Skylduskil

17. september 2008: Kæru safngestir! Amtsbókasafnið á Akureyri er svokallað skylduskilasafn, sem þýðir að það á að varðveita eitt eintak af öllu prentuðu

Flýtilyklar

Skylduskil

17. september 2008:

Bækur

Kæru safngestir!

Amtsbókasafnið á Akureyri er svokallað skylduskilasafn, sem þýðir að það á að varðveita eitt eintak af öllu prentuðu efni hér á Íslandi. Hingað til hafa safngestir getað unnið með skylduskilin gegn því að fylla út ákveðið eyðublað, en nú er stór hluti skylduskilanna tengdur í tölvukerfið okkar (Gegni) og því viljum við afhenda þau gegn framvísun bókasafnsskírteinis. Við viljum biðja ykkur að hafa skírteinið við hendina þegar þið komið til okkar í upplýsingaþjónustuna.

Ef viðkomandi rit/efni er ekki tengt, þá verður hins vegar notast áfram við eyðublöðin.

Skylduskilin eru ekki lánuð út.

Í framtíðinni verður það þannig að þið getið fengið afnot af skylduskilum, gegn framvísun bókasafnsskírteinis.

Munið því endilega eftir skírteininu þegar þið komið í upplýsingaþjónustuna næst! Sjáumst hress!

Starfsfólk upplýsingaþjónustu Amtsbókasafnsins

-----------------------------------------

 

Nánar um skylduskil:

Amtsbókasafnið nýtur þeirrar sérstöðu að hafa yfir að ráða skylduskilum. Samkvæmtlögum (nr. 20/2002) sem tóku gildi 1. janúar 2003, er safnið eitt af þremur skylduskilasöfnum hér á landi. Safnið hefur þá skyldu að varðveita eitt eintak af skilaskyldu efni sem best, tryggja öryggi þess og viðhald.

Efni sem flokkast undir skylduskil er því ekki lánað út en eingöngu lánað á lestrarsal. Afgreiðsla þess fer fram í upplýsingaþjónustunni á 1. hæð.

Skylduskil eru verk sem gefin eru út eða birt hér á landi. Þar með teljast verk sem framleidd eru erlendis ef þau eru sérstaklega ætluð til dreifingar á Íslandi.

Undir skylduskil flokkast meðal annars bækur, barnabækur, kennslubækur, hljóðbækur, tímarit, árbækur, ársskýrslur, fréttabréf, sjónvarpsdagskrár, glanstímarit, dagblöð, héraðsblöð, kosningablöð, skólablöð, myndablöð og hverfablöð.

Skýrslur, landakort, veggspjöld og smáprent, t.d. bæklingar, auglýsingar, verðlistar, leikskrár, sýningarskrár, tónleikaskrár, póstkort, jólakort og spil.

Nýlega kom út kynningarrit um lög um skylduskil á vegum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafn og geta áhugasamir fengið að skoða það rit í upplýsingaþjónustunni.

Safninu berast á ári hverju mikið magn af skylduskilum. Á bilinu 70-100 kassar á ári. Þessi skylduskil dreifast um geymslur safnsins og fer töluverður hluti þeirra í geymslu í kjallara safnsins.

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
fimmtudagur 09.02. 2012
kl. 14:28
+SSV 2 m/s
  • stofngjorningur

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í vetur (16. september - 15. maí):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: kl. 11:00-16:00
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.     HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is