Markmið Amtsbókasafnsins á Akureyri
Markmið Amtsbókasafnsins er að efla lýðræði, jafnrétti, athafnafrelsi og velferð borgaranna. Þjónusta safnsins skal ná til þeirra allra, án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoðana, trúar, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu.
Markmið Amtsbókasafnsins er að auðga skilning á íslenskri tungu, bókmenntum og menningararfi, hvetja til lesturs, styðja nám og símenntun.
Markmið Amtsbókasafnsins er að jafna aðgang að upplýsingum, þekkingu og afþreyingu og koma þar með í veg fyrir ójöfnuð meðal borgaranna.
Leiðir að markmiðum
- Safnkostur Amtsbókasafnsins á að uppfylla kröfur um gæði og fjölbreytni bæði um efni og form (prentað mál, myndbönd, tónlist, margmiðlunarefni o.fl.). Hluti safnkostsins er til útláns en aðstaða er í safninu til að nýta annað efni, s.s. prentskil og handbækur.
- Upplýsingar um safnkost eru notendum aðgengilegar í gagnagrunni safnsins. Einnig skal veita aðgang að gagnagrunnum annarra bókasafna.
- Notendum er leiðbeint við að finna gögn sem ekki eru til í safninu svo sem með því að benda á önnur söfn eða veita aðstoð við millisafnalán.· Safnið nýtir sér nýjustu upplýsingatækni, t.d. Internetið og margmiðlun. Almenningur getur sjálfur leitað á Internetinu og nýtt sér tölvur safnsins á annan hátt eftir því sem við verður komið.
- Amtsbókasafnið skal veita upplýsingar um Akureyrarbæ, opinberar stofnanir og þjónustu þeirra.
- Safnið veitir einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum faglega upplýsingaþjónustu.
- Safnið leggur sérstaka áherslu á barna- og unglingastarf, t.d. með safnkynningum og sögustundum.
- Tryggja skal fötluðum aðgengi að safninu. Safnið veitir þeim, sem ekki geta komið á safnið vegna fötlunar, öldrunar eða annarra aðstæðna, heimsendingaþjónustu.
- Amtsbókasafnið gerir þær hæfniskröfur til starfsmanna sinna að þeir geti veitt góða þjónustu og stuðlar að símenntun starfsmanna ekki síst í ljósi nýrrar upplýsingatækni.
- Safnið leggur áherslu á samvinnu og tengsl við bókasöfn og aðra menningar- og félagsstarfsemi, jafnt á Akureyri sem annarsstaðar.
Amtsbókasafnið starfar í samræmi við Lög um almenningsbókasöfn frá 1997 og Yfirlýsingu Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) um almenningsbókasöfn.
Stefnt er að því að ofanskráðum markmiðum verði náð um áramótin 1999/2000.
Akureyri í nóvember 1996

