Skipulag bókasafnsins

Svona finnurðu efni Dewey kerfið Á Amtsbókasafninu er notað ákveðið kerfi til að raða upp bókum, Dewey-kerfið svokallað. Í flokkunarkerfinu á að vera hægt

Flýtilyklar

Skipulag bókasafnsins

Svona finnurðu efni

Dewey kerfið

Á Amtsbókasafninu er notað ákveðið kerfi til að raða upp bókum, Dewey-kerfið svokallað. Í flokkunarkerfinu á að vera hægt að flokka alla þekkingu mannkyns á hverjum tíma og í því er leitast við að raða saman gögnum sem fjalla um sama eða skylt efni.

Í Dewey flokkunarkerfinu fá rit svonefnda flokkstölu, sem samanstendur af tölustöfum. Flokkstala er í eðli sínu raðtákn sem segir til um hvar í röð tiltekið rit (t.d. bók) er að finna miðað við önnur rit á bókasafni. Sem dæmi um notkun á flokkstölu má nefna að efni um sérkennslu (special education) hefur flokkstöluna 371.9.

Auk flokkstölu (t.d. 371.9) eru rit í bókasöfnum einnig oft einkennd með bókstöfum, svonefndum raðstöfum. Dæmi um raðstafi (sem standa hjá flokkstölu) eru; 371.9 Cou og 371.9 Alt.

Flokkstala og raðstafir mynda raðtákn. Dæmi um raðtákn; 371.9 Cou.

Hér má sjá kennslumyndband um hvernig maður finnur bók á Gegni.

Hér er listinn yfir fræðslubókarflokkana á Amtsbókasafninu á Akureyri:

1. hæð á Amtsbókasafninu:

000        Tölvur, upplýsingar, almennt efni
004        Tölvur
030        Almenn alfræðirit
070        Fjölmiðlar

100       Heimspeki, sálfræði og yfirskilvitleg fyrirbæri
110        Frumspeki
130        Yfirskilvitleg fyrirbæri
133        Dulsálfræði og dulfræði
133.9     Sálarrannsóknir (spíritismi)
133.9    Sálarrannsóknir (spíritismi)
150        Sálfræði
153        Meðvitund og greind
154        Undirmeðvitund, vitundarstig og vitundarferli
155        Mismunar- og þroskasálfræði
158        Hagnýt sálfræði
158.1    Sjálfshjálp
170        Siðfræði
180        Heimspeki fornaldar, miðalda og Austurlanda
181        Heimspeki Austurlanda
190        Vestræn nútímaheimspeki

200        Trúarbrögð

209        Kristnisaga
220        Biblían
220        Kristin guðfræði
241        Kristin siðfræði
252        Predikanir
255        Trúarsamtök og reglur
262        Kirkjufræði
267        Kristileg félög
270        Kirkjusaga
292        Grísk og rómversk trúarbrögð
293        Norræn goðafræði
294        Trúarbrögð af indverskum uppruna
294.3     Búddadómur
296        Gyðingdómur
297        Íslam, babismi, baháítrú

300        Félagsvísindi
301        Félagsfræði og mannfræði
302        Félagsleg samskipti
304        Þættir sem hafa áhrif á félagslega hegðun
305        Þjóðfélagshópar
306        Menning og félagsfesti
306.8     Hjónabandið og fjölskyldan
306.85  Fjölskyldan
310        Hagskýrslur
320        Stjórnmálafræði og stjórnmál
324        Stjórnmálastarfsemi
325        Fólksflutningar milli landa og stofnun nýlenda
326        Þrælahald og lausn úr ánauð
327        Alþjóðasamskipti
330        Hagfræði
331        Hagfræði vinnumarkaðar, fjármála, lands og orku
331.88   Verkalýðsfélög
332        Fjármálahagfræði
333        Auðlindahagfræði
337        Alþjóðahagfræði
340        Lögfræði
342        Stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttur
346        Einkamálaréttur
351        Opinber stjórnsýsla
360        Félagsleg vandamál og þjónusta
362.1    Líkamlegir sjúkdómar (félagsleg þjónusta)
362.3    Þroskahömlun
362.4    Vandamál og þjónusta við fólk með líkamlega fötlun
362.6    Vandamál og þjónusta við aldraða
362.7    Vandamál og þjónusta við ungt fólk (og börn)
363.1    Almannavarnir og öryggiseftirlit
363.2    Löggæsla
363.3    Aðrir þættir almannavarna
363.7    Umhverfisvandamál
363.9    Fólksfjölgunarvandamál
364        Afbrotafræði
365        Fangelsi og aðrar stofnanir
368        Tryggingar
370        Menntun
371        Skólar og starfsemi þeirra; sérkennsla
372        Grunnskólar
373        Framhaldsskólar
380        Verslun og viðskipti
387        Samgöngur á sjó og vötnum
387.7    Flugsamgöngur
388        Samgöngur á landi
390        Þjóðfræði og siðvenjur
391        Klæðaburður og útlit
392        Daglegar venjur og heimilislíf
394        Almennar siðvenjur
395        Háttvísi og kurteisisvenjur
398        Þjóðfræði, þjóðsögur og þjóðtrú

400        Tungumál
409.2    Nafnabækur
410        Íslenska

500        Raunvísindi
510        Stærðfræði
520        Stjörnufræði og skyldar greinar
540        Efnafræði og skyldar greinar
550        Jarðvísindi
551        Jarðfræði, vatnafræði og veðurfræði
551.21  Eldfjöll
570        Líffræði
580        Plöntur
590        Dýr

600        Tækni (hagnýt vísindi)

610        Heilbrigðisvísindi og læknisfræði
620        Verkfræði og skyldar greinar
630        Landbúnaður og sjávarútvegur
640        Matur, matreiðsla og heimilisstörf
650        Stjórnun
670        Iðnaður

700         Listir - Skemmtanir - Íþróttir
701-709 Formgreinar myndlistar og skreytilistar og viðfangsefna hennar
710        Byggða- og landslagsskipulag
720        Byggingarlist - Arkitektúr
730        Myndmótun - Höggmyndalist - Skúlptúr
740        Teiknum - Skreytilist - Listiðnaður - Hönnun
750        Málaralist og málverk
760        Grafík - Listmyndaprent og þrykk
770        Ljósmyndun og ljósmyndir
790        Íþróttir - Skemmtanir

2. hæð á Amtsbókasafninu:


800        Bókmenntafræði
808        Stílfræði
811        Ljóðabækur
814        Ritgerðir og greinar
815        Ræður og erindi
816        Sendibréf
817        Skop
818        Blandað efnið
819        Fornbókmenntir
821        Bókmenntir á ensku - Ljóð
822        Bókmenntir á ensku - Leikrit
823        Bókmenntir á ensku - Skáldsögur
833        Bókmenntir á þýsku - Skáldsögur
839.63   Bókmenntir á norsku - Skáldsögur
839.69   Bókmenntir á færeysku - Skáldsögur
839.73   Bókmenntir á sænsku - Skáldsögur
839.83   Bókmenntir á dönsku - Skáldsögur
843        Bókmenntir á frönsku - Skáldsögur
853        Bókmenntir á ítölsku - Skáldsögur
863        Bókmenntir á spænsku - Skáldsögur

900        Landafræði og sagnfræði
909        Almenn mannkynssaga
910        Landafræði og ferðir
912        Kort og uppdrættir
914        Landafræði Evrópu (ferðabækur)
914.91   Landafræði - Ísland [ferðabækur]
915        Landafræði - Asía [ferðabækur]
916        Landafræði - Afríka [ferðabækur]
917        Landafræði - Norður Ameríka [ferðabækur]
918        Landafræði - Suður Ameríku [ferðabækur]
919        Landafræði - aðrir heimshlutar [ferðabækur]
920        Æviþættir
921       Ævisögur
940.53   Heimsstyrjöldin síðari
947        Saga - Austur Evrópu
948        Saga - Norðurlönd
949.1     Saga - Ísland
949.11   Saga - Reykjavík
949.12   Saga - Gullbringu- og Kjósasýsla
949.13   Saga - Vesturland
949.14   Saga -  Vestfirðir
949.15   Saga - Norðurland vestra
949.16   Saga - Norðurland eystra
949.16   Saga - Norðurland eystra
949.17   Saga - Austuland
949.18   Saga - Suðurland
950        Saga - Asía
960        Saga - Afríka
970        Saga - Norður Ameríka
970        Saga - Norður Ameríka
980        Saga - Suður Ameríka
990        Saga - Aðrir heimshlutar

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:32
+2.8°SSA 1 m/s
  • holmasol

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.    HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is