Reglur

Útlánareglur Almenn útlán Til að fá lánuð gögn á safninu er nauðsynlegt að eiga bókasafnsskírteini. Gögn safnsins eru ekki lánuð út án framvísun

Flýtilyklar

Reglur

Útlánareglur

Almenn útlán

Til að fá lánuð gögn á safninu er nauðsynlegt að eiga bókasafnsskírteini. Gögn safnsins eru ekki lánuð út án framvísun skírteinis.

Öllum er heimilt að fá bókasafnsskírteini. Þangað til börn hafa náð fjórtán ára aldri þarf annað foreldri, eða forráðamaður, að ábyrgjast skírteini barns síns. Í þeim tilvikum þarf að fylla út ákveðið umsóknareyðublað. Þegar einstaklingar eldri en fjórtán ára fá skírteini er ekki nauðsynlegt að fylla út eyðublað.

Fyrsta skírteini sem einstaklingur fær er ókeypis. Ef skírteini hins vegar glatast kostar 1000 kr. að fá nýtt. Lánþegar sem ekki eiga lögheimili í Akureyrarkaupstað þurfa að borga 2000 kr. árgjald.

Gjarnan er miðað er við 10 bækur á skírteini, en í raun er ekki um neitt hámark að ræða.

Heimilt er að framlengja útlán í gegnum síma og á staðnum án þess að bók fylgi með.

Pantanir:

Leyfilegt er að panta öll gögn sem merkt eru útlánadeild.

Heimilt er að panta bækur í gegnum síma.

Að panta eina bók sem ekki er inni, eða hvaða annað safngagn sem er, kostar 250 krónur.

Undantekning er þó ein.

Ekki er greitt fyrir pöntun á tungumálanámskeiðum (linguaphone).

Þær takmarkanir eru þó gerðar að ekki er hægt að hafa í pöntun fleiri en þrjár nýjar bækur (jólabækur) í einu.

Hringt er í viðkomandi einstakling, þegar efnið sem pantað var er komið inn.

Sá sem pantar bók skal nálgast hana innan þriggja daga frá því að það náðist í hann í síma. Ef það er ekki gert er hringt aftur í einstaklinginn og ítrekað að bók sé tilbúin til afhendingar. Þegar hringt er í síðara skiptið skal bók vera sótt ekki seinna en daginn eftir að hringt er. Ef bókin hefur ekki enn verið sótt eftir þann tíma skal hún ganga til næsta aðila sem átti bókina pantaða eða gengið frá henni í hillu.

Myndbönd og mynddiskar:

  • Mynddiskar kosta 200 krónur - útlánatími er tveir dagar.
  • Fræðslumyndir kosta 100 krónur - útlánatími er ein vika.
  • Barnamyndir kosta 200 krónur - útlánatími er 2 dagar.
  • Nýir/nýlegir mynddiskar (barna og fullorðins) kosta 400 krónur, útlánatími er tveir dagar.
  • Myndbönd eru ókeypis

Athygli skal vakin á því að lánstími mynda sem fengnar eru að láni á fimmtudögum er fjórir dagar, og þrír á föstudögum.

Heimilt er að panta myndbönd og mynddiska og kostar sú pöntun 250 kr. eins og um bók væri að ræða.

Ef myndböndum eða mynddiskum er ekki skilað á réttum degi reiknast sekt. Dagssekt á hvern mynddisk er 200 krónur (sama hvort um tilboðsmynd, hefðbundna mynd eða nýja/nýlega mynd er að ræða) en dagssekt á myndbönd og fræðslumyndir er 20 krónur.

Myndbönd og mynddiskar eru eingöngu lánuð út gegn framvísun bókasafnsskírteinis, eins og önnur gögn safnsins.


Margmiðlun:

Lánstími á margmiðlunarefni er 2 vikur og kosta útlánin 100 kr.

Ef margmiðlunarefni er ekki skilað innan 2 vikna reiknast sekt. Dagsekt er 20 krónur.

Viðskiptavinur verður að hafa lánþegaskírteini sitt til að geta farið í eina af átta almenningstölvunum frammi á sal, ellegar greiði 300 kr. fyrir klukkustundar notkun.

Almenningstölvur:

Á safninu eru átta almenningstölvur og eru þær allar staddar í kaffiteríunni á marmaranum.

Með því að framvísa sínu bókasafnsskírteini fær lánþegi frían klukkutíma í tölvu, en einnig er hægt að borga 300 kr. fyrir hverja auka klukkustund. Reynt er þó að hafa það þannig að sem flestir komist að.

Þegar einstaklingur framvísar skírteini sínu, eða borgar 300 kr., fær hann í hönd miða með ákveðnu leyniorði. Hægt er að setjast við hvaða lausa tölvu sem er af þessum átta og slá inn leyniorðið. Þessi einstaklingur hefur þá tölvuna til umráða í eina klukkustund. Teljari á skjá sýnir hversu mikið eftir er af tímanum.

Ekki er hægt að panta tíma fyrirfram í almenningstölvurnar, heldur verður fólk að koma og bíða, sé engin tölva laus.

Sektir:

Gögn safnsins skulu innheimt þegar lánstími þeirra hefur runnið út.

Sekt reiknast þannig á vanskil bóka, hljóðbóka og tímarita:

Dagssekt: 20 krónur á hvert eintak.

Ef safnefni er ekki skilað þrátt fyrir ítrekaðar innheimtutilraunir skal viðskiptavinur sem í vanskilum er útvega bókasafninu eintak sem samsvarar því eintaki sem glatað er.

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
fimmtudagur 09.02. 2012
kl. 18:15
+SSA 4 m/s
  • Þorrasnjor

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í vetur (16. september - 15. maí):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: kl. 11:00-16:00
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.     HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is