Í Úlfdölum

Það gisti óður
minn eyðiskóg
er ófætt vor
bjó í kvistum,
með morgunsvala
á sólardyr
leið svefninn ylfrjór
og góður.

Úr dögg og eldi
í eirrautt lim
óf ársól blóm
minna drauma
og kulið tárin
úr krónum þeim
sem koss á brár mínar
felldi.

Og tónaseiður
og svanaflug
úr suðri logana
glæddu;
í heiðri vordýrð
skein veröld mín,
hver vegur opinn
og greiður

Þú getur valið
um vegi og átt,
hví velurðu eigi?
Nei, hingað
skal koma allt
sem ég ann og vil
og enn er sjón minni
falið!

Það söng í limi
ég lék við streng,
ég lék að heilögum
dómum,
ég sveif í logum
á svanavæng,
ég svaf í dúnhvítu
brimi.

Þeir svanir flugu
er sólin hneig
og sukku í skóganna
rökkur
en augu brunnu
og úlfur þaut
og ormar kringum
mig smugu.

Í djúpu rjóðri
er reimt og dimmt,
það rýkur hrímþoka
um blómin
og lykur spor alls
sem liðið er
í loðnum myrkheima
gróðri.

Í vængjum felldum
ég vafinn lá,
þær viðjar binda
ekki lengur;
með nýjum styrk
skal ég strengi slá
og stirna langnættið
eldum

unz óskakraftur
minn endurrís
úr ösku ljóðs míns
og hjarta,
úr mistri og sorta
skín svanaflug
og sólin gistir
mig aftur.

Snorri Hjartarson

...

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
fimmtudagur 23.02. 2012
kl. 01:33
-2°A 2 m/s
  • meira nymeti

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í vetur (16. september - 15. maí):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: kl. 11:00-16:00
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.  HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is