My head is an animal
(útg. 2011, 10/10)
Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er vinsæl þessi misserin. Hún er meira að segja svo vinsæl að eitt lag með þeim, "Little talks", hefur setið á ofarlega á vinsældarlistum hér á landi í ansi margar vikur. Vinsældir hennar og gæði hafa einnig gert það að verkum að nýlega gerði hljómsveitin samning við Universal fyrirtækið um dreifingu plötunnar á erlendum markaði. Íslenski draumurinn um "að meikaða" orðinn að veruleika, eða hvað? Hvernig líst svo undirrituðum á plötuna þeirra sem nýverið kom út?
Jú, bara alveg einstaklega vel! Ég hef ekki verið að fara endilega eftir vinsældarlistum, en það kom mér á óvart að sjá að "Little talks" er til dæmis mun eldra (um ársgamalt) en ég hélt. Aldur skiptir hins vegar ekki máli. Þegar ég hlustaði á plötuna í fyrsta skipti voru öll lögin ný fyrir mér. Já, ég hafði ekki heyrt þetta margfræga lag, því ég hlusta ekki það mikið á útvarp. En þvílík veisla sem ómaði í eyrum mínum. Það er ekki oft sem maður finnur svo sterklega fyrir því að plata heilli mann strax. En það gerði My head is an animal. Þetta er algjörlega ein af þeim plötum sem koma til með að berjast um titilinn "besta plata ársins 2011" hjá mér. Ég er svo hrifinn af svona tónlist, og ekki sakar það að sjá hljómsveitina flytja tónlist sína svo framúrskarandi vel á sviði (e. "live").
'Dirty paws' byrjar snilldina einkar vel. 'King and lionheart' fylgir því vel á eftir og maður er strax húkkaður. 'Numb bears' og 'Sloom fylgja svo á eftir áður en sennilega besta lag plötunnar 'Little talks' tekur við. Og þó ... þau eru þarna nokkur sem eru ferlega góð. Ég er til dæmis mjög hrifinn af 'Your bones', get spilað það aftur og aftur og aftur ...
Platan hefur fengið mjög góðar viðtökur og ég er ekki hissa á því. Ef það er eitthvað sem ég gæti kvartað yfir þá væri það helst þessi árátta hjá mörgum listamönnum að hafa "falið lag", þ.e. að síðasta lag plötunnar virkar ofboðslega langt en er í raun tvö lög með langri þögn á milli.
Ef við horfum fram hjá því þá er engin spurning um að þessi plata fær hæstu einkunn frá mér. Algjör snilld!

