Á Amtsbókasafninu á Akureyri eru yfir 100.000 eintök (bækur, tímarit, myndbönd, geisladiskar, mynddiskar, margmiðlun o.fl.) og það er augljóst að það tekur of langan tíma að telja þau öll upp hér. Hins vegar höfum við grófflokkað safnkostinn okkar í fjóra flokka (sjá til hliðar): kvikmyndir, tónlist, bækur og tímarit, margmiðlun. Undir hverjum lið verður hægt að sjá helstu titlana og búast má við því að þessir listar breytist jafnt og þétt yfir árið.
En kíkið endilega þarna inn og sjáið hvað Amtsbókasafnið hefur upp á að bjóða!

